Fréttablaðið - 26.05.2018, Síða 38
Ég get nú ekki sÉð
hvernig hvatning
til karlmanna um
að hysja upp um sig
brækurnar og axla
ábyrgð á sjálfum sÉr,
fjölskyldum sínum og
samfÉlagi geti verið
hvatning til of-
beldis gegn konum.
Kosningavaka
Stöðvar 2
í kvöld kl. 22:00
Í opinni
dagskrá
↣meðtekið fagnaðarerindið elska
hann og hinir elska að hata hann.
Áköfustu fylgjendurnir láta eins
og hann hafi höndlað stóra sann-
leikann, leyst jafnvel lífsgátuna,
með því að greina samfélagið og
lífið allt út frá meðfæddum eðlis-
mun kynjanna og síðan eru þeir sem
bókstaflega þola manninn ekki, sjá
skrattann í hverju kenningahorni
hans. Telja hann í versta falli bein-
línis stórhættulegan og í besta falli
kjána.
Allt er orðið umdeilt nú til dags
Sjálfur furðar Peterson sig á þessari
reiði sem hann telur að einhverju
leyti byggða á misskilningi og jafn-
vel markvissum mislestri á því sem
hann hefur fram að færa.
Þá segir hann það síst til þess fall-
ið að lægja öldurnar þegar orð hans
eru slitin úr samhengi, afbökuð eða
hreinlega haft rangt eftir honum.
Nýjasta dæmið um það síðast-
nefnda er viðtal sem birtist við hann
í The New York Times í síðustu viku.
Þá ætlaði allt um koll að keyra
þegar haft var eftir honum að hann
teldi öruggustu leiðina til þess að
sporna við fjöldamorðæði sem
rennur sorglega oft á unga karlmenn
að þeim verði séð fyrir maka. Útveg-
uð kona, svo það sé sagt hreint út.
Þessa hugmynd var hann sagður
rökstyðja með því að einmana og
kynsveltir karlar væru hættulegir
umhverfi sínu og gerðust ofbeldis-
hneigðir í gremju sinni. Ungur
maður sem á konu er ólíklegri til
þess að valta yfir vegfarendur á bíl
eða skjóta skólafélaga sína í stórum
hópum.
„Hluti af þessu var slitinn skelfi-
lega úr samhengi í The New York
Times,“ segir Peterson og er bersýni-
lega nokkuð niðri fyrir. „Það sem ég
var að benda á er að samfélög úti um
allan heim hafa haft tilhneigingu til
að gera einkvæni að reglu. Þetta er
sammannlegt en þá á ég ekki við
að þetta sé þvingað fram með valdi.
Þetta er einfaldlega félagslegt norm
og samfélög sem byggja á einkvæni
eru friðsamlegri en önnur.
Þetta er bara vel skrásett mann-
fræðileg staðreynd sem teygir sig
langt aftur í aldir. Þetta er óumdeilt,
fyrir utan þá staðreynd að í dag er
einfaldlega allt orðið umdeilt.“
Óðir í athugasemdum
„Og þetta er umdeilt eins og sést best
á hörðum viðbrögðum við þessu
viðtali í The New York Times. Reiði-
aldan sem skall á netinu er í raun
býsna gott dæmi um hversu fólk
skiptist skýrt í annars vegar aðdá-
endur þína og þá sem beinlínis þola
þig ekki. Allt sem er haft eftir þér í
fjölmiðlum hérna á Íslandi virðist
í það minnsta gera allt brjálað. Á
Facebook og í athugasemdakerfum
vefmiðlanna.“
„Já, og ég er orðinn vanur þessu,“
segir Peterson. „En þetta er í raun
stórundarlegt og ég veit ekki hvern-
ig á að túlka þetta. Þessi reiði er að
hluta tilkomin vegna þess að ég hef
gagnrýnt róttækt vinstra fólk harka-
lega.
Þessi gagnrýni gerir mig samt
ekki sjálfkrafa að öfgahægrimanni.
Það er bara kjánalegt að halda því
fram en hentar róttæka vinstrinu
vel til þess að geta sannfært sig um
að ég sé á einhvern hátt ósanngjarn
sem aftur auðveldar þeim að hafna
því sem ég er að segja.“
„En stangast þessi kenning þín
um einkvæni sem einhvers konar
ofbeldisdempara ekki á við það
sem mér sýnist vera eitt lykilatriðið
í bókinni þinni þar sem þú segir að
hver og einn verði að axla ábyrgð
á sjálfum sér og lífi sínu? Og hvað?
Ef þessir gaurar geta ekki fengið að
ríða, eða náð sér í maka eða ból-
félaga, fara þeir þá þess vegna af stað
og drepa fólk? Væri þeim ekki, sam-
kvæmt hugmyndum þínum, nær að
gyrða sig bara í brók? Taka sig á og
sjálfa sig í gegn?“
Aðeins ISIS-terroristi gæti haldið
þessu fram
„Auðvitað og augljóslega. Það er
þess vegna sem þetta síðasta upp-
hlaup út af The New York Times er
svo fáránlegt! Ég hef í fyrirlestrum
mínum margítrekað að ef þér er
hafnað af hverri einustu konu sem
þú hittir þá liggur vandinn senni-
lega ekki hjá þeim, heldur
þér.“
Peterson segir
þessa túlkun á
h u g m y n d u m
hans um ein-
k v æ n i s s a m -
f é l ö g i n sv o
galna að hann
skilj i varla
hvers vegna
fólk var jafn
g i n n k e y p t
fyrir þessu
og raun ber
vitni.
