Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 13
13. apríl 2018 FRÉTTIR 13 Magna. Sagði hún að Magni hefði játað fyrir henni glæp­ inn. Magni var handtek­ inn en sem fyrr neit­ aði hann sök. Móðir Sherry sagði við fjöl­ miðla eftir hand­ tökuna: „Ég og tvær dætur hennar höfum syrgt og beðið til æðri máttarvalda að réttlætinu yrði fullnægt.“ Síðan talaði Norma beint til dóttur sinnar: „Við elskum þig af öllu hjarta og biðjum þess að réttlætinu verði fullnægt svo þú get­ ir hvílt í friði. Ég sendi þér alla mína ást á hverjum ein­ asta degi. Ekki gleyma hversu mikið þú ert elskuð. Við tölum um þig á hverj­ um degi. Ég elska þig svo mik­ ið. Ástar­ kveðjur, þín mamma.“ Fæddur í Bandaríkjunum Magni Böðvar er með tvöfald­ an ríkisborgara­ rétt en hann fæddist árið 1974 í Bandaríkjun­ um. Hann á ís­ lenskan föður en bandaríska móð­ ur. Í frétt á Stund­ inni var greint frá því að fimm ára gamall hafi Magni Böðvar flutt til Keflavíkur og búið hjá afa sínum og ömmu. Starfaði Magni meðal annars við vöruflutninga og bjó af og til á Íslandi til ársins 2010 en settist það ár að í Bandaríkjunum eftir að faðir hans lést. Fréttablaðið greindi frá í um­ fjöllum árið 2016 að Magni hefði ekki efni á að ráða sér lögmann. Þá kom þar einnig fram að hann hefði árið 1996 verið dæmdur í ellefu mánaða fangelsi fyrir inn­ brot og þjófnað auk þess sem hann hefur verið sakfelldur fyrir þrjú umferðarlaga­ brot. Fyrrverandi í hefndarhug Magni hafði ávallt haldið fram sak­ leysi sínu. Unnusta hans, Sara, taldi að ákæran væri hefndaraðgerð af hálfu fyrrverandi eiginkonu hans. Fullyrti Sara að eiginkonan fyrrverandi og besti vinur henn­ ar hafi þegið þrjú þúsund Banda­ ríkjadali fyrir að bendla Magna við morðið. „Hún kom einungis fram þegar verðlaun voru boðin fyrir upplýsingar sem myndu leiða til handtöku, ekki sakfellingar, í málinu,“ sagði Sara í samtali við Fréttablaðið í nóvember 2016. Í samtali við Stundina sagði hún: „Þeir tóku DNA af fötunum hans, mótorhjólinu og rúminu sem hann svaf í. Hann var yfir­ heyrður tvisvar þá og síðan sleppt því lögreglan hafði engin sönnunargögn sem tengdu hann við morðið.“ Í gögnum lögreglu kemur fram að Magni hafi smám saman breytt smáatriðum í sögu sinni frá því að hann var yfirheyrður fyrst árið 2012. Sara sagði enn fremur: „Ég veit í hjarta mínu að hann er saklaus […] Ég hef verið með honum í þrjú ár og aldrei fundist ég vera óörugg. Hann setur þarf­ ir annarra framar sínum eigin og trúir ekki á ofbeldi gegn konum. Hann er verndari. Hann styrk­ ir þurfandi fjölskyldur og heldur dyrum opnum fyrir öðrum. Hann reynir alltaf að fá fólk til að brosa og elskar að verja tíma með börnunum.“ Elskaði hana af öllu hjarta Norma tjáði sig ítrekað við fjölmiðla fyrir dómsuppkvaðn­ inguna. Felldi hún tár í samtali við fréttamann en léttirinn var mikill. „Á hverri einustu nóttu hugs­ aði ég um hver örlög dóttur minnar hefðu verið. Lá hún þarna og þjáðist. Hefði ég getað bjargað lífi hennar hefðum við fundið hana fyrr,“ sagði Norma og bætti við: „Hún var einkabarnið mitt og ég elskaði hana af öllu hjarta. Ég mun aldrei komast yfir þetta. Ég vona að Magni fái þyngstu refs­ ingu sem er í boði vegna þess að hann rústaði fjölskyldunni minni. Hann reif úr okkur hjartað.“ Játning Magni Böðvar hefur nú játað að hafa myrt Sherry Prather. Var hann dæmdur í rúmlega 20 ára fangelsi án möguleika á reynslu­ lausn. „Loks get ég hvílst og sagt að dóttir mín sé hjá æðri mátt­ arvöldum,“ sagði Norma Ellis, móðir Sherry, eftir að dómur var kveðinn upp: „Þú getur ekki fyllt upp í tómarúmið í hjartanu.