Fréttablaðið - 26.05.2018, Qupperneq 30
Róbert úthvíldur á fundi
með oddvita Pírata í
Hafnarfirði, Elínu Ýri.
Sandra Hlíf Ocares við kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins.
Mikil hlaup, margir
fundir, ótal símtöl
Sjálfstæðisflokkurinn –
Sandra Ocares
Sólarhringurinn hjá mér er frekar
langur þessa dagana, mikil hlaup,
margir fundir og ótal símtöl.
Kjördagur er alltaf fyrir mér
mikill hátíðardagur, tek það mjög
hátíðlega að fara og kjósa. Hann
verður reyndar með örlítið öðru
sniði en hefur verið hjá mér í
síðustu kosningum.
Ég mun byrja daginn á því
að kjósa og svo mun ég fylgja
oddvitanum Eyþóri Arnalds á
milli staða þar sem dagurinn
er þéttbókaður í útvarpsviðtöl,
sjónvarpsviðtöl og pallborðsum
ræður.
Mikil stemming myndast alltaf
á kjördag uppi í Valhöll þar sem
er kosningakaffi allan daginn. Um
kvöldið verður kosningavaka á
Grand hóteli sem hefst kl. 21.30
þar sem við munum slá upp
partíi og fylgjast með úrslitum
kosninganna.
Það fyndnasta og jafnframt
með skemmtilegri atvikum í
baráttunni var þegar við rákumst
á John Travolta. Hef sjaldan verið
jafn stjörnuslegin.
Góður kosningastjóri þarf að
vera skipulagður, eiga auðvelt
með mannleg samskipti, drífandi
og jákvæður.
Þolinmæði og húmor er líka
eiginleikar sem ég held að sé
gott að hafa í miklum mæli sem
kosningastjóri.
Líf kosningastjóra
korter í kosningar
Kosningastjórar
flokkanna eru á
harðahlaupum
fyrir kosningar.
Nokkrir þeirra
gefa innsýn í
starf sitt og segja
frá því hvað
þeir telja eiga
að prýða góðan
kosningastjóra.
Datt í hlutverk leikstjórans
Píratar – Robert Douglas
Það er líklega bara eftirminnilegast
hvað ég hef kynnst mörgu góðu fólki
sem ég myndi kalla vini mína í dag,
en þegar ég byrjaði þekkti ég engan í
Pírötum, hafði þó kosið þá í tvennum
síðustu kosningum.
En eitthvert eitt eftirminnilegt atvik
eða skemmtileg saga er til dæmis
þegar ég ruglaði starfi mínu sem leik
stjóra saman við kosningastjórastarfið
eftir mikla og erfiða vinnutörn þar sem
dagarnir voru farnir að renna aðeins
saman. Þá sat ég á fundi með stjórn
Pírata í Reykjavík og talaði stöðugt
um hvað ég ætlaði að gera með
leikurunum og að það væri mikilvægt
að leikararnir væru til taks og að við
værum heppin hvað við værum með
góða leikara í efstu sætunum – þá
stoppaði stjórnin mig og spurði mig
hvort ég þyrfti ekki að taka nokkra tíma
í hvíld. En jú, vissulega væri hægt að líta
á stjórnmálafólk sem leikara, þau væru
jú í vissu hlutverki.
Ég er kosningastjóri höfuðborgar
svæðisins og það er líklega mest krefj
andi að gæta jafnræðis milli framboðs
lista. Sem sagt að framboðunum okkar
í Kópavogi og Hafnarfirði finnist eins
og þau séu jafn mikilvæg og Reykjavík –
sem þau auðvitað eru, en það er flókið
að sjá um alla þrjá staðina í einu.
Fallhlífarstökkið eftirminnilegast
Miðflokkurinn – Gréta Björg Egilsdóttir
Eftirminnilegast er náttúrulega að hafa fengið Vigdísi til að fara í
fallhlífarstökk og hafa fengið að fylgja henni í gegnum það ferli
allt saman. Annars var upptaka á öllum víkingamyndböndunum
mjög skemmtilegur tími og það eru forréttindi að fá að hafa
fengið að vinna með svona rosalega kröftugum og samstilltum
hópi. Mikið hlegið og mikið gaman. Mest krefjandi er nú að vera
sáttasemjari því að auðvitað koma upp mál um menn og mál
efni en ég held að þetta hafi nú bara gengið nokkuð vel.
Kosningastjóri þarf að mínu mati að vera rosalega skipu
lagður og góður í mannlegum samskiptum og vinna vel í nánu
hópstarfi. Maður þarf að geta tekið ákvarðanir hratt og staðið í
fæturna þó svo að aðrir efist um ákvörðunina.
Það er líka nauðsynlegt að geta gert smá grín að sjálfum sér
og mikilvægt að geta viðurkennt mistök.
Gréta á skrif-
stofu sinni
í vinnu fyrir
Miðflokkinn.
Umfram allt að
halda uppi gleðinni
Viðreisn – Jóhanna Dýrunn
Jónsdóttir
Að kynnast 46 snillingum á
þremur mánuðum er nátt
úrulega ekkert nema frábært.
Að koma þeim öllum í förðun
og myndatöku í nokkuð
stífum tímaramma var mjög
áhugavert og krefjandi verk
efni, en baráttan hefur gengið
vel og engin óyfirstíganleg
vandamál komið upp.
Kosningastjóri þarf að hafa
góða skipulagshæfileika, eiga
gott með samskipti, geta
greint aðalatriðin frá því sem
skiptir minna máli og svo um
fram allt að geta haldið uppi
gleðinni í gegnum góða og
erfiða daga.
Jóhanna Dýrunn.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
↣
2 6 . M a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R30 H E L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
helgin
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-4
1
7
C
1
F
E
A
-4
0
4
0
1
F
E
A
-3
F
0
4
1
F
E
A
-3
D
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K