Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 2
2 13. apríl 2018FRÉTTIR
fréttir sem DV sleppti í vikunni
Lesendur
hafa lengi
haft á orði
að fátt
ef eitthvað
sé DV óvið-
komandi og hefur í ófá skipti
verið spurt hvort „þetta sé frétt“ í
athugasemdakerfinu. Svo er ekki
og líkt og aðrir fjölmiðlar sleppir
DV stundum því að segja frétt
þegar það er metið svo að ekki sé
tilefni til. Því til sönnunar hefur DV
tekið saman fimm fréttir sem DV
sleppti í vikunni.
Guðmundur
Franklín sakar
RÚV um að vega
að Simpson-fjöl-
skyldunni
Stjórnmálamaðurinn
fyrrverandi Guðmund-
ur Franklín Jónsson
vandaði Ríkisútvarp-
inu ekki kveðjurnar
vegna innslags í
þættinum Víðsjá þar
sem talað er um að
Simpsons-persónan
Apu Nahasapeema-
petilon sé tímaskekkja.
Vinstri græn
gagnrýnd vegna
„R“ í póst-
sendingum
Vinstrihreyfingin –
grænt framboð sendi
tölvupóst á félags-
menn þar sem nafn
flokksins var „Vinstri
grænir“. Flokkurinn
var gagnrýndur í
Femínistaspjallinu
fyrir að kalla sig ekki
„Vinstri græn“. Fram-
bjóðandi flokksins
baðst afsökunar og
sagði að „R-ið“ yrði
fjarlægt.
Laddi á Krúsku
Spéfuglinn Laddi,
Þórhallur Sigurðsson,
sást úti að borða á
veitingastaðnum
Krúsku við Suður-
landsbraut í vikunni.
Ekki er vitað hvað
hann pantaði sér.
Þetta er það sem
gerist þegar þú
prumpar um borð
í smábíl
Myndin skýrir sig sjálf.
Jónas kallar
Sjálfstæðismenn
bófa
Jónas Kristjánsson,
fyrrverandi ritstjóri,
fer ófögrum orðum
um Sjálfstæðismenn
á bloggsíðu sinni eins
og svo oft áður. Kallar
hann Sjálfstæðismenn
bófa og oddvita
flokksins í Reykjavík
„billegan braskara“.
LOF & LAST
– Björg Kristín Oddviti Höfuð-
borgarlistans
Lofið fær bæjarstjórn Kópavogs
fyrir að láta byggja brú til Reykja-
víkur og láta aðra greiða fyrir hana.
Kópavogur beitir klókindum til að
ná fyrirtækjum og einstaklingum
frá Reykjavík. Kópavogur fær
unga fólkið, fyrirtækin og
fjármagnið.
Lastið fær öll borgar-
stjórn Reykjavíkur, bæði
þeir sem eru við völd og
hinir valdalausu sem sitja
aðgerðarlausir hjá. Ekkert
heyrist í þessu fólki. Fram-
kvæmdastjórar Reykjavíkur-
borgar fela sig í turnum og bak við
vatnshana og í fjörum borgarinnar.
Nú þurfum við að vaða yfir lækinn
og ná í snillingana sem láta greiða
allt fyrir sig. Núverandi valdhöfum
og þeim valdalausu dettur ekkert
í hug annað en greiða allt fyrir
Kópavog hvort sem það er brú eða
samgöngur.
Á þessum degi,
13. apríl
1204 – Konstantínópel, nú Istanbúl,
er hertekin af krossförum í Fjórðu kross-
ferðinni og markaði það tímabundin
endalok Býsansríkis.
1870 – Metropolitan Museum of Art í
New York-borg er stofnað.
1943 – Fjöldagrafirnar í Katyn-skógi
finnast. Þær geymdu líkamsleifar
þúsunda pólskra stríðsfanga sem myrtir
voru af sovéska hernum.
1964 – Sidney Poitier vinnur Óskars-
verðlaunin sem besti karlleikarinn,
fyrstur bandarískra blökkumanna, fyrir
hlutverk sitt í Lilies of the Field.
1997 – Tiger Woods er yngstur kylfinga
til að bera sigur úr býtum á Masters-
golfmótinu.
Síðustu orðin
„Ég var eitt sinn spurður
– ég man ekki af hverjum
– hvort einhver leið væri
að stöðva kynferðisbrota-
menn. Ég svaraði nei. Ég
hafði rangt fyrir mér.“
– Barnaníðingurinn Westley Allen
Dodd, 5. janúar 1993, rétt áður en
hann var hengdur
Vilja ekki upplýsa hvenær
leigusamningur var gerður
I
nga Sæland, formaður Flokks
fólksins, og Björn Arnar Magn-
ússon, framkvæmdastjóri
Brynju, hússjóðs Öryrkja-
bandalagsins, neita að upplýsa
hvenær samkomulag milli Ingu
og sjóðsins um tvöfalda húsaleigu
hennar var handsalað. Inga svar-
ar ekki fyrirspurn DV um málið
og það tók blaðið tæpar tvær vik-
ur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
að fá viðbrögð frá Birni Arnari.
