Fréttablaðið - 26.05.2018, Page 44
fáir aðrir eru kallaðir til.“
Þú þekkir bæði íslenskt samfélag
og það þýska, Hvernig er það íslenska
í samanburði við hið þýska?
„Lítið! Hér eru hlutir sem ég kann
mjög vel að meta. Ræturnar eru hér,
vinirnir og fjölskyldan. Tungumálið
og minningar mínar eru meira og
minna á íslensku. Það er margt í
smæðinni sem hefur kosti, eins og
samheldni og hversu fljótt hlutirnir
ganga fyrir sig. Og svo Vesturbæjar-
laugin, sem er næstum því það besta
við Ísland.
Mér finnst hins vegar gríðarlegt
áreiti á Íslandi frá hlutum sem ég
hef engan áhuga á en þeir troða sér
inn í líf mitt, hvort sem það er mið-
næturopnun í Kringlunni, óumbeð-
in lífsstílsráðgjöf eða Eurovision. Í
Þýskalandi finnst mér ég oft lifa ein-
faldara og rólegra lífi og hafa mun
greiðari aðgang að því sem vekur
áhuga minn. Ég hef þar af leiðandi
meiri tíma til að sinna hugðarefnum
mínum og fjölskyldunni. Þar er líka
unnið minna, launin eru betri og
allt miklu ódýrara. Ég upplifi það
næstum því sem ofbeldi að kaupa
hér í matinn. Það er allt alveg fárán-
lega dýrt og gæðin ekki mikil.“
Ætlaði að hætta
Það er mjög oft sagt að það sé erfitt
fyrir leikara að eldast þar sem hlut-
verkum sem þeir fá fækkar svo mjög.
Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir
þessa stétt.
„Þetta er ekki alveg sambærilegt
milli kynjanna. Karlmenn fá frekar að
eldast í þessum bransa en konur. Það
eru einfaldlega fleiri og betri hlutverk
fyrir karla og stundum þarf að grafa
dýpra og hafa meira fyrir því að finna
góð kvenhlutverk. Hins vegar geta
konur auðveldlega leikið karlhlut-
verk eins og dæmin sanna. Stundum
skiptir hreinlega ekki máli hvors kyns
persónan er en oft getur það líka bætt
einhverju við, verið ný og spennandi
nálgun á verkið. Sophie Rois, einhver
þekktasta og virtasta leikkona Þjóð-
verja, sagði í viðtali um daginn að
hún ætlaði héðan af einungis að leika
texta skrifaða fyrir karla, þeir væru
yfirleitt bitastæðari og áhugaverðari.
Hún er að nálgast sextugt.
Það eru ekki mjög margir starfandi
í íslensku leikhúsi sem eru komnir yfir
sextugt. Sérstaklega ekki konur. Ein-
hverjir lifa þó af. Mér finnst við eiga
ótrúlegan fjölda af mjög hæfu sviðs-
listafólki sem fær alltof lítið að gera.
Þetta er mjög sorglegt því krefjandi
listamaður heldur áfram að þroskast
og þróa sig. Það gildir um þetta fag
eins og flest önnur að fólk verður oft
betra með aldrinum.“
Gætirðu hugsað þér að snúa þér að
annarri vinnu en þeirri sem tengist
leiklist?
„Skömmu áður en ég fékk tilboðið
frá Þýskalandi og flutti þangað var ég
búin að taka ákvörðun um að hætta.
Ég var komin í háskólann þar sem ég
lærði þróunarfræði og kynjafræði. Ég
hafði aldrei áður verið í akademísku
námi og fannst það ákaflega skemmti-
legt og gefandi.
Ég held að það sé mikilvægt í hvaða
starfi sem er að ef maður finnur að
það er ekkert að ganga þá er um að
gera að söðla um og gera eitthvað
annað. Það er ótrúlega margt spenn-
andi og skemmtilegt sem er hægt að
gera. Þetta er líka spurning um að hafa
sjálfur stjórnina í eigin lífi og láta ekki
aðra um þá stjórn.
Mér finnst ekkert skemmtilegra
eða meira gefandi en að leika. Þetta
er mín köllun. Ég hef gríðarlega
mikinn áhuga á leikhúsi en hef líka
mikinn áhuga á kvikmyndum. Mér
finnst óskaplega gaman að fylgjast
með því sem er að gerast í íslensku
kvikmynda- og sjónvarpslífi, og vera
núna einhver hluti af því. Ef þetta svo
einhvern tímann gengur ekki lengur
þá verð ég bara að gera eitthvað
annað. Lífið býður upp á ótrúlega
margt. Sjálfsmynd mína og áhuga í
lífinu byggi ég ekki bara á frama
mínum sem leikkonu. Maður hlýtur
að þurfa að horfa víðar og lengra. En
er á meðan er og meðan það gengur
svona vel þá ætla ég að halda áfram.
