Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 43
13. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Vorverkin
Fyrir betra
umhverfi
Umhverfisfyrirtækið Íslenska Gámafélagið var stofnað 1999. Tilgangurinn með stofnun
fyrirtækisins var að auka samkeppni
á því sviði atvinnulífsins sem snýr að
sorphirðu en með árunum hefur sífellt
meiri áhersla verið lögð á flokkun og
endurvinnslu. Hjá Íslenska Gámafé-
laginu starfa um 300 manns víða um
land.
Íslenska Gámafélagið leitast við
að bjóða viðskiptavinum sínum upp
á heildarlausn á flestum sviðum
umhverfisþjónustu. Það getur verið
allt frá því að bjóða upp á ráðgjöf á
sviði flokkunar og endurvinnslu, losun
úrgangs, gámaleiga, sölu flokkunarí-
láta og maíspoka, götusópun, snjó-
mokstur, garðsláttur ásamt því að
reka öflugustu véla- og tækjaleigu
landsins.
Ein tegund þeirrar umhverfisþjón-
ustu sem Íslenska Gámafélagið veitir
er götusópun og götuþvottur: „Við
tökum að okkur hreinsun bílastæða,
stíga og gangstétta, þ.e. bæði sópun
og þvott. Við bendum á mikilvægi
þess að þvo eftir að plan er sópað,
til þess að ryk og drulla losni örugg-
lega. Við erum bæði með götusópa,
gangstéttarsópa og vatnsbíla sem
leysa slík verk af hendi. Eins tökum
við að okkur grasslátt og erum
með öll tæki og tól til þess, svo sem
sláttutraktora og hallavélar. Við erum
líka í samstarfi við trausta verktaka
sem taka að sér málun og merkingar
á bílastæðum,“ segir Brynja Björg
Halldórsdóttir, markaðsstjóri Íslenska
Gámafélagsins.
Vorverkin allt frá krókgámum yfir í
moltugerð
„Margir nýta vorin til þess að hreinsa
út innréttingar, skipta um jarðveg
og fella tré en við erum með krók-
gáma af öllum stærðum, bæði opna
og lokaða, sem henta fullkomlega
undir slíkar framkvæmdir. Við
komum með gáminn heim
að dyrum, viðskiptavinurinn
fyllir hann, hringir í okkur þegar
hann er fullur og við komum og
sækjum hann. Þetta gæti ekki
verið þægilegra. Svo erum við
auðvitað með allar stærðir af
framhlaðningsgámum, tunnum
og körum fyrir allar tegundir
úrgangs,“ segir Brynja.
Íslenska Gámafélagið býður
síðan upp á sérstakar moltu-
gerðartunnur fyrir heimili, eða
eins og Brynja segir: „Fyrir þá
sem vilja leggja sig alla fram í
endurvinnslunni erum við með
sérstakar moltugerðartunnur
fyrir heimili. Í tunnuna fer allur matar-
úrgangur sem fellur til á heimilinu en
hann verður með tímanum að moltu
sem hægt er að nota sem áburð í
garðinn. Vorin henta sérlega vel til
allra garðverka og moltugerð er klár-
lega þar á meðal.“
Nánari upplýsingar er að finna á
greinargóðri vefsíðu Íslenska Gáma-
félagsins, www.igf.is og á Facebook-
síðu fyrirtækisins.
ÍSLENSKA GÁMAFÉLAGIÐ:
Brynja Björg Halldórsdóttir
Gámafélagið