Þegar það tókst loks sagðist fram-
kvæmdastjórinn neita að tjá sig
um mál einstakra leigjenda. Að-
spurður hverjar verklagsreglurn-
ar væru almennt þegar breytingar
yrðu á tekjum eða eignastöðu
leigjenda hjá Brynju sagði Björn
Arnar: „Það eru engar verklags-
reglur til varðandi svona mál enda
koma þau aldrei upp.“ Þá sagði
hann að samningum yrði ekki
þinglýst á eignina eins og gert er
með alla aðra leigusamninga fé-
lagsins.
Sakar DV um illgirni
Eins og kom fram í frétt DV á
dögunum hefur Inga leigt íbúð
af Brynju í sjö ár. Íbúðin er skráð
fjögurra herbergja og er 148 fer-
metrar að stærð, þar af 28 fer-
metra bílskúr. Húsaleigan sem
Inga hefur greitt hefur verið afar
hagstæð. Samkvæmt þinglýstum
leigusamningi var leigan um
110 þúsund krónur á mánuði
og var þeim upplýsingum slegið
upp í frétt blaðsins. Eins og áður
svaraði Inga ekki spurningum
blaðsins um málið en nokkrum
dögum eftir að fréttin birtist gaf
hún út þá yfirlýsingu á Face-
book-síðu sinni að leigan væri
í raun tvöföld. „Eftir að ég varð
þingmaður varð það samkomu-
lag milli mín og Brynju hússjóðs
ÖBÍ að á meðan ég starfaði sem
slíkur myndi ég greiða 100%
hærri húsaleigu þegar ég hefði
náð þeim hámarksviðmiðunar-
tekjum sem þeir miða við,“ skrif-
aði Inga og sagði að samkvæmt
heimabanka sínum ætti hún að
borga 235.418 krónur í leigu fyrir
apríl mánuð. „Já, hann er misjafn
skíturinn sem flæðir með allri
sinni illgirni,“ bætti Inga við.
Í viðtali við Stöð 2 skömmu
síðar sagði Inga að samningurinn
hefði verið gerður „fyrir stuttu“
og að hún væri þakklát fyrir þann
velvilja sem hússjóðurinn sýndi
henni og þeim breyttu aðstæð-
um sem hún væri í. „Ég get ekki
fullþakkað það, þetta er náttúru-
lega mitt friðhelgi, mitt heimili
og eina öryggið sem ég á,“ segir
Inga.
Árslaun uppá 20 milljónir króna
Brynja, hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins, á og rekur um 860 íbúð-
ir sem leigðar eru út á hagstæðu
verði til öryrkja. Eftirspurn eftir
húsnæði á vegum félagsins hefur
aldrei verið meiri en umsækjend-
ur geta vænst þess að biðtíminn
eftir íbúð sé um fjögur ár. Til þess
að eiga rétt á einstaklingsíbúð hjá
Brynju verða árstekjur umsækj-
anda að vera undir 4.749.000
króna á ári, sem eru mánaðarlaun
upp á rúmlega 395 þúsund krónur
á mánuði. Hámarkið fyrir hjón og
sambúðarfólk er 6.649.000 krónur
á ári, sem eru mánaðarlaun upp á
rúmlega 554 þúsund krónur.
Mánaðarlaun Ingu
Sæland á Alþingi
eru tæplega
1,7 milljónir
króna á mánuði
auk fastra
mánaðarlegra
kostnaðar-
greiðslna
upp á 70
þúsund krón-
ur. Það gera árslaun upp á rúmar
20 milljón króna. Laun hennar eru
því rúmlega fjórföld hámarksárs-
laun einstaklinga og tæplega þre-
föld hámarksárslaun hjóna eða
sambúðarfólks sem hefur í hyggju
að sækja um íbúð hjá Brynju.
Í áðurnefndu viðtali við Stöð 2
sagði Inga að sjóðurinn hefði horft
til þess að ekki væri „alveg þar með
sagt að hún væri komin til þess að
vera öryrki á ofurlaunum lengi.“
DV myndi gjarnan vilja spyrja
Ingu, ef hún svaraði spurningum
blaðsins, hvort starfsöryggi henn-
ar sem þingmanns væri virkilega
minna en annarra einstaklinga
á vinnumarkaði. Kjörtímabil-
ið er fjögur ár og ef þingi yrði
slitið fyrr og boðað til kosn-
inga þar sem Inga myndi
missa þingsæti sitt þá
má ekki gleyma því
að hún fengi greidd
biðlaun í þrjá til sex
mánuði eftir atvik-
um. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Íbúðin sem Inga Sæland leigir af Öryrkjabanda-
laginu er 148 fermetrar að stærð. Íbúðin er á jarð-
hæð og fylgir rúmgóður sólpallur með eigninni.
n Engar verklagsreglur til n 500 á biðlista eftir húsnæði