Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 13
13. apríl 2018 FRÉTTIR 13
Magna. Sagði hún að Magni
hefði játað fyrir henni glæp
inn. Magni var handtek
inn en sem fyrr neit
aði hann sök. Móðir
Sherry sagði við fjöl
miðla eftir hand
tökuna:
„Ég og tvær
dætur hennar
höfum syrgt og
beðið til æðri
máttarvalda að
réttlætinu yrði
fullnægt.“
Síðan talaði
Norma beint til
dóttur sinnar:
„Við elskum
þig af öllu
hjarta og
biðjum þess
að réttlætinu
verði fullnægt
svo þú get
ir hvílt í friði.
Ég sendi þér
alla mína ást
á hverjum ein
asta degi. Ekki
gleyma hversu
mikið þú ert
elskuð. Við tölum
um þig á hverj
um degi. Ég elska
þig svo mik
ið. Ástar
kveðjur,
þín mamma.“
Fæddur í
Bandaríkjunum
Magni Böðvar
er með tvöfald
an ríkisborgara
rétt en hann
fæddist árið 1974
í Bandaríkjun
um. Hann á ís
lenskan föður en
bandaríska móð
ur. Í frétt á Stund
inni var greint
frá því að fimm ára gamall hafi
Magni Böðvar flutt til Keflavíkur
og búið hjá afa sínum og ömmu.
Starfaði Magni meðal annars
við vöruflutninga og bjó af og til
á Íslandi til ársins 2010 en settist
það ár að í Bandaríkjunum eftir
að faðir hans lést.
Fréttablaðið greindi frá í um
fjöllum árið 2016 að Magni hefði
ekki efni á að ráða sér lögmann.
Þá kom þar einnig fram að hann
hefði árið 1996 verið dæmdur í
ellefu mánaða fangelsi fyrir inn
brot og þjófnað auk þess sem
hann hefur verið sakfelldur
fyrir þrjú umferðarlaga
brot.
Fyrrverandi í
hefndarhug
Magni hafði
ávallt haldið
fram sak
leysi sínu.
Unnusta
hans,
Sara,
taldi
að
ákæran væri hefndaraðgerð
af hálfu fyrrverandi eiginkonu
hans. Fullyrti Sara að eiginkonan
fyrrverandi og besti vinur henn
ar hafi þegið þrjú þúsund Banda
ríkjadali fyrir að bendla Magna
við morðið.
„Hún kom einungis fram
þegar verðlaun voru boðin fyrir
upplýsingar sem myndu leiða
til handtöku, ekki sakfellingar, í
málinu,“ sagði Sara í samtali við
Fréttablaðið í nóvember 2016. Í
samtali við Stundina sagði hún:
„Þeir tóku DNA af fötunum
hans, mótorhjólinu og rúminu
sem hann svaf í. Hann var yfir
heyrður tvisvar þá og síðan
sleppt því lögreglan hafði engin
sönnunargögn sem tengdu hann
við morðið.“
Í gögnum lögreglu kemur fram
að Magni hafi smám saman breytt
smáatriðum í sögu sinni frá því
að hann var yfirheyrður fyrst árið
2012. Sara sagði enn fremur:
„Ég veit í hjarta mínu að hann
er saklaus […] Ég hef verið með
honum í þrjú ár og aldrei fundist
ég vera óörugg. Hann setur þarf
ir annarra framar sínum eigin og
trúir ekki á ofbeldi gegn konum.
Hann er verndari. Hann styrk
ir þurfandi fjölskyldur og heldur
dyrum opnum fyrir öðrum. Hann
reynir alltaf að fá fólk til að brosa
og elskar að verja tíma með
börnunum.“
Elskaði hana af öllu hjarta
Norma tjáði sig ítrekað við
fjölmiðla fyrir dómsuppkvaðn
inguna. Felldi hún tár í samtali við
fréttamann en léttirinn var mikill.
„Á hverri einustu nóttu hugs
aði ég um hver örlög dóttur
minnar hefðu verið. Lá hún
þarna og þjáðist. Hefði ég getað
bjargað lífi hennar hefðum við
fundið hana fyrr,“ sagði Norma
og bætti við:
„Hún var einkabarnið mitt og
ég elskaði hana af öllu hjarta. Ég
mun aldrei komast yfir þetta. Ég
vona að Magni fái þyngstu refs
ingu sem er í boði vegna þess að
hann rústaði fjölskyldunni minni.
Hann reif úr okkur hjartað.“
Játning
Magni Böðvar hefur nú játað að
hafa myrt Sherry Prather. Var
hann dæmdur í rúmlega 20 ára
fangelsi án möguleika á reynslu
lausn.
