Fréttablaðið - 26.05.2018, Side 44

Fréttablaðið - 26.05.2018, Side 44
fáir aðrir eru kallaðir til.“ Þú þekkir bæði íslenskt samfélag og það þýska, Hvernig er það íslenska í samanburði við hið þýska? „Lítið! Hér eru hlutir sem ég kann mjög vel að meta. Ræturnar eru hér, vinirnir og fjölskyldan. Tungumálið og minningar mínar eru meira og minna á íslensku. Það er margt í smæðinni sem hefur kosti, eins og samheldni og hversu fljótt hlutirnir ganga fyrir sig. Og svo Vesturbæjar- laugin, sem er næstum því það besta við Ísland. Mér finnst hins vegar gríðarlegt áreiti á Íslandi frá hlutum sem ég hef engan áhuga á en þeir troða sér inn í líf mitt, hvort sem það er mið- næturopnun í Kringlunni, óumbeð- in lífsstílsráðgjöf eða Eurovision. Í Þýskalandi finnst mér ég oft lifa ein- faldara og rólegra lífi og hafa mun greiðari aðgang að því sem vekur áhuga minn. Ég hef þar af leiðandi meiri tíma til að sinna hugðarefnum mínum og fjölskyldunni. Þar er líka unnið minna, launin eru betri og allt miklu ódýrara. Ég upplifi það næstum því sem ofbeldi að kaupa hér í matinn. Það er allt alveg fárán- lega dýrt og gæðin ekki mikil.“ Ætlaði að hætta Það er mjög oft sagt að það sé erfitt fyrir leikara að eldast þar sem hlut- verkum sem þeir fá fækkar svo mjög. Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þessa stétt. „Þetta er ekki alveg sambærilegt milli kynjanna. Karlmenn fá frekar að eldast í þessum bransa en konur. Það eru einfaldlega fleiri og betri hlutverk fyrir karla og stundum þarf að grafa dýpra og hafa meira fyrir því að finna góð kvenhlutverk. Hins vegar geta konur auðveldlega leikið karlhlut- verk eins og dæmin sanna. Stundum skiptir hreinlega ekki máli hvors kyns persónan er en oft getur það líka bætt einhverju við, verið ný og spennandi nálgun á verkið. Sophie Rois, einhver þekktasta og virtasta leikkona Þjóð- verja, sagði í viðtali um daginn að hún ætlaði héðan af einungis að leika texta skrifaða fyrir karla, þeir væru yfirleitt bitastæðari og áhugaverðari. Hún er að nálgast sextugt. Það eru ekki mjög margir starfandi í íslensku leikhúsi sem eru komnir yfir sextugt. Sérstaklega ekki konur. Ein- hverjir lifa þó af. Mér finnst við eiga ótrúlegan fjölda af mjög hæfu sviðs- listafólki sem fær alltof lítið að gera. Þetta er mjög sorglegt því krefjandi listamaður heldur áfram að þroskast og þróa sig. Það gildir um þetta fag eins og flest önnur að fólk verður oft betra með aldrinum.“ Gætirðu hugsað þér að snúa þér að annarri vinnu en þeirri sem tengist leiklist? „Skömmu áður en ég fékk tilboðið frá Þýskalandi og flutti þangað var ég búin að taka ákvörðun um að hætta. Ég var komin í háskólann þar sem ég lærði þróunarfræði og kynjafræði. Ég hafði aldrei áður verið í akademísku námi og fannst það ákaflega skemmti- legt og gefandi. Ég held að það sé mikilvægt í hvaða starfi sem er að ef maður finnur að það er ekkert að ganga þá er um að gera að söðla um og gera eitthvað annað. Það er ótrúlega margt spenn- andi og skemmtilegt sem er hægt að gera. Þetta er líka spurning um að hafa sjálfur stjórnina í eigin lífi og láta ekki aðra um þá stjórn. Mér finnst ekkert skemmtilegra eða meira gefandi en að leika. Þetta er mín köllun. Ég hef gríðarlega mikinn áhuga á leikhúsi en hef líka mikinn áhuga á kvikmyndum. Mér finnst óskaplega gaman að fylgjast með því sem er að gerast í íslensku kvikmynda- og sjónvarpslífi, og vera núna einhver hluti af því. Ef þetta svo einhvern tímann gengur ekki lengur þá verð ég bara að gera eitthvað annað. Lífið býður upp á ótrúlega margt. Sjálfsmynd mína og áhuga í lífinu byggi ég ekki bara á frama mínum sem leikkonu. Maður hlýtur að þurfa að horfa víðar og lengra. En er á meðan er og meðan það gengur svona vel þá ætla ég að halda áfram. Ég hefði ekkert á móti því að leika til níræðs.