Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 66
66 FÓLK - SLÚÐUR 13. apríl 2018
Heyrst hefur...
Að eitt af heitustu pörum bæjar-
ins, Ellý Ármanns, frétta-, spá- og
sjálfsköpuð listakona, og Hlynur
Jakobsson, plötusnúður og einn
af eigendum Hornsins, hafi tek-
ið næsta skref í sambandi sínu. Þau
keyptu forláta ruslatunnu í Costco.
Systir Hlyns bað um að DV yrði látið
vita, sem að sjálfsögðu deilir þessu
þarfa, en oft misskilda skrefi, í hverju
sambandi áfram. Munum að flokka!
Að starfsmannafélag Fjármálaeftirlitsins hélt röð örfyrirlestra,
sem haldnir voru af starfsmönnum, í hádeginu alla síðustu viku í
tilefni árshátíðar fyrirtækisins. Hugmyndin að baki fyrirlestraröð-
inni var að fræðast en jafnframt að gefa starfsmönnum tækifæri til
að deila alls konar sögum um bakgrunn, reynslu og fleiri leynda
hæfileika og áhugamál. Víða var komið við í fyrirlestrunum, enda
fólk með ýmsan bakgrunn sem starfar hjá FME: Förðun og Smink
– Skyggingar (contour), Listin að baka úr súrdeigi, Að alast upp í
Mið-Austurlöndum, Reynslusaga frá Ólympíuleikunum, Ræðu-
mennska og framkoma í ræðustól, Reynsla mín sem fangavörður
og svo að sjálfsögðu Hver vinnur Eurovision 2018?
Árshátíðin var síðan haldin síðastliðinn laugardag í sal Ferða-
félagsins í Mörkinni og mættu starfsmenn glæsilegir til fara, enda
búnir að læra allt um „contour“ í vikunni, og skemmtu sér konung-
lega meðal annars við tóna eldri Eurovision-laga í meðförum Ingós
veðurguðs og félaga.
Að nýjasta bók glæpasagnahöfundarins
Stefáns Mána fáist ekki keypt, né heldur
verði hún aðgengileg fyrir einstaklinga
eldri en 16 ára. Bókin Náttfiðrildi er gef-
in út af Menntamálastofnun og um er að
ræða glæpasögu/morðgátu sem Stefán
Máni skrifaði sérstaklega fyrir stofnunina
og er ætluð börnum og unglingum á mið-
stigi grunnskóla. Foreldrar barna á grunn-
skólaaldri verða því að hvetja börnin til að
fara á safnið, fá bókina að láni og lesa hana eftir
að þau eru sofnuð. Við hin sem eigum ekki börn á grunnskólaaldri
verðum líklega að hringja í vin!
Að Margrét Friðriksdóttir hafi tekið
sumarhreingerninguna snemma og aug-
lýsi nú hina ýmsu muni í hinum frá-
bæra hóp Brask og brall á Facebook,
þar sem eins og nafnið gefur til kynna
má braska með alls konar. Á meðal
þess sem Margrét leitast við að losa
sig við er útskorið Victorian-borð-
stofuborð og 4–6 stólar í stíl en settið
var flutt inn frá Ítalíu á sínum tíma og
antík staup, sem eingöngu hafa verið notuð
til skrauts. Kannski þau eignist nýjan eiganda sem notar settið til
drykkjar.
Að hjartaknúsarinn og sex barna faðirinn
Brad Pitt hafi fundið ástina á ný í örmum
prófessorsins Neri Oxman, sem kennir við
MIT-háskólann í Massachusetts. Þau hafa
verið að hittast síðan í nóvember í fyrra
og hefur margoft sést til Pitt koma í íbúð
hennar að kvöldlagi og yfirgefa hana að
morgni eftir að Oxman er farin af stað til
kennslu. Pitt er meira að segja kominn með
eigin lykil, mikilvægt sambandsskref!
Pitt, sem er 54 ára, hefur verið einhleypur síðan
hann skildi við Angelinu Jolie í september árið 2016. Nýja kærastan
eldar ekki og hefur Pitt séð um þá deild í sambandinu eða séð um að
panta uppáhaldsrétti hennar frá nærliggjandi veitingastöðum. Þau
hafa einnig ferðast saman og í febrúar fylgdi Pitt henni á ráðstefnu í
Suður-Afríku þar sem Oxman var einn fyrirlesara.
Samkvæmt heimildum heilluðu þau hvort annað upp úr skón-
um strax við fyrstu kynni og Oxman sem var þá í sambandi með
öðrum manni „dömpaði“ honum um án tafa fyrir Pitt.