„ Þ e t t a
e r þ a ð
sem er
svo ein-
k e n n i -
legt við
þ e t t a
v e g n a
þess að
h l u t i
þ e s s
hve r su
fyrirlestrar mínir eru vinsælir er
að ég hef verið að leggja til að fólk,
ungir karlmenn þar með taldir, ætti
að taka sig á. Axla ábyrgð og koma
reglu á líf sitt.
Þetta er alger andstæða túlkunar
fólks á greininni í The New York
Times. Að ég haldi því fram að það
eigi bara að skaffa hvaða ónytjungi
sem er konu! Það er algerlega fárán-
legt. Enginn með réttu ráði lætur sér
detta þetta til hugar. Þú getur ekki
einu sinni skáldað upp manneskju
sem trúir þessu.“
„Maður hefði haldið ekki en
svona virðast mjög margir skilja
þig.“
„Það er ótrúlegt! Þú gætir fundið
stöku ISIS-terrorista sem finnst góð
hugmynd að úthluta körlum konu
með vopnavaldi. En ég er ekki að
leggja neitt slíkt til. Þvert á móti.“
Litlir, hræddir karlar
„Einhverra hluta vegna virðist boð-
skapur þinn helst höfða til, hvað
skal segja? Lítilla, hræddra karl-
manna og einhvern veginn hef
ég á tilfinningunni að menn sem
líður sæmilega í sjálfum sér og eru
í þokkalegri sátt við umhverfi sitt
tengi lítið við þetta?“
„Ég held alls ekki að ég sé að höfða
sérstaklega til hræddra karla. Sjáðu
til. Í fyrsta lagi er þessi hugmynd
um að ég beini boðskap mínum að
einangruðum ungum körlum staðl-
aður mislestur.
Meirihluti þeirra sem hafa verið
að hlusta á fyrirlestra mína gera það
á YouTube og 80 prósent þeirra sem
skoða efni á YouTube eru karlmenn.
Ég stend ekki á bak við það.“
„Nei, og þú getur auðvitað ekki
stjórnað umferðinni á YouTube
en má ekki samt vera að það veiki
málefnastöðu þína að þetta eru
greinilega fyrst og fremst karlar sem
hlusta á þig og meðtaka það sem þú
hefur að segja?“
„Það liggur ekkert fyrir um það að
meirihluti þeirra sem kaupa bókina
mína séu karlar. Það má vel vera að
það sem ég er að segja um að fólk
eigi að taka ábyrgð á sjálfu sér höfði
sérstaklega til ungra karlmanna
akkúrat núna.
En það er ekki vegna þess að ég
sé aðeins að tala við unga karla,
heldur frekar vegna þess að flestir
á YouTube eru ungir karlar og þetta
er ef til vill eitthvað sem þeir þurfa
sérstaklega að heyra,“ segir Peterson
og bendir á að konur eru um 30 pró-
sent þeirra sem sækja fyrirlestra
hans.
Beita fyrir andstæðingana og
minnipokamenn?
„Ég hef heyrt því fleygt að margt í
boðskap þínum sé hið besta mál
en að þú gerir þér það að leik að
blanda einhverju saman við þetta
markvisst til þess að trylla róttækt
vinstri fólk og femínista.
Að þú kryddir kenningar þínar
bæði til þess að fá athyglina sem
uppþotin á vinstri kantinum beina
óhjákvæmilega að þér og síðan ekki
síður til þess að höfða til minnipoka-
manna sem sjá einhverja vonar glætu
í karllægri heimssýn þinni.“
„Ég er ekki að leika neinn leik. Ég
er að reyna að nota þekkingu mína
og langa reynslu til þess að hjálpa
fólki. Hjálpa því að þroskast og
vald efla það með hvatningu.
Tæknilega er ég aðeins að hjálpa
fólki að öðlast kjark með því að axla
ábyrgð á eigin lífi og finna þannig
döngun í sér til þess að mæta ógæfu
og kúgun af hugrekki.“
„Gott og vel. Tökum aðeins rót-
tækan vinstrifemínistavinkilinn
á þig. Femínistar halda því margir
fram að þú sért beinlínis að ýta
undir ofbeldi gegn konum með boð-
skap þínum.“
„Ég get nú ekki séð hvernig hvatn-
ing til karlmanna um að hysja upp
um sig brækurnar og axla ábyrgð
á sjálfum sér, fjölskyldum sínum
og samfélagi geti verið hvatning til
ofbeldis gegn konum.“
Fullur heimur af glötuðum
körlum
„Ég hef stúderað ofbeldi mjög lengi
og það eru veikgeðja menn sem
beita konur ofbeldi, ekki sterkir
karlar. Og með því að styrkja þessa
veiku karla dregurðu úr ofbeldis-
hneigð þeirra.
Það liggur til dæmis ljóst fyrir að
nauðgarar eru undirmálsmenn,
taparar, lélegir gaurar. Það mætti
jafnvel segja þá aumkunarverða og
það ætti nú varla að skaða nokkra
manneskju að reyna að hvetja sem
flesta til þess að reyna að vera ekki
ömurlegur.
Ekki nema að þú viljir hafa
túrtappinn og pillan
hafa gert miklu meira
fyrir kvenfrelsi en
femínisminn.
↣
2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R38 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-0
1
4
C
1
F
E
A
-0
0
1
0
1
F
E
9
-F
E
D
4
1
F
E
9
-F
D
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K