Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 47
sport 4713. apríl 2018
7. sæti
Fjölnir
Ólafur Páll Snorrason er nýr þjálfari í Grafarvoginum
og hann skellir sér út í djúpu laugina. Ólafur var að-
stoðarþjálfari FH í eitt ár en er nú mættur í Grafarvog-
inn þar sem hann var áður spilandi aðstoðarþjálfari.
Fjölnir hefur litið vel út í vetur og liðið gæti komið á
óvart í sumar. Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl
Guðmundsson hafa snúið aftur heim eftir stutta dvöl í
Kaplakrika. Þeir eiga að styrkja Fjölnis mikið og koma
með hugarfar sigurvegarans í hópinn. Almarr Ormars-
son á einnig að styrkja liðið mikið. Í Grafarvogi hefur
vantað örlítið upp á stemminguna og hún þarf að vera í
lagi svo liðið nái flugi.
Lykilmaður - Bergsveinn Ólafsson
X-faktor - Birnir Snær Ingason
Þjálfari - Ólafur Páll Snorrason
Komn ir:
n Berg sveinn Ólafs son
n Guðmund ur Karl Guðmunds son
n Almarr Ormars son
n Arn ór Breki Ásþórs son
n Sig urpáll Mel berg Páls son
Farn ir:
n Lin us Ols son
n Fredrik Michal sen
n Mees Juni or Siers
n Marcus Sol berg í Vend syssel
n Boj an Stefán Lju bicic
n Ivica Dzol an
n Gunn ar Þór Guðmunds son
8. sæti
Grindavík
Eftir frábært tímabil í fyrra þar sem Grindavík var nýliði
í Pepsi-deildinni gæti árið í ár orðið erfiðara. Hver á að
skora mörkin? Það er spurningin sem Grindavík þarf
að svara í sumar. Maðurinn á bak við 19 mörk á síðustu
leiktíð og markakóngur Pepsi-deildarinnar, Andri Rún-
ar Bjarnason, er horfinn á braut og farinn í atvinnu-
mennsku. Hópur Grindavíkur var ekki breiður í fyrra og
það stefnir í að hann verði jafnvel minni í ár. Óli Stef-
án Flóventsson er áfram þjálfari liðsins en hann vann
kraftaverk á síðustu leiktíð með liðið, hann virðist vera
einn færasti þjálfari landsins.
Lykilmaður - Kristijan Jajalo
X-faktor - Jóhann Helgi Hannesson
Þjálfari - Óli Stefán Flóventsson
Komn ir:
n Aron Jó hanns son
n Jó hann Helgi Hann es son
Farn ir:
n Magnús Björg vins son
n Aron Freyr Ró berts son
n Gylfi Örn Öfjörð
n Mi los Zera vica
n Andri Rún ar Bjarna son
9. sæti
Fylkir
Fylkir er kominn aftur í deild þeirra bestu og ætl-
ar sér að byggja á sama grunni og kom liðinu upp úr
1. deildinni. Helgi Sigurðsson hefur bætt við Jonath-
an Glenn og Helga Val Daníelssyni í hóp sinn. Glenn er
ólíkindatól, hann gæti raðað inn mörkum en oftar en
ekki er hann ískaldur í markaskorun. Helgi Valur hef-
ur ekki spilað fótbolta síðustu ár og óvíst hvernig hann
kemur til leiks. Fylkir gæti sogast niður í fallbaráttu en
ef létt verður yfir Lautinni er allt hægt.
Lykilmaður - Ásgeir Börkur Ásgeirsson
X-faktor - Jonathan Glenn
Þjálfari - Helgi Sigurðsson
Komn ir:
n Jon ath an Glenn
n Helgi Val ur Daní els son
n Stefán Ari Björns son
Farn ir:
Ekki neinn
10. sæti
íBv
Kristján Guðmundsson er að hefja sitt annað tímabil í
Eyjum en í fyrra gustaði örlítið í kringum liðið. Krist-
jáni tókst hins vegar að halda liðinu uppi og gera það
að bikarmeistara. Kristján hefur fengið að breyta leik-
mannahópi ÍBV mikið, hann hefur losað sig við leik-
menn sem ekki höfðu trú á hugmyndum hans og fengið
inn nýja menn. Breytingarnar eru hins vegar mikl-
ar og það gæti tekið talsverðan tíma að smíða nýtt og
samkeppnishæft lið. Ekki eru merki um annað en að
ÍBV muni berjast um að halda sæti sínu í deildinni í ár,
líkt og þau síðustu.
Lykilmaður - Sindri Snær Magnússon
X-faktor - Shahab Zahedi Tabar
Þjálfari - Kristján Guðmundsson
Komn ir:
n Henry Roll in son
n Priest ley Griffiths
n Yvan Erichot
n Al freð Már Hjaltalín
n Ágúst Leó Björns son
n Dag ur Aust mann Hilm ars son
n Ignacio Fideleff
Farn ir:
n Renato Punyed
n Mikk el Maiga ard
n Bri an Mc Le an
n Jón as Tór Næs
n Álvaro Montejo
n Arn ór Gauti Ragn ars son
n Haf steinn Briem
n Pablo Punyed
n Dav id Atkin son
ê 11. sæti
keFlavík
Það er ekki víst hvernig Keflavíkurnæturnar verða í
sumar en liðið er komið aftur í efstu deild undir stjórn
Guðlaugs Baldurssonar. Keflavík er með lið stemmingar
en það gæti skort gæði í leikmannahóp liðsins til að það
héldi sæti sínu í efstu deild. Hjá Keflavík eru hins vegar
margir öflugir leikmenn og ef Guðlaugur nær að bæta
við einum eða tveimur gæða leikmönnum fyrir mót er
allt hægt. Miðað við stöðu leikmannahópsins í dag þarf
margt að ganga upp svo liðið verði ekki í kjallaranum
þegar talið verður upp úr pokanum í haust.
Lykilmaður - Jeppe Hansen
X-faktor - Lasse Rise
Þjálfari - Guðlaugur Baldursson
Komn ir:
n Jon ath an Mark Faer ber
n Boj an Stefán Lju bicic
n Aron Freyr Ró berts son
Farn ir:
Ekki neinn
ê 12. sæti
víkinGur
Ef aðeins á að taka mið af vetrinum þá er ljóst að Vík-
ingur mun falla úr Pepsi-deildinni, leikur liðsins hef-
ur verið slakur og úrslitin sömuleiðis. Misjafnar sögur
berast úr Víkinni um stemminguna í kringum liðið en
Logi Ólafsson er áfram skipstjóri í brúnni. Talsverðar
breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins en Sölvi
Geir Ottesen sneri heim í Víkina eftir langa dvöl í at-
vinnumennsku. Hann þarf að koma inn í mótið í topp-
standi til að varnarleikur Víkings verði með besta móti.
Leikmannahópur Víkings er hæfileikaríkur en mikið
þarf að breytast frá vetrinum svo ekki fari illa.
Lykilmaður - Alex Freyr Hilmarsson
X-faktor - Atli Hrafn Andra son
Þjálfari - Logi Ólafsson
Komn ir:
n Atli Hrafn Andra son (Láni)
n Sölvi Geir Ottesen
n Rick ten Voor de
n Jörgen Rich ardsen
n Gunn laug ur Hlyn ur Birg is son
n Hall dór J. S. Þórðar son
n Sindri Scheving
Farn ir:
n Geoff rey Castilli on
n Ívar Örn Jóns son
n Kristó fer Páll Viðars son
n Vikt or Bjarki Arn ars son
n Veig ar Páll Gunn ars son