Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 16
16 13. apríl 2018FRÉTTIR
ÖRUGGAR
VEGGFESTINGAR
MEÐ LÆSINGU
hjolalausnir.is
Þ
að er óhætt að segja að DV
sé á ferð og flugi um heim
inn þessa dagana en frétt
blaðsins frá 28. mars síðast
liðnum um listakonu að nafni Nara
Walker, sem beit af tungu eigin
manns síns, hefur fengið mikla
athygli í erlendum fjölmiðlum.
Stórir jafnt sem smáir miðlar í að
minnsta kosti fjórum heimsálfum
hafa fjallað um málið á fréttasíðum
en ljósmynd DV hefur einnig ratað
á forsíðu erlends dagblaðs.
Sagði tungubitið hafa verið
ósjálfráð viðbrögð
Nara hlaut eins árs fangelsisdóm í
Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13.
mars fyrir líkamsárás og stórfellt
ofbeldisbrot í nánu sambandi.
Málsatvik voru þau að í nóv
ember árið 2017 veittist hún
að eiginmanni sínum og beit
tungu hans í sundur. Einnig veitt
ist hún að konu sem var gestur
á heimili hjón
anna. Nara hyggst áfrýja
dómnum og segir að
bitið hafi verið ósjálf
ráð viðbrögð. Jafnframt
segist hún hafa verið beitt
heimilisofbeldi af hálfu
eiginmanns síns um ára
langt bil.
DV ræddi við Nöru,
sem er fædd árið 1990 og
frá Ástralíu, sem sagð
ist hafa sannanir fyrir
máli sínu. Hún flutti til
Íslands árið 2016 þegar
eiginmanni hennar,
sem er franskur, bauðst
tímabundið starf. Hún lýsti
sinni hlið og sagðist vera í
mjög slæmri félagslegri
stöðu á Íslandi nú og hafa
verið heimilislaus um tíma. „Ég
ætlaði aldrei að meiða neinn,
þetta voru bara mín viðbrögð.
Ég hafði ekki hugmynd um að
það væri hægt að bíta tunguna
úr einhverjum.“
Fyrst Ástralía, svo heimurinn
Ástralskir fjölmiðlamenn
kveiktu á perunni þegar frétt
um samlanda þeirra birtist.
Fyrsti ástralski miðillinn til að
segja frá var The Courier Mail
sem á sér 172 ára sögu og er fjórði
mest lesni miðillinn í landinu.
Sunshine Daily Coast sem er stað
bundið dagblað í Queensland,
heimafylki Nöru, birti frétt degi
síðar og þar var hún sett á forsíðu.
Í báðum tilvikum var vitnað í frétt
DV sem heimild. Fleiri ástralskir
miðlar birtu fréttina um Nöru, þar
á meðal vefmiðlarnir Nine, SBS og
The Sydney News.
Síðan fór fréttin á frekara flug.
Í Bretlandi fjallaði The Daily Mail
um málið en miðillinn er einn
sá rótgrónasti í þarlendri fjöl
miðlaflóru, með næstmest lesna
dagblað og þriðja mest lesna vef
inn. Kínverjar fengu einnig að
frétta af raunum Nöru og eigin
manns hennar í gegnum miðil
inn Apple Daily sem starfar bæði
í Hong Kong og Taívan. Ítalir
fengu fréttirnar í Libero, einu af
stærstu dagblöðum landsins. Þá
birti kanadíska vefritið Vice, sem
er mikið lesið um allan heim, frétt
um málið 11. apríl, þar sem sjö
sinnum var vitnað í DV. n
DV í fjórum heimsálfum:
Frétt um Nöru
Walker sem
beit af tungu
eiginmanns síns
vekur athygli
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kanadíski
vefmiðillinn
Vice er mikið
lesinn um
heim allan
Daily Mail er eitt vinsælasta
götublað Bretlands
Ítalska blaðið Libero er
mikið lesið, sérstaklega
í Langbarðalandi
Ástralski
vefmiðillinn
Nine
Apple
Daily er
gefið út í
Hong Kong
og Taívan