Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Blaðsíða 58
58 FÓLK 13. apríl 2018
U
ndanfarnar vikur hafa ská-
káhugamenn fylgst hug-
fangnir með framgangi
Bandaríkjamannsins Fabi-
ano Caruana, sem loksins virð-
ist vera að stinga aðra bestu
skákmenn veraldar af og verða
raunveruleg ógn fyrir heimsmeist-
arann, Norðmanninn ógurlega
Magnus Carlsen. Caruana er 25
ára gamall, fæddur árið 1992, og
er því tveimur árum yngri en Carl-
sen. Hann var undrabarn í skák,
líkt og Norðmaðurinn, og vann sig
hratt og örugglega upp í hóp bestu
skákmanna heims. Ólíkt Carlsen
þá hefur Caruana átt erfitt með
hrista aðra keppinauta af sér. Inni
á milli hefur hann þó sýnt snilli
sína svo um munar. Skemmst er að
minnast sigur hans á Sinquefield-
mótinu í Bandaríkjunum þar sem
hann vann sjö fyrstu skákir sínar í
mótinu, þar á meðal gegn Carlsen,
og stakk aðra keppendur af. Sigur
Caruana í því móti er talinn vera
eitt mesta mótaafrek sögunnar.
Það eru þó afrek síðasta mánað-
ar sem hafa skotið Caruana aftur
fram í sviðsljósið svo um munar.
Hér verða þau rakin.
Átta bestu bárust á banaspjót
Dagana 10.–28. mars fór Áskor-
endamótið fram í Berlín. Þar komu
saman átta sterkustu skákmenn
heims, að heimsmeistaranum
undanskildum, til þess að berjast
um réttinn til þess að skora á
Magnus í einvígi um æðsta titilinn
síðar á árinu. Auk Caruana voru
keppendur fyrrverandi áskor-
andinn Sergey Karjakin frá Rúss-
landi, fyrrverandi heimsmeistar-
inn Vladimir Kramnik, Armeninn
Levon Aronian, Shakriary
Mamedyarov frá Aserbaídsjan, Al-
exander Grishcuk frá Rússlandi,
Kínverjinn Ding Liren og Banda-
ríkjamaðurinn Wesley So.
Caruana var vissulega einn af
þeim sigurstranglegri í mótinu.
Veðbankar töldu hann og Aron-
ian líklegasta en rétt á eftir þeim
Mamedyarov, sem hefur undan-
farið verið annar stigahæsti skák-
maður heims, og Kramnik, sem er
sá eini sem hefur unnið goðsögn-
ina Garry Kasparov í einvígi og býr
yfir ótrúlegri reynslu.
Þrátt fyrir það voru aðdáend-
ur Caruana mjög efins fyrir mótið
enda hafði Bandaríkjamanninum,
eins og áður segir, gengið bölvan-
lega að slíta sig frá öðrum hælbít-
um Carlsen. Þegar á reyndi í bar-
áttunni um heimsmeistaratitilinn
þá hafði hann klikkað og því var
erfitt að vera kokhraustur Caru-
ana-aðdáandi fyrir mótið.
Sögulegur sigur gegn Kramnik
Áskorendamótið fór vel af stað
fyrir Caruana en hann sigraði
landa sinn Wesley So, sem oft hef-
ur reynst honum erfiður, í fyrstu
umferð. Þrátt fyrir það var hann
kirfilega í skugga Kramniks fyrstu
umferðirnar. Rússinn reyndi tefldi
einhverja glæsilegustu skák seinni
tíma gegn Armenanum Aronian í
þriðju umferð og tók þar með for-
ystu í mótinu.
Kramnik og Caruana mætt-
ust síðan í 4. umferð mótsins í
skák sem er óhemju mikilvæg í
skáksögulegu samhengi. Skákin
var óhemju flókin en að lokum,
eftir sex klukkutíma setu, gerði
reynsluboltinn mistök og Caruana
hafði betur. Þar með náði Banda-
ríkjamaðurinn forystu í mótinu og
hana lét hann aldrei af hendi eftir
það. Caruana sigraði í mótinu með
9 vinningum af 14 en næstir urðu
Mamedyarov og Karjakin með 8
vinninga. Þar með var Fabiano
Caruana orðinn fyrsti Bandaríkja-
maðurinn síðan Bobby Fischer var
og hét til þess að vinna sér inn rétt
til þess að tefla um heimsmeist-
aratitilinn í skák. Skáksamfélagið
þar vestra fór á hliðina.
