Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 18
18 13. apríl 2018FRÉTTIR
S
jálfstæðisflokkurinn er
vinsælastur allra flokka í
Reykjavík á samfélagsmiðl-
um en flokkarnir þrír úr
núverandi meirihluta sem bjóða
fram í borgarstjórnarkosningun-
um í vor ná til fleiri. Allt stefn-
ir í spennandi kosningabaráttu í
borginni, allt bendir til að tólf eða
jafnvel fleiri flokkar verði í fram-
boði. Samkvæmt nýjustu könnun-
um er mjög tvísýnt hvort núver-
andi meirihluti haldi velli eða ekki.
DV fór yfir fylgi flokkanna, Reykja-
víkurfélaga flokkanna og oddvita
á samfélagsmiðlum og reiknaði
út í samfélagsmiðlavísitölu til að
fá annars konar yfirlit yfir stöðu
flokkanna í borginni.
Til að fá út samfélagsmiðla-
vísitöluna voru reiknaðir saman
fylgjendur flokkanna á Facebook
og Twitter, fjöldi þeirra sem eru í
hópum flokkanna í Reykjavík og
hversu margir fylgja oddvitum
flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn
er með rúmlega 14 þúsund fylgj-
endur á Facebook en oddvitinn,
Eyþór Arnalds, er einnig sterkur á
bæði Facebook og Twitter. Sam-
fylkingin er öllu veikari á Face-
book en vísitalan tekur stórt stökk
þegar tekið er mið af þeim rúm-
lega 10 þúsund sem fylgja Degi B.
Eggertssyni á Twitter.
Píratar eru mjög sterkir á sam-
félagsmiðlum, þá sérstaklega
Twitter miðað við Samfylkinguna
og Sjálfstæðisflokk. Eru það helst
tiltölulega fáir fylgjendur oddvit-
ans, Dóru Bjartar Guðjónsdóttur,
sem draga flokkinn niður. Staðan
er öfug hjá Miðflokknum þar sem
oddvitinn, Vigdís Hauksdóttir, er
með fleiri persónulega fylgjendur
en flokkurinn sjálfur. Sósíalistar
koma vel út, byggir það aðallega
á þeim rúmlega 9 þúsund manns
sem eru í Facebook-hópnum
Sósíal istaflokkur Íslands. Þess má
geta að sá hópur var upphaflega
stofnaður í kringum hugmyndina
um að gera Ísland að fylki í Noregi.
Ef ekki væri fyrir fjöldann í hópn-
um væri vísitala Sósíalistaflokks-
ins talsvert lægri.
Framsóknarflokkurinn, Við-
reisn og Flokkur fólksins eiga mest
að þakka miklum fjölda sem fylgir
flokkunum á Facebook en þær síð-
ur hafa verið mikið notaðar í tíð-
um þingkosningum síðustu miss-
eri. Höfuðborgarlistinn er með
nýja Facebook-síðu og er ekki virk-
ur á Twitter, það skýrir lága sam-
félagsmiðlavísitölu framboðsins.
Íslenska þjóðfylkingin er með rúm-
lega 1.300 manns í Facebook-hópi
flokksins og fáa fylgjendur á sam-
félagsmiðlum, oddviti flokksins er
heldur ekki virkur á samfélagsmiðl-
um. Þess má geta að Facebook-síð-
unni Getur þessi slitni skór fengið
fleiri læk en íslenska þjóðfylkingin?
hefur tekist sitt ætlunarverk og er
með tvöfalt hærri samfélagsmiðla-
vísitölu en Íslenska þjóðfylk-
ingin og rúmlega það.
Samkvæmt
samfélags-
miðlavísi-
tölunni er
meirihlutinn
í borginni
fallinn ef
Fram-
sóknar-
flokk-
urinn
nær inn
í borg-
arstjórn
og þarf
því að
reiða
sig á stuðning Viðreisnar eða
Flokks fólksins til að ná yfir sam-
anlagt fylgi Sjálfstæðisflokks, Mið-
flokks og Framsóknarflokks. En ef
Framsóknarflokkurinn nær ekki
inn í borgarstjórn snýst dæmið
við og meirihlutinn heldur velli,
að minnsta kosti þegar kemur að
samfélagsmiðlum. n
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Samfélagsmiðlavísitala flokkanna í Reykjavík
MEIRIHLUTINN STÆRSTUR NEMA FRAMSÓKN NÁI INN
Samfylkingin
861 fylgir Reykjavíkurfélaginu á Facebook
566 fylgja Reykjavíkurfélaginu á Twitter
6.702 fylgja flokknum á Facebook
1.757 fylgja flokknum á Twitter
Dagur B. Eggertsson
4.999 vinir á Facebook
2.900 fylgjendur á Facebook
9.690 fylgjendur á Twitter
Heiða Björg Hilmisdóttir, 2. sæti
2.479 fylgjendur á Facebook
Sjálfstæðisflokkurinn
3.115 fylgja Reykjavíkurfélaginu á Facebook
14.522 fylgja flokknum á Facebook
2.501 fylgir flokknum á Twitter
Eyþór Arnalds
4.905 vinir á Facebook
2.600 fylgjendur á Facebook
536 fylgjendur á Twitter
Hildur Björnsdóttir, 2.
sæti
647 fylgjend-
ur á Facebook