Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 31
13. apríl 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Vorverkin
Björk garðaþjónusta er í eigu Jóhannesar S. Guðbjörnsson-ar, skrúðgarðyrkjumeistara.
Hann hefur starfað við garðyrkju frá
árinu 1968. Fyrirtækið sér um alla
almenna garðaumhirðu.
Jóhannes segir mikilvægt að
huga vel að vali á plöntum sem
henta aðstæðum og því hvernig
hellur, grjót, skjólveggir eða sólpallur
passi garðinum. Hann segir jafn-
framt:
„Fólk áttar sig stundum ekki
hversu lítið þarf að gera til að gera
góðan garð betri. Verk eru marg-
þætt og nauðsynlegt að útskýra
fyrir garðeigendum þætti sem liggja
ekki í augum uppi. Samskiptin okkar
á milli eru skemmtilegt og ögrandi
lærdómsferli.“
Öll verk eru unnin fagmannlega
eftir óskum viðskiptavina og megin-
áhersla er lögð á góðan frágang
á hverju verki, hvort sem um er að
ræða verk fyrir einstaklinga, húsfé-
lög, fyrirtæki eða sendiráð.
„Gott verk er þegar garðeigandinn
er ánægður og garðyrkjumaðurinn
er stoltur af verkinu,“ segir Jóhannes.
Verkþættir
Viðhald og umhirða: Runnaklipp-
ing, trjásnyrting, trjáfelling, sláttur,
mosatæting, beðagerð, áburður og
eitrun.
Nýframkvæmdir: Garðahönnun,
landmótun, jarðvegsskipti, hellulögn,
hleðsla, kantsteinn, þrep, náttúru-
grjóthleðsla, túnþökulögn, beðagerð,
gróðursetning, sólpallar, girðingar
og heitir pottar.
Allar frekari upplýsingar má finna
á heimasíðu Bjarkar garðaþjónustu,
gardyrkjumeistari.is, og í síma 846-
8643/856-9600. Fyrirtækið hefur
40 ára reynslu og getur prýtt sig af
fjölda vel unninna verka.
Þegar garðeigandinn er
ánægður er verkið gott
BJÖRk GARðAþJóNuStA: