Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 37
13. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Vorverkin
TÍMARITIÐ SUMARHÚSIÐ OG GARÐURINN:
Ástríða fyrir sumrinu
og garðrækt
Vorið er annatími hjá Auði I. Ottesen, framkvæmda- og rit-stjóra tímaritsins Sumarhúsið
og garðurinn. Hún er í önnum við að
forsá í gróðurhúsinu þessa dagana
auk þess að halda námskeið í rækt-
un og sýningarhaldi. Í gróðurhúsinu
hennar eru vorlaukar og smáplöntur
af ýmsu kryddi og maturtum auk
fjölda sumarblóma sem teygja sig
upp úr moldinni og það er augljóst að
garðyrkja er hennar hjartans mál og
ástríða. Bæði í útgáfunni og garðin-
um að Fossheiði 1 á Selfossi.
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn
er glæsilegt 100 síðna blað sem kem-
ur út fimm sinnum á ári og er sneisa-
fullt af fróðleik og hagnýtum ráðum,
öllu sem viðkemur sumarhúsalífinu
og garðrækt. „Við höfum alltaf verið
lánsöm með samstarfsmenn, ég er
afar þakklát stórum hópi fagmanna
sem hafa unnið blaðið með okkur.
Með góðum pennum hefur blaðið
alltaf verið fjölbreytt og höfðar til
afar stórs hóps, langt út fyrir þá sem
eiga bústað eða garð,“ segir Auður
og bætir við að hún sé einnig afar
þakklát tryggum áskrifendum og
kaupendum blaðsins.
Hundraðasta tölublað væntanlegt
í haust
Auður hefur ritstýrt tímaritinu Sum-
arhúsið og garðurinn í 18 ár en saga
blaðsins nær aftur til ársins 1993.
Í haust verður útgáfu tölublaðs núm-
er 100 fagnað með viðeigandi hætti.
„Við erum búin að vera í þessu lengi,
Sumarhúsið og garðurinn byrjaði sem
dreifirit undir nafninu Sumarhúsið og
varð að áskriftariti þegar ég tók við
ritstjórn þess. Síðan þá hefur starf-
semin í kringum útgáfuna aukist og
auk blaðsins höfum við gefið út alls
níu bækur um garðyrkju og garða-
hönnun.“ Samhliða útgáfu hefur
Sumarhúsið og garðurinn staðið að
sýningum og útgáfu bóka sem eru
skyldueign fyrir hvern þann sem vill
sinna garðinum af metnaði, vandlega
myndskreyttar og kafað djúpt ofan í
viðfangsefnið.
Hafa kennt um 1.800 manns að
rækta
Árið 2009 bættist svo við metnaðar-
fullt námskeiðahald hjá Sumarhús-
inu og garðinum og hafa um 1.800
manns sótt námskeiðin þeirra í mat-
og kryddjurtarækt, ræktun ávaxta-
trjáa og berjarunna, moltugerð og
garðaskipulagi svo eitthvað sé nefnt.
„Við byrjuðum með námskeiðin strax
eftir kreppu og urðum fljótlega vör við
að áhugi á garðrækt, og sérstaklega
matjurtarækt, hafði aukist töluvert.
Við erum í dag með góða aðstöðu til
námskeiðahalds á Selfossi, kennum
verklega þáttinn í gróðurhúsunum.
En ég hef farið um allt land og kennt
og haldið erindi á fundum og veitt
ráðgjöf.“
Upplýsingar um námskeiðin
er hægt að nálgast á heimasíðu
Sumar hússins og garðsins, rit.is,
og Fésbókarsíðunni Sumarhúsið
og garðurinn. „Næstu námskeiðin
okkar eru kryddjurtanámskeið, annað
haldið í samvinnu við Kaffi Laugalæk í
Reykjavík, 16. apríl,
og hitt á Selfossi,
22. apríl. Í maí
erum við með
matjurtanám-
skeið og námskeið
í ræktun ætra
plantna og hrauk-
haugagerð.“
Auður flutti
á Selfoss fyrir
sex árum ásamt
manni sínum,
Páli Jökli Péturs-
syni, og þaðan
ritstýrir hún
blaðinu. „Undanfarin ár höfum við
verið að útbúa aðstöðu til námskeiða
og sýningarhalds á Selfossi. Er við
keyptum húsið í Fossheiðinni 2011 var
garðurinn í órækt, grasflötur framan
við húsið en illgresisfláki fyrir aftan.
Nú erum við komin með flottan garð
sem ég nota á námskeiðunum og þar
er aðstaða til að gera tilraunir með
mismunandi tegundir og ræktunar-
aðferðir. Ég er með tvö gróðurhús í
bakgarðinum, annað er upphitað, þar
sem ég forrækta og er með tómat-
plöntur á sumrin. Í hinu eru berja-
runnar og ávaxtatré sem eru í blóma
núna og góð aðstaða fyrir nemendur
til að athafna sig,“ segir hún.
Fyrir fjórum árum hafði Auður
frumkvæði að stofnun grenndar-
garðs á Selfossi þar sem bæjar-
búar rækta saman grænmeti. „Ég
held utan um grenndargarðinn en
bæjarfélagið sér um skráningu og
rukkar. Við erum nokkur sem ræktum
saman og er fé-
lagsskapurinn og
sköpunin þar mér
mikils virði. Þar er
ég að gera ýmsar
tilraunir í vistrækt
(permaculture)
og alltaf að prófa
nýjar tegundir.“
Boðið í garðinn og
upp á ástarpunga
Apríl er einn anna-
mesti mánuðurinn
hjá Auði. Sumar-
húsið og garðurinn
tekur þátt í fyrirtækjasýningu sum-
ardaginn fyrsta í Garðyrkjuskólanum
og er með í Vorgleði í Garðheimum
helgina 21.–22. apríl. Svo býður Auð-
ur áskrifendum og velunnurum heim
í Fossheiðargarðinn sunnudaginn
22. apríl . „Ég tek á móti gestum
fyrsta sunnudaginn á komandi sumri.
Verð með plöntusýningu, fræ til sölu
og býð upp á spjall um ræktun yfir
kaffibolla. Vinkona mín bakar fyrir
mig ástarpunga sem ég býð með
kaffinu. Á þessum tíma eru ávaxta-
trén í stærra gróðurhúsinu í blóma og
gróskulegt í því upphitaða þar sem
hundruð smáplantna af matjurtum
og blómplöntum eru að vaxa. Ég
vil hlúa að áskrifendum blaðsins og
velunnurum okkar með því að bjóða
þeim í garðinn og um leið koma hug-
myndum og þekkingu á framfæri.“
Sjá nánar á rit.is