Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 10

Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017 Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju. Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is ENDURNÝJAÐU TENGSLIN VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM. ŠKODA KODIAQ frá: 5.590.000 kr. Fjölskyldan er í fyrirrúmi við þá uppbyggingu sem framundan er hjá Hafnarfjarðarbæ. Í fjárhagsáætlun næsta árs sem samþykkt var á bæj- arstjórnarfundi í gær er lögð áhersla á umbætur í leik- og grunn- skólum, bæði í faglegu starfi og hús- næði og aðbúnaði nemenda og starfsfólks. Á næsta ári verður lögð áhersla á aukna samvinnu fagfólks á fjöl- skyldu- og fræðslusviði í þágu barna og ungmenna og er sérstök áhersla á forvarnir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarð- arbæ. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun inni í leik- og grunnskólum með það að markmiði að leysa vanda barns áður en hann verður of stór og oft á tíðum illviðráðanlegur. Útsvar verður óbreytt í Hafn- arfirði, 14,48%. Jafnframt er gert ráð fyrir að álagningarprósenta fasteignagjalda lækki milli ára til að mæta mikilli hækkun fasteignamats. Gjaldskrár hækka almennt ekki. Útgjöld aukast um 588 milljónir umfram almennar verðlagshækk- anir. Þau fara, samkvæmt tilkynn- ingunni, meðal annars til leik- og grunnskóla, fjölskylduþjónustu, við- halds eigna, menningarmála og um- hverfisþjónustu. Gert er ráð fyrir að keypt verði fé- lagslegt húsnæði fyrir 500 milljónir króna og það fjármagnað með lán- töku. Bætt verði í næstu árin og keypt félagslegt húsnæði fyrir sam- tals 2 milljarða fram til ársins 2021. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Hafnarfjörður Umskipti hafa orðið í rekstri Hafnarfjarðarbæjar síðustu ár. Útgjöld aukast um 588 milljónir kr.  Gjaldskrár hækka ekki í Hafnarfirði Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var samþykkt af meirihluta borgar- stjórnar í fyrrinótt. Í greinargerð með áætluninni kemur fram að svig- rúmi, sem hafi myndast í fyrra og sé til staðar í ár varðandi rekstur borg- arinnar, sé varið í aukin framlög til leik- og grunnskóla, auk húsnæðis- mála og velferðarþjónustu. Tekjur borgarinnar aukast tals- vert, en auk þess munu skuldir A- hluta borgarinnar hækka um 7,6 milljarða milli ára. Fram kemur, að stærstu verkefnin séu nú í Úlfarsárdal þar sem skóli, íþróttahús og sundlaug muni rísa. Þá verði byggt íþróttahús, knatthús og fimleikahús í Breiðholti á næstu ár- um. Einnig að aukin framlög fari til viðhalds á húsnæði og öðrum eignum borgarinnar árið 2018 og til næstu ára. Kostnaðarsamasti málaflokkur borgarinnar er skóla- og frístunda- svið en kostnaður borgarinnar vegna hans er 47,8 milljarðar á næsta ári og hækkar um tæpa tvo milljarða miðað við útkomuspána. Þá er gert ráð fyrir að verja 22,5 milljörðum í velferðar- svið, en á þessu ári er áætlað að kostnaðurinn verði 21,8 milljarðar. Áætlað er að verja 7,7 milljörðum í íþrótta- og tómstundasvið. Gert er ráð fyrir að tekjur Reykja- víkurborgar aukist um 5,7% miðað við spá fyrir árið 2017 og verði sam- tals 116,9 milljarðar miðað við 109,8 milljarða í ár, en mesta hækkunin er í formi hærri skatttekna sem gert er ráð fyrir að verði 90,8 milljarðar í stað 83 milljarða á þessu ári. Skuldir hækka um 7,6 milljarða Þá er gert ráð fyrir að laun og launatengd gjöld hækki um tæplega 5 milljarða milli ára og verði 76,3 millj- arðar. Nemur hækkunin 6,7% frá út- komuspá þessa árs. Annar rekstrar- kostnaður hækkar einnig og nemur á áætlun 2018 55,3 milljörðum í stað 50 í útkomuspánni. Á móti er breyting vegna lífeyrisskuldbindinga mun minni en í útkomuspánni. 5,4 millj- arðar á næsta ári á móti 11 milljörð- um á þessu ári. Áformað er að samstæða A- og B- hluta borgarinnar skili 17,1 milljarðs rekstrarhagnaði á næsta ári, en í ár gerir útkomuspáin ráð fyrir að af- gangurinn sé 28 milljarðar. Skuldir A-hluta borgarinnar eru samkvæmt útkomuspá um 100 millj- arðar. Gert er ráð fyrir að þær verði um 107,6 milljarðar á næsta ári sam- kvæmt fjárhagsáætluninni. Þegar rekstrartölur borgarinnar eru skoðaðar á hvern íbúa má sjá að áætlað er að tekjur í formi skatttekna og frá jöfnunarsjóði nema 788 þúsund krónum á næsta ári samanborið við 727 þúsund á þessu ári. Þá hækka þjónustutekjur lítillega, úr 630 þús- und í 639 þúsund. Rekstrargjöld og fjármagnsliðir nema hins vegar 1.322 þúsund krónum á hvern íbúa. Skuld- bindingar eru 362 þúsund á hvern íbúa og skuldir rúmlega 2 milljónir. Tekjur og skuldir Reykjavíkur aukast  Stærstu verkefnin á næsta ári verða í Úlfarsárdal Morgunblaðið/Golli Ráðhúsið Borgarstjórn Reykjavíkur hefur afgreitt fjárhagsáætlun næsta árs.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.