“ Norma segir ástæðu þess að Magni drap Sherry enn vera óljósa. „Hann hefur sagt svo margar mismunandi sögur að yfir völd vita ekki enn hvaða út­ skýring er sú rétta. Ég tel að hann hafi ætlað að myrða einhvern þetta kvöld og hún varð fyrir valinu.“ Þrátt fyrir að vita ekki að fullu hið sanna í málinu er fjölskylda Sherry sátt og getur nú horft fram á veg­ inn. Strax eftir uppkvaðn­ inguna hélt Norma á stað­ inn þar sem jarðneskar leifar dóttur hennar fund­ ust til að kveðja hana í síð­ asta sinn: „Ég sagði henni að nú gæti hún loks hvílst og það yrði allt í lagi með okkur,“ sagði Norma og bætti við: „Og ég myndi hitta hana aftur síðar. Ég lét hana líka vita hversu mikið ég elskaði hana.“ Seinasta sólarlagið Sara stofnaði Facebook­síðu til að vekja athygli á stöðu Magna. Þar er að finna skila­ boð frá börnum hans en þau eru fimm talsins. Þá deildi Sara myndum frá heimili þeirra, af dýrum og börnum. Þar var einnig að finna ljósmynd af síðasta sól­ arlaginu sem Magni sá sem frjáls maður. Áður en Magni Böðvar játaði glæpinn birtu Sara og börn Magna hvatningarorð á síðunni. „Hundarnir okkar geta ekki beðið eftir að fá þig heim. Þau annaðhvort bíða fyrir utan eða við bílskúrsdyrnar. Börnin okkar sakna þín og elska þig. […] Við munum aldrei gefast upp við að reyna að sanna sakleysi þitt. Vertu jákvæður ástin mín. Ég elska þig,“ segir í einum skila­ boðunum. „Ég veit þú gerðir ekki það sem þú ert sakaður um pabbi,“ skrifaði ungur sonur Magna á stuðningssíðuna. „Þú ert ekki þannig manneskja. Þú ert góður og ástríkur. Ég veit að þú mynd­ ir aldrei myrða aðra manneskju vitandi að þú ættir fimm börn og myndir ekki vilja missa okkur. Ég elska þig pabbi,“ bætti hann við. „Pabbi, við styðjum þig öll og við vitum að þessar ásakanir eru kjaftæði. Þeir vilja koma sökinni á þig en þegar þú kemur heim getum við öll gleymt þessu máli,“ skrifaði annar sonur Magna. Loks réttlæti Fjölskylda Sherry stofnaði einnig síðu á Facebook en markmið hennar var af öðrum toga – rétt­ læti fyrir hina tveggja barna móð­ ur. Sex árum síðar fagnaði fjöl­ skyldan að Magni hefði verið dæmdur. „Loksins réttlæti eftir löng sex ár,“ sagði önnur dóttir Sherry. „Nú getur hann ekki skaðað neinn annan,“ bætti amma henn­ ar við. „Við söknum þín mamma og við munum aldrei gefast upp á að réttlætinu verði fullnægt,“ sagði dóttir Sherry. „Mæðradagurinn hefur síðustu ár reynst erfiður fyrir fjölskylduna,“ sagði önnur dóttir Sherry. Amma átti eina dóttur og hún var tekin frá okkur og ég missti mömmu mína. Verið þakklát fyrir að mamma ykk­ ar sé til staðar til að nöldra í ykk­ ur, hafa áhyggjur og styðja ykkur í gegnum það sem þið eruð að kljást við. Það eru litlu hlutirnir sem ég sakna þegar hún er farin. Metið mömmu ykkar að verðleikum og elskið hana skilyrðislaust líkt og hún elskar ykkur. Sum okkar eigum enga mömmu lengur og mynd­ um gera allt til að fá hana aftur. Til hamingju með mæðradaginn, mamma.“ n „Ég veit þú gerðir ekki það sem þú ert sakaður um pabbi Sara barðist fyrir því að að frelsa Magna Hefur hún alltaf haldið fram sakleysi hans. Norma ásamt dóttur sinni en Sherry var hennar eina barn. Sherry Sherry ásamt dætrum sínum, Mandy og Britney, sem sakna móður sinnar á hverjum degi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.