Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 16
16 13. apríl 2018FRÉTTIR ÖRUGGAR VEGGFESTINGAR MEÐ LÆSINGU hjolalausnir.is Þ að er óhætt að segja að DV sé á ferð og flugi um heim­ inn þessa dagana en frétt blaðsins frá 28. mars síðast­ liðnum um listakonu að nafni Nara Walker, sem beit af tungu eigin­ manns síns, hefur fengið mikla athygli í erlendum fjölmiðlum. Stórir jafnt sem smáir miðlar í að minnsta kosti fjórum heimsálfum hafa fjallað um málið á fréttasíðum en ljósmynd DV hefur einnig ratað á forsíðu erlends dagblaðs. Sagði tungubitið hafa verið ósjálfráð viðbrögð Nara hlaut eins árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. mars fyrir líkamsárás og stórfellt ofbeldisbrot í nánu sambandi. Málsatvik voru þau að í nóv­ ember árið 2017 veittist hún að eiginmanni sínum og beit tungu hans í sundur. Einnig veitt­ ist hún að konu sem var gestur á heimili hjón­ anna. Nara hyggst áfrýja dómnum og segir að bitið hafi verið ósjálf­ ráð viðbrögð. Jafnframt segist hún hafa verið beitt heimilisofbeldi af hálfu eiginmanns síns um ára­ langt bil. DV ræddi við Nöru, sem er fædd árið 1990 og frá Ástralíu, sem sagð­ ist hafa sannanir fyrir máli sínu. Hún flutti til Íslands árið 2016 þegar eiginmanni hennar, sem er franskur, bauðst tímabundið starf. Hún lýsti sinni hlið og sagðist vera í mjög slæmri félagslegri stöðu á Íslandi nú og hafa verið heimilislaus um tíma. „Ég ætlaði aldrei að meiða neinn, þetta voru bara mín viðbrögð. Ég hafði ekki hugmynd um að það væri hægt að bíta tunguna úr einhverjum.“ Fyrst Ástralía, svo heimurinn Ástralskir fjölmiðlamenn kveiktu á perunni þegar frétt um samlanda þeirra birtist. Fyrsti ástralski miðillinn til að segja frá var The Courier Mail sem á sér 172 ára sögu og er fjórði mest lesni miðillinn í landinu. Sunshine Daily Coast sem er stað­ bundið dagblað í Queensland, heimafylki Nöru, birti frétt degi síðar og þar var hún sett á forsíðu. Í báðum tilvikum var vitnað í frétt DV sem heimild. Fleiri ástralskir miðlar birtu fréttina um Nöru, þar á meðal vefmiðlarnir Nine, SBS og The Sydney News. Síðan fór fréttin á frekara flug. Í Bretlandi fjallaði The Daily Mail um málið en miðillinn er einn sá rótgrónasti í þarlendri fjöl­ miðlaflóru, með næstmest lesna dagblað og þriðja mest lesna vef­ inn. Kínverjar fengu einnig að frétta af raunum Nöru og eigin­ manns hennar í gegnum miðil­ inn Apple Daily sem starfar bæði í Hong Kong og Taívan. Ítalir fengu fréttirnar í Libero, einu af stærstu dagblöðum landsins. Þá birti kanadíska vefritið Vice, sem er mikið lesið um allan heim, frétt um málið 11. apríl, þar sem sjö sinnum var vitnað í DV. n DV í fjórum heimsálfum: Frétt um Nöru Walker sem beit af tungu eiginmanns síns vekur athygli Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Kanadíski vefmiðillinn Vice er mikið lesinn um heim allan Daily Mail er eitt vinsælasta götublað Bretlands Ítalska blaðið Libero er mikið lesið, sérstaklega í Langbarðalandi Ástralski vefmiðillinn Nine Apple Daily er gefið út í Hong Kong og Taívan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.