Fréttablaðið - 26.05.2018, Síða 54
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Ég er byrjuð á rann-
sókn sem tengist
klaustrum. Hún snýst um
aftökur á Íslandi eftir
siðaskiptin. Eftir að
klausturhald lagðist af
settust sýslumenn að á
þessum klausturstöðum
og þeir sáu um að
dæma fólk og
framfylgja
dauðadómum.
Á sýningunni eru upplýsingar og gripir sem fundust í rann-sókn minni á klaustrum
á Íslandi. Ákveðið þema er fyrir
hvern klausturstað, svo hún er
mjög fjölbreytt og fróðleg,“ segir
Steinunn Kristjánsdóttir, pró-
fessor í fornleifafræði við Háskóla
Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.
Í fyrra kom út bók hennar Leitin
að klaustrunum – klausturhald
á Íslandi í fimm aldir, sem vakti
mikla athygli og var m.a. tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
og Fjöruverðlaunanna.
Í rannsókn Steinunnar var leitað
að hvers kyns vísbendingum um
klausturhald í landinu frá 1030–
1554 en klausturhald hófst með
stofnun klausturs í Bæ í Borgarfirði
árið 1030. Samtals voru þrettán
klaustur stofnuð á fjórtán stöðum
á kaþólsku tímaskeiði hérlendis en
því síðasta var komið á fót á Skriðu-
klaustri árið 1493.
„Klaustrin urðu ásamt biskups-
stólunum að umsvifamestu kirkju-
legu stofnunum í landinu fram til
siðaskipta. Þá var þeim lokað og
kaþólsk trú bönnuð með lögum.
Klausturhald féll síðan í gleymsku
og minjar úr klaustrum týndust.
Þegar ég hóf rannsóknina á sínum
tíma átti ég alls ekki von á að hún
yrði jafnviðamikil og raun ber vitni
og það er enn af nógu að taka,“ segir
Steinunn og bætir við að hún finni
fyrir miklum áhuga fólks á þessu
málefni.
„Það kemur mér ánægjulega á
óvart. Fólk er almennt opið fyrir
öllum trúarbrögðum og hefur einn-
ig áhuga á sögunni, líka því sem
ekki hefur mikið verið talað um,“
segir hún.
Klausturgripir fundust á
söfnum
Við rannsóknina á klaustrunum
var notast við jarðsjármælingar
og grafnir könnunarskurðir þar
sem vísbendingar sáust. Leitað var
að klausturgripum í söfnum og
kirkjum og að klausturplöntum,
rústum og örnefnum úti á vettvangi.
Heimildir voru lesnar, jafnt fornbréf
sem þjóðsögur, auk þess sem farið
var yfir kort og ljósmyndir.
Steinunn er hvergi nærri hætt
að rannsaka klaustur, þótt hún
hafi þegar skrifað 600 síðna bók
um málefnið. Í byrjun júní hefst
uppgröftur að Þingeyrum þar sem
Þingeyrarklaustur stóð til forna og
stendur yfir í mánuð.
„Ég er líka byrjuð á rannsókn
sem tengist klaustrum en hún
snýst um aftökur á Íslandi eftir
siðaskiptin. Eftir að klausturhald
lagðist niður settust sýslumenn að
á þessum klausturstöðum og þeir
sáu um að dæma fólk og framfylgja
dómum, líka dauðadómum. Ég er
að leita að dysjum og sögum þessa
fólks sem var tekið af lífi. Það var
oft dysjað á aftökustaðnum því
það missti réttinn til
greftrunar í kirkju-
garði. Þetta er líka
stærra verkefni en ég
átti von á, en um er að
ræða 300 mál á 300 ára
tímabili. Þessi mál eru
einnig hluti af sögunni sem
ekki hefur mikið verið talað
um,“ segir Steinunn.
Margar vinnukonur
voru líflátnar
Hún segir að gögn bendi til þess
að margar vinnukonur hafi verið
teknar af lífi á þessu tímabili og
áhugavert að skoða hverju það sæti.
„Mig langar að skoða þetta mál út
frá femínisma og valdamisvægi. Í
kaþólsku var það guð sem réð refs-
ingu fólks og það gat unnið dóma af
sér. Með stóradómi eftir siðaskiptin
missti kirkjan vald yfir refsingum
og það færðist yfir til sýslumanna.
Þeir gátu því ráðið örlögum fólks,“
greinir Steinunn frá.
Búið er að grafa upp tvær dysjar
sem báðar eru á höfuðborgarsvæð-
inu. „Þessir staðir eru í raun allt í
kringum okkur,“ segir Steinunn.
Nánar má lesa um sýninguna Leitin
að klaustrunum á vef Þjóðminja-
safnsins, thjodminjasafn.is.
Rannsakar klausturstaði
og aftökur á Íslandi
Sýningin Leitin að klaustrunum verður opnuð á Þjóðminjasafni Íslands í dag. Hún byggir á rann-
sókn Steinunnar Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði. Á sýningunni má m.a. sjá merka gripi
sem hafa fundist á klausturstöðum víða um land og fá fjölbreyttan fróðleik um um klaustrin.