“ Mikilvægt að hlusta á sögur beggja kynja Er leikhúsið og kvikmyndaheimurinn karlaheimur eða er það að breytast? „Þetta er að breytast og til þess hefur þurft mikla baráttu og mikla umræðu. Það er ekki þannig að jafn- rétti kynjanna verði náð af sjálfs- dáðum. Það má aldrei halda að nú sé þetta bara komið, það verður alltaf að halda áfram. En við sjáum líka að hlutir eru að breytast. Bæði í leik- húsinu og innan sjónvarps- og kvik- myndabransans, þar eru konur að gera frábærlega góða hluti. Þetta ger- ist vegna öflugrar opinberrar baráttu. Það hefur aldrei verið þannig að þeir sem eru ríkjandi, í flestum tilvik- um karlmenn, gefi sitt eftir af sjálfs- dáðum. Við í hinum vestræna heimi myndum heldur ekki vera reiðubúin að gefa eftir eitthvað af okkar miklu forréttindum, nema við neyddumst til þess. Alveg eins og við eigum að hlusta á fólk frá öðrum menningarheimum, af því það er áhugavert og gjöfult og mikilvægt til að víkka sjóndeildar- hring okkar, þá eigum við að sjálf- sögðu að hlusta á sögur beggja kynja. Allt annað er fáránlegt, einfaldlega hlægilegt.“ Metoo-byltingin hefur skekið sam- félög. Hefur þú sjálf upplifað áreitni eða ofbeldi? „Já. Ég veit ekki um eina einustu konu sem ekki hefur lent í einhvers konar kynbundinni áreitni eða ofbeldi. Ég man þegar ég opnaði Facebook og sá alls staðar #metoo og vissi ekki alveg hvað þetta var og fór að lesa mér til. Ég sagði svo við manninn minn: Ætli ég gæti sagt þetta: Metoo? Hann horfði á mig í forundran. Við erum búin að vera gift í rúmlega 20 ár og það er fátt sem ég hef lent í sem hann ekki veit um. Hann fór að rifja upp fyrir mér atvik, þar á meðal frá því ég var lítil stelpa, níu ára. Allt í einu var eins og púsl færu á réttan stað í hausnum á mér. Ég áttaði mig á því að mjög mörgu sem ég hafði lent í hafði ég ýtt til hliðar og látið eins og það hefði ekki haft áhrif á mig og ekki heldur skilgreint það sem ofbeldi. Ég hafði bara tekið því eins og það væri hluti af því að vera kona að lenda í ítrekaðri áreitni, meira að segja ofbeldi.“ Púsl á réttum stað Hvernig ofbeldi? „Níu ára gömul var ég send í vist í sveit og átti að vera þar allt sumarið. Á sveitabænum var gamall karl sem gerði sér afskaplega dælt við mig. Mér var illa við karlinn frá fyrsta degi því hann vildi alltaf fá mig með sér í girð- ingarvinnu og var stöðugt að nugga sér upp við mig og kyssa mig. Þetta endaði með því að hann var kominn á rúmstokkinn til mín, búinn að taka út á sér typpið og ég þurfti að strjúka honum öllum. Ég man eftir því hvað mér fannst hann ógeðslegur með þetta litla skrælnaða typpi sitt og hversu viðbjóðslegt var að þurfa að koma við það. Ég stakk af þennan morgun. Ég var eins og Stikilsberja- Finnur með prik sem ég batt á visku- stykki með tveimur matarkexum og gekk allan daginn út til frændfólks míns sem bjó yst í dalnum. Mér fannst ég hafa gengið burt sem sigur- vegari. Ég var ekki send til baka. Ég myndi ekki beint segja að þetta hefði haft djúpstæð áhrif á mig, kannski af því þetta gekk ekki lengra. Ég var í þeirri stöðu að ég gat farið til frændfólks míns sem ég sagði frá þessu. En svo hef ég auð- vitað upplifað, eins og allar konur, endalaust af káfi og niðrandi fram- komu, athugasemdum, yfirgangi og ömurlegum bröndurum sem ég hló ekki að og þá var sagt að ég hefði ekki húmor. Það sem ég held að svo margar konur hafi upplifað núna með Metoo er að þegar þær setja öll þessi púsl á réttan stað þá átta þær sig á því að allt þetta hafði áhrif á þær. Hefur haft áhrif á framkomu þeirra, sjálfstraust og gjörðir. Konur hafa ekki alltaf staðið almennilega með sjálfum sér því þær vilja ekki vera leiðinlegar og standa kannski ekki nægilega vel með öðrum konum. Ég hef upplifað að það var illa komið fram við mig og ég var með óbragð í munninum vegna þess að ég var ekki að standa með sjálfri mér og öðrum konum. En af því ég var inni í þess- ari menningu