Ég hefði ekkert á móti því að leika til
níræðs.“
Mikilvægt að hlusta á sögur
beggja kynja
Er leikhúsið og kvikmyndaheimurinn
karlaheimur eða er það að breytast?
„Þetta er að breytast og til þess
hefur þurft mikla baráttu og mikla
umræðu. Það er ekki þannig að jafn-
rétti kynjanna verði náð af sjálfs-
dáðum. Það má aldrei halda að nú sé
þetta bara komið, það verður alltaf
að halda áfram. En við sjáum líka að
hlutir eru að breytast. Bæði í leik-
húsinu og innan sjónvarps- og kvik-
myndabransans, þar eru konur að
gera frábærlega góða hluti. Þetta ger-
ist vegna öflugrar opinberrar baráttu.
Það hefur aldrei verið þannig að
þeir sem eru ríkjandi, í flestum tilvik-
um karlmenn, gefi sitt eftir af sjálfs-
dáðum. Við í hinum vestræna heimi
myndum heldur ekki vera reiðubúin
að gefa eftir eitthvað af okkar miklu
forréttindum, nema við neyddumst
til þess.
Alveg eins og við eigum að hlusta
á fólk frá öðrum menningarheimum,
af því það er áhugavert og gjöfult og
mikilvægt til að víkka sjóndeildar-
hring okkar, þá eigum við að sjálf-
sögðu að hlusta á sögur beggja kynja.
Allt annað er fáránlegt, einfaldlega
hlægilegt.“
Metoo-byltingin hefur skekið sam-
félög. Hefur þú sjálf upplifað áreitni
eða ofbeldi?
„Já. Ég veit ekki um eina einustu
konu sem ekki hefur lent í einhvers
konar kynbundinni áreitni eða
ofbeldi.
Ég man þegar ég opnaði Facebook
og sá alls staðar #metoo og vissi ekki
alveg hvað þetta var og fór að lesa
mér til. Ég sagði svo við manninn
minn: Ætli ég gæti sagt þetta: Metoo?
Hann horfði á mig í forundran. Við
erum búin að vera gift í rúmlega 20
ár og það er fátt sem ég hef lent í sem
hann ekki veit um. Hann fór að rifja
upp fyrir mér atvik, þar á meðal frá
því ég var lítil stelpa, níu ára. Allt í
einu var eins og púsl færu á réttan
stað í hausnum á mér. Ég áttaði mig
á því að mjög mörgu sem ég hafði lent
í hafði ég ýtt til hliðar og látið eins og
það hefði ekki haft áhrif á mig og ekki
heldur skilgreint það sem ofbeldi. Ég
hafði bara tekið því eins og það væri
hluti af því að vera kona að lenda
í ítrekaðri áreitni, meira að segja
ofbeldi.“
Púsl á réttum stað
Hvernig ofbeldi?
„Níu ára gömul var ég send í vist í
sveit og átti að vera þar allt sumarið.
Á sveitabænum var gamall karl sem
gerði sér afskaplega dælt við mig. Mér
var illa við karlinn frá fyrsta degi því
hann vildi alltaf fá mig með sér í girð-
ingarvinnu og var stöðugt að nugga
sér upp við mig og kyssa mig. Þetta
endaði með því að hann var kominn
á rúmstokkinn til mín, búinn að taka
út á sér typpið og ég þurfti að strjúka
honum öllum. Ég man eftir því hvað
mér fannst hann ógeðslegur með
þetta litla skrælnaða typpi sitt og
hversu viðbjóðslegt var að þurfa að
koma við það. Ég stakk af þennan
morgun. Ég var eins og Stikilsberja-
Finnur með prik sem ég batt á visku-
stykki með tveimur matarkexum og
gekk allan daginn út til frændfólks
míns sem bjó yst í dalnum. Mér
fannst ég hafa gengið burt sem sigur-
vegari. Ég var ekki send til baka.
Ég myndi ekki beint segja að
þetta hefði haft djúpstæð áhrif á
mig, kannski af því þetta gekk ekki
lengra. Ég var í þeirri stöðu að ég
gat farið til frændfólks míns sem ég
sagði frá þessu. En svo hef ég auð-
vitað upplifað, eins og allar konur,
endalaust af káfi og niðrandi fram-
komu, athugasemdum, yfirgangi og
ömurlegum bröndurum sem ég hló
ekki að og þá var sagt að ég hefði
ekki húmor.
Það sem ég held að svo margar
konur hafi upplifað núna með
Metoo er að þegar þær setja öll þessi
púsl á réttan stað þá átta þær sig á
því að allt þetta hafði áhrif á þær.