Að hjónin Sigmar
Vilhjálmsson, einn eigenda
Hamborgarafabrikkunar, og
Bryndís Björg Einarsdóttir séu
skilin eftir 20 ára samband,
en þau búa nú hvort á sínum
staðnum í Mosfellsbæ. Á sama
tíma fagnar „barn“ Sigmars og
félaga, Fabrikkan, átta ára af-
mæli sínu.
Gísli Örn Garðarsson varaði við innbrotsþjófi á Nesvegi í vik-unni en hann tjáði sig í Face-
book-hópnum Vesturbærinn.
„Hér neðst á Nesvegi gengu
menn um með höfuðlukt og
reyndu að finna sér leið inn í
nærliggjandi hús klukkan 2 í nótt:
Tékkuðu á gluggum og hurðum.
Lögreglunni var gert viðvart án telj-
anlegra viðbragða. Nágranni sem
varð vitni lét okkur vita rétt í þessu.“
Fljótlega kom í ljós að blað-
beri Fréttablaðsins fer snemma
af stað eða rétt eftir miðnætti og
leystist gátan þegar greint var frá
því að blaðberinn væri ávallt með
höfuðljós.
Hélt að blaðberi
væri innbrotsþjófur
F
yrirsætan Bryndís Gyða
Michelsen hefur, ásamt
eigin manni sínum Gísla Kr.
Katrínarsyni, fest kaup á 300
fermetra einbýlishúsi að Viðju-
gerði 10. Gísli starfar sem verk-
efna- og vörustjóri skýjalausna hjá
Advania en Bryndís Gyða er í laga-
námi í Háskólanum í Reykjavík.
Bryndís er afburðanemandi og
hefur í þrígang verið veitt viður-
kenning fyrir framúrskarandi
námsárangur. Bryndís er með
efnilegri nemendum sem hafa
stundað nám í lagadeildinni og
mun án efa láta mikið að sér kveða
þegar hún útskrifast.
Bryndís vakti fyrst athygli fyrir
að sitja fyrir, seinna stofnaði hún,
ásamt Kristrúnu Ösp Barkardóttur
og Kiddu Svarfdal, kvennavefinn
hun.is. Náði sá vefur strax miklu
flugi en Bryndís sagði skilið við vef-
inn og minna fer fyrir honum í dag.
Bryndís var áberandi í íslenskum
fjölmiðlum og var vinsæll pistlahöf-
undur en hefur haldið sig til hlés síð-
ustu ár og einbeitt sér að náminu.
Húsið sem Bryndís og Gísli
festu kaup á er í fallegri götu sem
árið 1998 var kosin sú fallegasta í
Reykjavík. Húsið stendur skammt
frá Ríkisútvarpinu og er um 300
fermetrar. Á neðri hæðinni eru
þrjú herbergi, stórt rými og bað-
herbergi. Á efri hæðinni er eld-
hús, rúmgóð stofa með kamínu,
borðstofa, baðherbergi, hjónaher-
bergi og tvö minni herbergi. Bíl-
skúrinn er tvöfaldur. Úti er stór
sólpallur, garður og garðhús. Sam-
kvæmt Procura er húsið metið 113
milljónir króna. Húsið er teiknað af
Kjartani Sveinssyni og byggt árið
1974. Frá húsinu er fallegt útsýni. n
Bryndís og Gísli kaupa
300 fermetra glæsihýsi
Fjölmiðlakonan góðkunna Kol-brún Björnsdóttir mun líklega halda sig heima þann 9. apr-
íl á næsta ári. Kolbrún slasaðist
illa í hjólaslysi 9. apríl 2016 sem
setti tilveruna á hvolf. Kolbrún var
staðráðin í að njóta 9. apríl með
vinkonum sínum en í stað þess
að hjóla var ákveðið að skokka
og fara í sjósund á eftir. Kolbrún
sagði á Facebook: „Þið vitið, búa
til jákvæðar og góðar minningar á
þessum degi.“
Það fór ekki betur en svo
að Kolbrún fékk botnlanga-
kast og endaði á bráðamót-
töku. Kolbrún horfir hins vegar á
björtu hliðarnar eins og vana-
lega og segir á léttu nótunum að
eigin maður hennar hafi beðið
hana að fljúga aldrei á þessum
degi. Hafa vinkonur Kolbrún-
ar ákveðið að pakka henni inn í
bómull þegar þennan mánaðar-
dag ber upp á næsta ári. „Ég get
útilokað að lenda í botnlangak-
asti þegar ég dvel í ríflega mánuð
í Nepal í haust,“ segir Kolbrún og
bætir við: „Ég er því þegar öllu er
á botninn hvolft ein heppin pía.“
FÓR ÚT AÐ SKOKKA OG
MISSTI BOTNLANGANN
n Metið á rúmlega 110 milljónir n Skammt frá Ríkisútvarpinu