Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Síða 50
50 LÍFSSTÍLL - BLEIKT 13. apríl 2018
H
ilmar Egill Jónsson flutti
til Noregs árið 2011 þar
sem hann hafði ákveðið
að búa ásamt fjölskyldu
sinni í eitt ár. Þar lét Hilmar
langþráðan draum sinn rætast
og keypti sér English Bull Terri-
er hvolp sem fékk nafnið Rjómi.
Fjölskyldan gerði sig síðan
klára til að flytja heim til Íslands
ári síðar. Héldu þau að það yrði
auðsótt mál að fá leyfi til þess
að flytja Rjóma með til lands-
ins þar sem tegund hans er ekki
á svokölluðum lista yfir bannað-
ar hundategundir. Málið reyndist
hins vegar erfiðara en svo og hófst
í kjölfarið fimm ára barátta Hilm-
ars fyrir því að fá hundinn heim.
„Eftir að hafa farið með málið
í gegnum MAST, ráðuneytið, hér-
aðsdóm og Hæstarétt virtust öll
sund lokuð en á undraverðan hátt
fékk Hilmar loksins leyfi til þess að
flytja með alla fjölskylduna heim
seint á síðasta ári. Það má því segja
að sagan hafi endað vel.“ Segir
Freyja Kristinsdóttir í viðtali við DV.
Freyja er lærður dýralæknir og
hundaþjálfari sem hefur undan-
farið starfað við kvikmyndagerð.
„Ég lærði heimildamyndagerð í
Danmörku árið 2015 og á svipuð-
um tíma og ég kláraði námið, þá
var mál Hilmars og Rjóma tölu-
vert í fjölmiðlum. Mér fannst þetta
áhugavert og hafði samband við
Hilmar sem sendi mér öll máls-
gögnin. Eftir að hafa lesið yfir þau
var ég sannfærð um að þetta væri
efni í heimildamynd.“
Freyja hitti Hilmar og Rjóma í
fyrsta skiptið vorið 2016 og hóf þá tök-
ur á heimildamynd um mál þeirra.
„Nú hef ég loksins lokið öllum
tökum og er að leggja lokahönd á
klippivinnuna. Hilmar er ekki sá
fyrsti sem hefur fengið neitun frá
MAST, en það sem er svo magn-
að við þessa sögu er að hann gafst
aldrei upp, sama hversu miklu
mótlæti hann mætti. Hann var
allan tímann sannfærður um að
hann hefði rétt á að flytja hundinn
inn. Það er margt í þessari sögu
sem er áhugavert að skoða nánar
og er það markmiðið með heim-
ildamyndinni.“
Freyja stendur nú í ýmiss kon-
ar eftirvinnslu á myndinni og hef-
ur hún brugðið á það ráð að safna
fyrir vinnunni á Karolina Fund.
Þeirri söfnun lýkur á sunnudaginn
næstkomandi, þann 15. apríl, og
verður frumsýning myndarinnar
þann 24. maí í Bíó Paradís og al-
mennar sýningar eftir það.
Fyrir áhugasama er hægt að
styrkja verkefnið með því að
fara inn á slóðina hér fyrir neð-
an. Hægt er að styrkja verkefnið
með misháum upphæðum og í
leiðinni næla sér í miða á forsýn-
ingu myndarinnar eða á almenn-
ar sýningar. n
www.karolinafund.com/
project/view/2025
FIMM ÁRA BARÁTTA
HILMARS OG RJÓMA UM
FLUTNING TIL ÍSLANDS
n Þrautin þyngri að fá hundinn heim n Heimildamynd gerð um málið
Freyja og Rjómi Freyja Kristinsdóttir, dýralæknir og kvikmyndagerðakona.
„Það er margt í
þessari sögu sem
er áhugavert að skoða
nánar og er það mark-
miðið með heimilda-
myndinni.
Afmæli Rjómi á fimm ára afmælisdegi sínum.
Hundurinn Rjómi
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is