„Loks get ég hvílst og sagt
að dóttir mín sé hjá æðri mátt
arvöldum,“ sagði Norma Ellis,
móðir Sherry, eftir að dómur var
kveðinn upp:
„Þú getur ekki fyllt upp í
tómarúmið í hjartanu.“
Norma segir ástæðu þess að
Magni drap Sherry enn vera
óljósa. „Hann hefur sagt svo
margar mismunandi sögur að
yfir völd vita ekki enn hvaða út
skýring er sú rétta. Ég tel að hann
hafi ætlað að myrða einhvern
þetta kvöld og hún varð
fyrir valinu.“
Þrátt fyrir að vita ekki
að fullu hið sanna í málinu
er fjölskylda Sherry sátt og
getur nú horft fram á veg
inn. Strax eftir uppkvaðn
inguna hélt Norma á stað
inn þar sem jarðneskar
leifar dóttur hennar fund
ust til að kveðja hana í síð
asta sinn:
„Ég sagði henni að nú
gæti hún loks hvílst og það
yrði allt í lagi með okkur,“
sagði Norma og bætti við:
„Og ég myndi hitta hana
aftur síðar. Ég lét hana líka
vita hversu mikið ég elskaði
hana.“
Seinasta sólarlagið
Sara stofnaði Facebooksíðu
til að vekja athygli á stöðu
Magna. Þar er að finna skila
boð frá börnum hans en þau
eru fimm talsins. Þá deildi Sara
myndum frá heimili þeirra, af
dýrum og börnum. Þar var einnig
að finna ljósmynd af síðasta sól
arlaginu sem Magni sá sem frjáls
maður. Áður en Magni Böðvar
játaði glæpinn birtu Sara og börn
Magna hvatningarorð á síðunni.
„Hundarnir okkar geta ekki
beðið eftir að fá þig heim. Þau
annaðhvort bíða fyrir utan eða
við bílskúrsdyrnar. Börnin okkar
sakna þín og elska þig. […] Við
munum aldrei gefast upp við
að reyna að sanna sakleysi þitt.
Vertu jákvæður ástin mín. Ég
elska þig,“ segir í einum skila
boðunum.
„Ég veit þú gerðir ekki það
sem þú ert sakaður um pabbi,“
skrifaði ungur sonur Magna á
stuðningssíðuna. „Þú ert ekki
þannig manneskja. Þú ert góður
og ástríkur. Ég veit að þú mynd
ir aldrei myrða aðra manneskju
vitandi að þú ættir fimm börn og
myndir ekki vilja missa okkur. Ég
elska þig pabbi,“ bætti hann við.
„Pabbi, við styðjum þig öll og
við vitum að þessar ásakanir eru
kjaftæði. Þeir vilja koma sökinni
á þig en þegar þú kemur heim
getum við öll gleymt þessu máli,“
skrifaði annar sonur Magna.
Loks réttlæti
Fjölskylda Sherry stofnaði einnig
síðu á Facebook en markmið
hennar var af öðrum toga – rétt
læti fyrir hina tveggja barna móð
ur. Sex árum síðar fagnaði fjöl
skyldan að Magni hefði verið
dæmdur.
„Loksins réttlæti eftir löng sex
ár,“ sagði önnur dóttir Sherry.
„Nú getur hann ekki skaðað
neinn annan,“ bætti amma henn
ar við.
„Við söknum þín mamma og
við munum aldrei gefast upp á að
réttlætinu verði fullnægt,“ sagði
dóttir Sherry.
„Mæðradagurinn hefur síðustu
ár reynst erfiður fyrir fjölskylduna,“
sagði önnur dóttir Sherry. Amma
átti eina dóttur og hún var tekin frá
okkur og ég missti mömmu mína.
Verið þakklát fyrir að mamma ykk
ar sé til staðar til að nöldra í ykk
ur, hafa áhyggjur og styðja ykkur í
gegnum það sem þið eruð að kljást
við. Það eru litlu hlutirnir sem ég
sakna þegar hún er farin. Metið
mömmu ykkar að verðleikum og
elskið hana skilyrðislaust líkt og
hún elskar ykkur. Sum okkar eigum
enga mömmu lengur og mynd
um gera allt til að fá hana aftur.
Til hamingju með mæðradaginn,
mamma.“ n
„Ég
veit
þú gerðir
ekki það
sem þú ert
sakaður
um pabbi
Sara barðist fyrir því að að frelsa Magna Hefur hún alltaf haldið fram sakleysi hans.
Norma ásamt dóttur sinni en
Sherry var hennar eina barn.
Sherry
Sherry ásamt
dætrum sínum,
Mandy og Britney,
sem sakna móður
sinnar á hverjum
degi.