Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Side 72
13. apríl 2018
14. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Auðvelt að versla á byko.is
HJÓLUM
INN Í
SUMARIÐ
Frábært verð ár eftir ár!
Kven- og karlahjól
28“ karla, 26“ kvenhjól, 6 gíra með
brettum og körfu.
28.995
49620200-1
Barnahjól
Gult eða ljósblátt 16“.
20.995
49620062A/3A
NÝTT BLAÐ
Lestu
blaðið á
byko.is
Tilboðsverð
Royal 320
gasgrill, 8,8 kW, eldunarsvæði: 2130
cm2. Mjög sterkar grillgrindur úr
pottjárni. Ryðfrítt Flave-R-WaveTM
eldunarkerfi. Þrír ryðfríir brennarar.
Sure-LiteTM elektrónískt kveikikerfi.
Fellanleg hliðarborð. Hitamælir í loki.
49.995
50657512
Almennt verð: 59.995
TRAMPÓLÍNIN
ERU KOMIN
Komdu og skoðaðu úrvalið af grillum
VIÐ ERUM
BYRJUÐ AÐ
GRILLA
b
re
nn
arar
3kí
ló
vö
tt
8,8Ö
ll
v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
f
yr
ir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
db
re
ng
l.
T
ilb
oð
g
ild
a
út
1
8.
a
pr
íl
eð
a
á
m
eð
an
b
ir
gð
ir
e
nd
as
t.
Þetta er mark-
laust hjal!
Bókin á
náttborði Elizu
„Ég
les núna „This
Child Will be Great“,
sjálfsævisögu Ellen Johnson
Sirleaf. Hún var forseti Líberíu þar til
fyrir skemmstu, fyrsta konan sem náði
kjöri í það embætti í Afríkuríki og handhafi
friðarverðlauna Nóbels árið 2011. Mér
finnst bækur um stjórnmál skemmtilegar,
ekki síst um konur á þeim vettvangi.
Saga Johnson Sirleaf er stórmerki-
leg, saga ótrúlegrar þrautseigju
og viljastyrks,“ segir Eliza
Reid forsetafrú.
Hvað segir
mamma?
S
kagamaðurinn og
knattspyrnuhetjan Ólaf-
ur Þórðarson hefur verið
mikið milli tannanna
á fólki eftir viðtal sem birtist í
þættinum Návígi á fótbolti.net.
Þar gagnrýndi hann þjóðfélagið
harkalega, sagði að það væri ver-
ið að „kellingavæða allt saman“,
„femínisminn væri orðinn alls-
ráðandi“ og verið væri að „ríta-
líndópa börn frá unga aldri.“ Olli
þetta miklum úlfaþyt á samfé-
lagsmiðlum og margir sögðu
viðhorf Ólafs gamaldags og
fordómafull en flestir sem til
þekkja í knattspyrnuheiminum
og þekkja Ólaf hafa varið hann.
Ólafur sér ummælin hins vegar
ekki þar sem hann er ekki sjálfur
á samfélagsmiðlum.
Móðir Ólafs, Ester Teitsdóttir,
er 85 ára gömul Skagamær og
eldhress. Hún segir:
„Ólafur var ósköp jafnlyndur
greyið og alltaf kátur.“
Hvernig var hann sem barn?
„Hann var mjög athafna-
samur sem barn. Við áttum
heima á Sóleyjargötunni á Akra-
nesi og þar fyrir framan er stórt
tún sem er kallað Merkurtún. Þar
var allur skarinn af Skaganum að
leika sér í fótbolta og allra handa
leikjum og Ólafur var þar mikið.
Ég kallaði á hann í mat og svo var
farið út aftur og leikið sér fram
á kvöld. Það var ekkert hang-
ið í tölvum, en þær voru reynd-
ar ekki til þá,“ segir Ester og hlær.
En þegar hann varð eldri?
„Hann var tekinn í vinnu og
látinn hjálpa til. Pabbi hans var
með bílaútgerð og Ólafur var lát-
inn bera pakka og annað sem
þurfti að gera þar.“
„Þurfti nánast að veiða þær úr netinu eins og þorska“
F
átt vakti meiri athygli í vik-
unni en viðtal Guðlaugs
Jónssonar við knattspyrnu-
goðsögnina Ólaf Þórðarson
í hlaðvarpsþættinum Návígi á fót-
bolti.net. Það sést best á þessari
baksíðu blaðsins sem tileinkuð er
kappanum. Á unglingsárum sín-
um var Ólafur hluti af sigursælu
ÍA-liði í yngri flokkum. Liðið land-
aði Íslandsmeistaratitli árið 1977
og aftur árið 1981. Í millitíðinni var
liðið slegið út í undanúrslitum árið
1979 og í viðtalinu upplýsti Ólaf-
ur hver hefði verið blóraböggull-
inn að hans mati. Það var enginn
annar en verkalýðsleiðtoginn Vil-
hjálmur Birgisson, sem var mark-
maður liðsins.
„Villi Birgis verkalýðsforingi var
bak við markið að reyna að höstla
einhverjar stelpur og við fengum á
okkur mark sem kostaði okkur að
komast í úrslitaleikinn,“ sagði Ólaf-
ur. Tók hann sérstaklega fram að
ekkert hafi komið út úr kvennafari
Vilhjálms „frekar en fyrri daginn“.
DV bar þetta hitamál undir Vil-
hjálm sjálfan og hann vék sér ekki
undan ábyrgð. „Það er mögulega
sannleikskorn í þessu. Það kann að
vera að ég hafi verið að veita ein-
hverjum stúlkum athygli og feng-
ið á mig mark. Óli hefur ekki talað
um annað í fjóra áratugi,“ segir Vil-
hjálmur. Hann vill þó meina að
undirliggjandi ástæða reiði Ólafs
sé ekki annálað keppnisskap hans
heldur hrein og klár afbrýðisemi.
„Stelpurnar höfðu aldrei neinn
áhuga á að fylgjast með honum á
miðjunni. Þær voru alltaf bak við
markið hjá mér, það þurfti nán-
ast að veiða þær úr netinu eins
og þorska eftir hvern einasta leik,“
segir Vilhjálmur léttur. n
Blóraböggull í tapi Skagamanna í undanúrslitum árið 1979 fundinn