Hefur haft áhrif á framkomu þeirra,
sjálfstraust og gjörðir. Konur hafa
ekki alltaf staðið almennilega með
sjálfum sér því þær vilja ekki vera
leiðinlegar og standa kannski ekki
nægilega vel með öðrum konum. Ég
hef upplifað að það var illa komið
fram við mig og ég var með óbragð í
munninum vegna þess að ég var ekki
að standa með sjálfri mér og öðrum
konum. En af því ég var inni í þess-
ari menningu setti ég hlutina ekki í
rétt samhengi. Það er einmitt þetta
að setja hlutina í rétt samhengi sem
mér finnst svo merkilegt við Metoo.
Ég er búin að lesa mjög margar
bækur í röð sem eru viðtöl við ungar
konur í Miðausturlöndum. Kúg-
unin þar víða er svo yfirgengileg. Í
sumum löndum þar verða konur að
fá leyfi frá eiginmanni sínum og svo
fylgd sonar til að fara í kaffi til vin-
konu sinnar í næsta húsi. Það eru til
dæmis einungis nokkrar vikur síðan
konur í Sádi-Arabíu fengu leyfi til að
keyra bíla. Margar þeirra segja: Við
verðum að hylja okkur og förum
ekki einar út vegna þess að ókunn-
um karlmönnum er ekki treystandi.
Þessar konur eru aldar upp við
það að treysta engum karlmanni
nema í nánustu fjölskyldu, og svo
geta þær reyndar ekki treyst þeim
heldur. Ef einhverjum finnst að þær
hafi brotið gegn heiðri fjölskyld-
unnar þá eiga þær á hættu að vera
drepnar af þeim karlmönnum sem
þeim er sagt að treysta. Við á Vestur-
löndum erum sem betur fer komin
lengra en þetta, en samt hefur svo að
segja hver einasta kona sem ég þekki
upplifað einhvers konar ofbeldi af
hálfu karlmanns.
Nú er ég að sjálfsögðu ekki að
segja að allir karlmenn séu ofbeldis-
menn. En ef helmingur mannkyns,
svo að segja hver einasta kona hvar
sem er í heiminum, hefur upplifað
einhvers konar ógn af hálfu karl-
manns, þá er einhver gríðarleg
skekkja á ferðinni.“
Forréttindakerfi Vesturlanda
Hefurðu verið meðvituð um þessa
skekkju frá unga aldri?
„Ég er alin upp af femínistum,
ekki bara móður minni heldur líka
pabba, og hef alltaf verið mjög með-
vituð um stöðu kynjanna og velt
henni mikið fyrir mér. Mér finnst
það vera hluti af því að vera lifandi
í því samfélagi sem við búum í að
skoða samskiptin og kerfin sem
við búum okkur til. Kynjakerfið er
gríðarlega sterkt hreyfiafl í samfélagi
okkar. En það eru fleiri kerfi sem
þarf að skoða, eins og til dæmis for-
réttindakerfi Vesturlanda og hvernig
tekið er á móti flóttamönnum.
Ég var í Þýskalandi þegar Merkel
sagði: Við getum þetta – og ákvað
að taka á móti rúmri milljón flótta-
manna. Og það gekk með samhentu
átaki þjóðarinnar. Við Vesturlanda-
búar njótum forréttinda meðan
hópar fólks flýja stríð og örbirgð og
streyma til Vesturlanda. Skiljanlega
vill þetta fólk þangað, þó ekki væri
nema til að bjóða börnum sínum
betra líf.
Það er oft forkastanlegt hvernig
við á Íslandi komum fram við inn-
flytjendur og flóttamenn. Það eru
hundrað ár síðan við vorum ein
fátækasta þjóð í Evrópu. Við nutum
mikillar aðstoðar til að komast á
þann stað sem við erum í dag.
Við erum gríðarlega ríkt land og
ótrúlega fá. Fátt betra gæti komið
fyrir okkur en að taka fagnandi á
móti fólki, en þá verðum við að gera
það af alvöru. Margt er vel gert en
það er ekki boðlegt að láta fólk bíða
mánuðum og jafnvel árum saman
eftir landvistarleyfi. Senda fjölskyld-
ur, sem hér hafa komið sér vel fyrir,
aftur úr landi, jafnvel með veik börn.
Það er sammennsk ábyrgð okkar að
taka vel á móti þessu fólki. Alveg eins
og það er sammennsk ábyrgð okkar
að sjá til þess að kynin hafi jafna
möguleika og geti lifað án þess að
hafa áhyggjur af að vera beitt kúgun
eða ofbeldi.“
Mér finnst íslenskt
saMfélag á Margan
hátt hafa tapað virð-
ingu sinni fyrir lista-
MönnuM. Það er ekki
litið svo á að Þeir eigi
að eiga Þátt í Því að
Móta saMfélagið og
Þeir eru ekki stór hluti
af hinni saMfélags-
legu uMræðu.
„Sjálfsmynd mína og áhuga í lífinu byggi ég ekki bara á frama mínum sem leikkonu,“ segir Sólveig. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
↣
2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R44 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-5
F
1
C
1
F
E
A
-5
D
E
0
1
F
E
A
-5
C
A
4
1
F
E
A
-5
B
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K