Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 35
13. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Vorverkin
Toppgæði og
persónuleg þjónusta
Litríkur er málningarþjón-ustufyrirtæki sem hefur starfað frá árinu 2011.
Litríkur kappkostar að bjóða
upp á gæðaþjónustu sem
jafnast á við stór fyrirtæki í
greininni en getur jafnframt
veitt mun persónulegri þjón-
ustu þar sem fyrirtækið er lítið:
„Við erum bara sex sem
störfum hér, allt ýmist mál-
arameistarar eða -sveinar, og
við erum allir íslenskir. Það eru
nánast engin takmörk fyrir því
hvað við tökum að okkur stór
eða smá verkefni því í stærri
verkefnum eigum við gott
samstarf við aðra málara-
meistara. Við getum líka veitt
heildarlausnir þar sem þarf að
gera fleira en að mála, aðal-
lega múrverk og smíðar, því við
erum í góðu samstarfi við mjög
trausta múrarameistara og
húsasmíðameistara. En skilyrði
fyrir þessu er þó að verkefnið í
heild sé að meirihluta málun,“
segir Gísli Guðmundsson, mál-
arameistari og annar eigandi
Litríks, en hinn eigandinn er
Daði Már Ingvarsson.
Fagfélögin vernda
verkkaupanda
Gísli segir mikilvægt að þeir
sem þurfa á málningarvinnu
að halda leiti til fagmanna
og sem tryggi gæði og sé
trygging gegn tjóni. „Við
hvetjum fólk eindregið til að
hafa samband við meist-
arafélögin sjálf, þau eru öll
með heimasíður og bjóða
verkkaupendum að óska
eftir tilboðum. Málarameist-
arafélagið er með yfir 100
fullgilda meðlimi með meist-
araréttindi sem eiga tilkall
til ábyrgðarsjóðs félagsins
sem í raun styður við bakið á
verkkaupanda. Ef verkkaupi
er ósáttur við vinnubrögð
löggilds félaga getur hann
leitað til meistarafélagsins
og fengið úttekt á vinnunni.
Eftirfylgni innan félagsins er
því mjög sterk og menn verða
að standa sig.“
Litríkur tekur að sér allt
frá málun einbýlishúsa og
sumarhúsa einstaklinga upp
í þjónustu við húsfélög og lítil
og stór fyrirtæki. „Við höfum
meðal annars unnið stór ver-
kefni fyrir björgunarsveitirnar
og Símann en við vinnum
einna mest fyrir húsfélög,“
segir Gísli.
Það er mikið að gera hjá
Litríkum allt árið en eðlilega
er meira um innanhúsmálun
á veturna og utanhússmálun
á sumrin. Brátt rennur upp
tími utanhússmálunar og nú
er verið að vinna úr tilboðum.
„Við áskiljum okkur rétt til að
ganga úr opnum tilboðum
ef við fáum ekki svar innan
nokkurra vikna og bóka okkur
annars staðar. Frá þess-
um tímapunkti er það síðan
„fyrstur kemur, fyrstur fær“,“
segir Gísli en ljóst er að anna-
samt sumar er framundan
hjá Litríki við að fegra húsin
í bænum með fyrsta flokks
málningarvinnu.
Litríkur gerir ávallt föst
tilboð í verkefni þannig að
verkkaupandi hefur heildar-
upplýsingar um kostnað
áður en verk hefst. Tilboð-
in eru tilboðsbeiðanda að
kostnaðarlausu. Áhuga-
samir hafa ýmist samband
í gegnum vefsíðuna litrikur.
is eða hringja í síma 554-
5544. Ef áhugi er enn fyrir
hendi eftir þessi fyrstu kynni
mæla Litríkur og verkaup-
andi sér yfirleitt mót og ver-
kefnið er tekið út og metið.
Þannig hefst farsælt sam-
starf sem endar á því að
húseign hefur verið máluð
eða henni gerð önnur skil af
fagmennsku.