setti ég hlutina ekki í rétt samhengi. Það er einmitt þetta að setja hlutina í rétt samhengi sem mér finnst svo merkilegt við Metoo. Ég er búin að lesa mjög margar bækur í röð sem eru viðtöl við ungar konur í Miðausturlöndum. Kúg- unin þar víða er svo yfirgengileg. Í sumum löndum þar verða konur að fá leyfi frá eiginmanni sínum og svo fylgd sonar til að fara í kaffi til vin- konu sinnar í næsta húsi. Það eru til dæmis einungis nokkrar vikur síðan konur í Sádi-Arabíu fengu leyfi til að keyra bíla. Margar þeirra segja: Við verðum að hylja okkur og förum ekki einar út vegna þess að ókunn- um karlmönnum er ekki treystandi. Þessar konur eru aldar upp við það að treysta engum karlmanni nema í nánustu fjölskyldu, og svo geta þær reyndar ekki treyst þeim heldur. Ef einhverjum finnst að þær hafi brotið gegn heiðri fjölskyld- unnar þá eiga þær á hættu að vera drepnar af þeim karlmönnum sem þeim er sagt að treysta. Við á Vestur- löndum erum sem betur fer komin lengra en þetta, en samt hefur svo að segja hver einasta kona sem ég þekki upplifað einhvers konar ofbeldi af hálfu karlmanns. Nú er ég að sjálfsögðu ekki að segja að allir karlmenn séu ofbeldis- menn. En ef helmingur mannkyns, svo að segja hver einasta kona hvar sem er í heiminum, hefur upplifað einhvers konar ógn af hálfu karl- manns, þá er einhver gríðarleg skekkja á ferðinni.“ Forréttindakerfi Vesturlanda Hefurðu verið meðvituð um þessa skekkju frá unga aldri? „Ég er alin upp af femínistum, ekki bara móður minni heldur líka pabba, og hef alltaf verið mjög með- vituð um stöðu kynjanna og velt henni mikið fyrir mér. Mér finnst það vera hluti af því að vera lifandi í því samfélagi sem við búum í að skoða samskiptin og kerfin sem við búum okkur til. Kynjakerfið er gríðarlega sterkt hreyfiafl í samfélagi okkar. En það eru fleiri kerfi sem þarf að skoða, eins og til dæmis for- réttindakerfi Vesturlanda og hvernig tekið er á móti flóttamönnum. Ég var í Þýskalandi þegar Merkel sagði: Við getum þetta – og ákvað að taka á móti rúmri milljón flótta- manna. Og það gekk með samhentu átaki þjóðarinnar. Við Vesturlanda- búar njótum forréttinda meðan hópar fólks flýja stríð og örbirgð og streyma til Vesturlanda. Skiljanlega vill þetta fólk þangað, þó ekki væri nema til að bjóða börnum sínum betra líf. Það er oft forkastanlegt hvernig við á Íslandi komum fram við inn- flytjendur og flóttamenn. Það eru hundrað ár síðan við vorum ein fátækasta þjóð í Evrópu. Við nutum mikillar aðstoðar til að komast á þann stað sem við erum í dag. Við erum gríðarlega ríkt land og ótrúlega fá. Fátt betra gæti komið fyrir okkur en að taka fagnandi á móti fólki, en þá verðum við að gera það af alvöru. Margt er vel gert en það er ekki boðlegt að láta fólk bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir landvistarleyfi. Senda fjölskyld- ur, sem hér hafa komið sér vel fyrir, aftur úr landi, jafnvel með veik börn. Það er sammennsk ábyrgð okkar að taka vel á móti þessu fólki. Alveg eins og það er sammennsk ábyrgð okkar að sjá til þess að kynin hafi jafna möguleika og geti lifað án þess að hafa áhyggjur af að vera beitt kúgun eða ofbeldi.“ Mér finnst íslenskt saMfélag á Margan hátt hafa tapað virð- ingu sinni fyrir lista- MönnuM. Það er ekki litið svo á að Þeir eigi að eiga Þátt í Því að Móta saMfélagið og Þeir eru ekki stór hluti af hinni saMfélags- legu uMræðu. „Sjálfsmynd mína og áhuga í lífinu byggi ég ekki bara á frama mínum sem leikkonu,“ segir Sólveig. Fréttablaðið/Sigtryggur ari ↣ 2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R44 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 2 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 4 4 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E A -5 F 1 C 1 F E A -5 D E 0 1 F E A -5 C A 4 1 F E A -5 B 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.