Steinunn segist finna fyrir miklum áhuga á sögu klaustra á Íslandi. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Á sýningunni má m.a. sjá vígslustein helgrar byggingar sem kom í ljós við framkvæmdir árið 2008. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Innköllun á fæðubótarefnunum
Now B-100
Icepharma er umhugað um öryggi neytenda og hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,
ákveðið að innkalla Now B-100 þar sem ráðlagður neysluskammtur sem tilgreindur er á vörunni
er hærri en öryggismörk Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) segja til um.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Now B-100
Strikanúmer: B-100, 100 hylki 733739004369
Lotunúmer og fyrning:
B-100 – lotur: 3042426 dags. 31.5.2020 , 3032411 dags. 31.3.2020, 3025270 dags. 31.01.2020
Framleiðandi: Now foods
Dreifing: Akureyrarapótek ehf, Apótek Garðabæjar ehf, Apótek Hafnarfjarðar ehf, Apótek MOS, Apótek Ólafsvíkur, Apótek Suðurnesja, Apótek Vesturlands ehf, Apótekarinn Bíldshöfða,
Apótekarinn Domus Medica, Apótekarinn Eiðistorgi, Apótekarinn Fitjum, Apótekarinn Fjarðak./Hólshr., Apótekarinn Glæsibæ, Apótekarinn Hafnarstr.91-95, Apótekarinn Hamraborg, Apótekarinn Helluhrauni,
Apótekarinn Hrísalundi, Apótekarinn Hveragerði, Apótekarinn Hvolsvelli, Apótekarinn Höfða, Apótekarinn í Vestmannaeyjum, Apótekarinn Keflavík, Apótekarinn Mjódd, Apótekarinn Mosfellsbæ,
Apótekarinn Salahverfi, Apótekarinn Selfossi, Apótekarinn Skipholti, Apótekarinn Smiðjuvegi , Apótekarinn Vallakór, Apótekið Garðatorgi, Apótekið Hólagarði, Apótekið Setbergi, Apótekið Skeifunni,
Apótekið Spönginni, Austurbæjarapótek ehf., Árbæjarapótek ehf., Blómaval Reykjavík, Borgarapótek, Farmasía ehf, Fjarðarkaup ehf., Fjarðarkaup Fræið, Garðs Apótek ehf., Gló verslun, Hagkaup –
Akureyri, Hagkaup – Eiðistorgi, Hagkaup – Garðabæ, Hagkaup – Kringlan, Hagkaup – Skeifan, Hagkaup – Smáralind, Hagkaup – Spöngin, Heilbr.st. Vesturl. Lyfs Hólma, Hraunbergsapótek ehf, Ice-
land Engihjalla, Iceland Staðarberg, Iceland Vesturberg, Iceland-Verslun Akureyri, Iceland-Verslun ehf Arnarbakka, Iceland-Verslun Keflavík, IceMed á Íslandi slf, Inter Medica ehf, ÍslandsApótek
ehf., Kjörbúðin Blönduósi, Kjörbúðin Bolungarvík, Kjörbúðin Búðardal, Kjörbúðin Dalvík, Kjörbúðin Grundarfirði, Kjörbúðin Neskaupstað, Kjörbúðin Sandgerði, Kjörbúðin Seyðisfirði, Kjörbúðin
Siglufirði, Kjörbúðin Skagaströnd, Krónan Akranesi, Krónan Árbæ, Krónan Bíldshöfða, Krónan Fiskislóð, Krónan Fitjar, Krónan Flatahrauni, Krónan Grafarholti, Krónan Hamraborg, Krónan Hvaleyrar-
braut, Krónan Jafnaseli, Krónan Lindir, Krónan Mosfellsbæ, Krónan Nóatúni, Krónan Reyðarfirði, Krónan Selfossi, Krónan Vallakór, Krónan Vestmannaeyjum, Lyf og Heilsa Austurveri, Lyf og Heilsa
Glerártorgi, Lyf og Heilsa Granda, Lyf og Heilsa Hafnarfirði, Lyf og heilsa Kringlunni 1 hæð, Lyf og heilsa SA lyfjaskömmtun, Lyfja lyfjaútibú Stykkishólmi, Lyfja Borgarnesi, Lyfja Hafnarstræti, Lyfja
Ísafirði, Lyfja Laugavegi, Lyfja Lágmúla, Lyfja lyfjaútibú Blönduós, Lyfja lyfjaútibú Eskifirði, Lyfja lyfjaútibú Hvammstanga, Lyfja lyfjaútibú Patreksfirði, Lyfja Nýbýlavegi ,Lyfja Sauðárkróki, Lyfja Selfossi,
Lyfja Smáralind, Lyfja Smáratorgi, Lyfjaval ehf Mjódd, Lyfjaval ehf Álftamýri, Lyfjaver ehf, Lyfsalinn, Nesbakki, Nettó Akureyri, Nettó Borgarnesi, Nettó Búðakór, Nettó Egilsstöðum, Nettó Granda,
Nettó Grindavík, Nettó Hafnarfirði, Nettó Hrísalundi, Nettó Húsavík, Nettó Höfn í Hornafirði, Nettó Iðavöllum, Nettó Ísafirði, Nettó Mjódd, Nettó Reykjanesbæ, Nettó Salavegi, Nettó Selfossi, Reykjanes-
apótek ehf, Reykjavíkur Apótek, Rima Apótek ehf., Seljakjör – Samkaup, Siglufjarðar Apótek ehf., Urðarapótek ehf., Vöruhótel Krónan Bakkinn.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru beðnir um að skila henni á sölustaði eða til Icepharma, Lynghálsi 13
á milli 8-16 alla virka daga. Neytendur fá vöruna endurgreidda að fullu.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . M A Í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
A
-5
A
2
C
1
F
E
A
-5
8
F
0
1
F
E
A
-5
7
B
4
1
F
E
A
-5
6
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
4
4
s
_
2
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K