Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Qupperneq 24
24 UMRÆÐA
Sandkorn
13. apríl 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Þ
að getur verið fjörlegt verk
efni að gefa út veglegt helg
arblað í viku hverri. Mark
mið okkar er að blaðið sé
stútfullt af fjölbreyttu efni og eins
og gengur þá reynum við blaða
mennirnir að skipta með okkur
verkum. Ýmislegt kemur upp
á í þessum bransa og því þurfa
blaðamenn að bregða sér í allra
kvikinda líki og skrifa um allt milli
himins og jarðar. Á dögunum
brá blaðamaðurinn og sagn
fræðingurinn Kristinn H. Guðna
son sér í stutt frí og þá þurftu aðrir
að skrifa í Tímavélina okkar sem
hann hefur gert svo listilega vel
undanfarna mánuði.
Gapandi auð síða blasti við
þegar skil í prentsmiðjuna nálg
uðust óðfluga. Ég hafði lofað að
finna eitthvert efni og að sjálf
sögðu var ég gjörsamlega and
laus. Í örvæntingu minni mundi
ég skyndilega eftir sögu sem
tengdafaðir minn, Guðmundur
Ásgeirsson, hafði sagt mér fyrir
mörgum árum um íslenskan
togara, Frey RE1, sem varð vett
vangur vinsællar útvarpsstöðvar
í Bretlandi. Hann þekkti sögu
skipsins vel enda hafði hann verið
stýrimaður þess um tíma.
Á methraða fann ég nokkrar
gamlar greinar á timarit.is sem
og Wikipediusíðu útvarpsstöðv
arinnar og vann stutta grein um
skipið upp úr því. Ég hafði engan
tíma til að hringja í tengdaföð
ur minn en var viss um að hann
hefði gaman af því að lesa þessa
stuttu grein þegar hún birtist á
prenti.
Sama dag og blaðið kom út þá
var tengdamóður minni, Ólöfu
Guðfinnsdóttur, boðið í kvöldmat.
Hún var ein á ferð og ástæðan var
sú að Guðmundur hafði brugðið
sér í stutta helgarferð til útlanda
með skömmum fyrirvara, eitt
hvað sem ég hafði ekki hugmynd
um. „Það voru einhver samtök úti
í Bretlandi sem vildu endilega fá
hann út til þess að tala um frægt
skip sem hann var stýrimaður á.
Það verður víst allt kvikmynd
að í bak og fyrir til þess að varð
veita sögu skipsins,“ sagði Ólöf við
matarborðið. Ég sýndi henni þá
nýprentað eintak blaðsins og það
sem eftir var kvöldsins ræddum
við um tilviljanir og hvað þær geta
verið stórkostlegar. n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Þú skalt ekki ljúga
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, virtist standa keik í
drottningarviðtali í sjónvarps
þættinum Kveik sem sýndur
var á RÚV í vikunni. Talaði
Agnes hún meðal annars um
að fara í átak til að byggja upp
traust og fyrirbyggja árásir á sig
og þjóðkirkjuna. „Ég kalla það
árásir þegar það er verið að tala
um eitthvað sem er ekki rétt,
það er verið hreinlega að ljúga
upp á biskupinn og kirkjuna,“
sagði Agnes. Í sama viðtali seg
ir Agnes að hún hafi ekki beðið
um launahækkun, sem eru
athyglisverð ummæli því að í
desember 2015 sendi Agnes
bréf á kjararáð þar sem hún
biður um launahækkun. Er það
svona sem á að hefja átak kirkj
unnar til að byggja upp traust?
Með því að fella niður boðorðið
„Þú skalt ekki ljúga“?
Fyrirsjáanleg læti
Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðis ráðherra hefur hafið
baráttu sína gegn einkarekstri
í heilbrigð
isþjónustu
með því að
hætta fjár
veitingum til
Hugarafls.
Markmið
ið er að færa
geðheil
brigðisþjón
ustuna yfir til ríkisins, markmið
sem andstæðingar einka
reksturs í heilbrigðisþjónustu
ættu að vera ánægðir með.
Notendur þjónustunnar og
aðstandendur eru skiljanlega
hræddir við framtíðina enda
miklu þægilegra að geta geng
ið hvenær sem er inn fyrir dyr
Hugarafls í stað þess að bíða
eftir tilvísununum og plássi hjá
hinu opinbera. Ef þetta er stað
an í dag, þá er vel hægt að sjá
fyrir sér lætin sem verða þegar
heimsóknir í Domus Medica,
Orkuhúsið og á Læknavaktina
verða ekki lengur niðurgreidd
ar.
É
g er alveg á móti algjöru
banni við notkun snjalltækja
í skólum þar sem ég tel það
allt of harða og óþarfa að
gerð. Ég væri þó alveg til í að setja
einhverjar viðmiðunarreglur til að
takmarka notkun þessara tækja
og kenna börnum að umgangast
þau af ábyrgð. Mér finnst
reyndar að við hin full
orðnu gætum lært það
betur líka.
S
njallsímanotkun barna er
vaxandi vandamál hér á
landi sem og annars staðar.
Hér eru engar samræmdar
reglur til um þetta hjá borginni,
meðan skólar í Svíþjóð og Frakk
landi eru þegar byrjaðir á slíkum
bönnum. Notkun snjallsíma ýtir
undir kvíða og óöryggi fjölda
barna, við höfum dæmi um
ljótt einelti þar sem snjall
síminn er notaður.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, óháður borgarfulltrúi Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi Pírata
MEÐ OG Á MÓTI BANN VIÐ SNJALLSÍMUM Í GRUNNSKÓLUM
MEÐ Á MÓTI
Spurning vikunnar Hvað óttast þú mest?
„Köngulær“
Alexander Sigurðarson
„Ástvinamissi“
Guðrún Axelsdóttir
„Höfnun“
Alexander Þór Guðnason
„Ætli það sé ekki bara drukknun“
Elísabet María Ragnarsdóttir
Skipið var í íslenskri eigu í rúm þrjú ár en lauk
viðburðaríkum ferli sínum sem vettvangur
sjóræningjaútvarpsstöðvar
Togaratilviljun