Örþreyttur á ofurmóti
Auðsýnt var að öllum heimsins
áhyggjum var létt af Caruana við
sigurinn. Hann hafði þó lítinn
tíma til þess að fagna því næst á
dagskrá var GRENKE-ofurmótið
sem fram fór í Karlsruhe í Þýska-
landi. Um var að ræða 10 manna
mót þar sem allir keppendur
tefldu við alla og meðal kepp-
enda var heimsmeistarinn sjálfur,
Magnus Carlsen, sem hafði haft
það náðugt í marsmánuði við
að fylgjast með keppinautum sín-
um berast á banaspjótum.
Caruana sagði fyrir mótið að
hann ætlaði bara að reyna að
skemmta sér og njóta þess að tefla.
Flestir bjuggust því við öruggum
sigri Carlsen. Örlögin höguðu því
þannig að kapparnir mættust í
fyrstu umferð og var skákarinnar
beðið með mikilli eftirvæntingu.
Lengi vel leit út fyrir að Carlsen
myndi hafa Caruana undir en sá
bandaríski náði að halda jafntefli
með herkjum.
Eftir það héldu Bandaríkja-
manninum engin bönd og hann
endaði með því að bera sigur úr
býtum í mótinu með 6,5 vinninga
af 9 mögulegum, heilum vinningi
á undan Magnusi Carlsen. Úrslitin
komu skáksamfélaginu gríðarlega
á óvart enda nánast ómannlegt að
vinna tvö gríðarlega sterk skákmót
með svona skömmu millibili.
Það var auðheyrt á Caruana að
hann trúði því varla sjálfur hvað
hefði gerst. „Ég leiddi ekki einu
sinni hugann að því að
vinna þetta mót. Þrátt fyrir kæru-
leysislega taflmennsku á köfl-
um þá fékk ég tækifæri í skák-
unum sem ég náði að nýta mér,“
sagði Caruana alsæll í viðtali eft-
ir mótið. Hann sagðist hafa ver-
ið gjörsamlega orkulaus meðan á
mótinu stóð. „Ég hafði ekki þrek til
þess að undirbúa mig fyrir skákir
heldur treysti á undirbúninginn
fyrir Áskorendamótið og reyndi að
hvílast vel fyrir skákirnar. Ég tefldi
ekki sérstaklega vel en ég var full-
ur sjálfstrausts og það skipti máli,“
sagði Caruana og taldi sig hafa
verið heppinn.
Úrslitin gefa góð fyrirheit fyrir
heimsmeistaraeinvígið í nóvem-
ber þar sem margt bendir til að
Caruana geti orðið raunveru-
leg ógn fyrir Magnus Carlsen.
Reynsluleysi Caruana í einvígjum
gæti þó vegið þungt en það er
ljóst að Bandaríkjamaðurinn mun
undirbúa sig gríðarlega vel og
selja sig dýrt, þetta er hans stærsta
tækifæri. n
F
abiano Luigi Caruana fæddist í júlí 1992 og er því tæpum tveim-
ur árum yngri en M gnus Carlsen se er fæddur í nóvember
1990. Fabiano er fæddur í Miami-borg í Bandaríkjunum en
foreldrar hans eru af ítölsku bergi brotnir. Fabiano ólst upp í
Brooklyn-hverfi New Y rk-borgar. Hann náði fljótlega efti tektarverð-
um árangri og s o fór að foreldr r hans ákváðu að flytjast með hann til
meginlands Evrópu þar sem mun meira af st rkum skákmótum eru
haldi . Þá ákváðu þau að Fabiano myndi tefla ndir ítölsku flaggi því
þar var meiri stuðning að fá. Þessi fórn for ldra Fabiano er ambæri-
leg ákvörðun foreldra Mag usar Carlse um svipað ley i. Þau ákváðu
að taka M g us úr skóla e tt ár og ferðast um heiminn til þess að etja
kappi við atvinnume n í skák. Fabiano v rð stórmeistari í skák 14
ára og 11 mánaða gamall. Han tefldi fyrir Ítalíu til ársins 2015 þegar
hann ákvað að tefla aftur fyrir Bandaríkin. Vonir stand t l að væntan-
legt einvíg hans við Magnus Carlsen muni skapa sannkallað skákæði
í Bandaríkjunum. Það mun tíminn einn leiða í ljós.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Veltir Caruana
Carlsen úr sessi?
Svipað ferðalag
undrabarnanna
Áskorandi er fæddur
Fabiano Caruana tekur við hamingjuóskum frá
heimsmeistaranum Magnusi Carlsen. Kapparnir
munu mætast í einvígi um titilinn í nóvember.