Morgunblaðið - 07.12.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ
með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju.
Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM.
ŠKODA KODIAQ frá:
5.590.000 kr.
Fjölskyldan er í fyrirrúmi við þá
uppbyggingu sem framundan er hjá
Hafnarfjarðarbæ. Í fjárhagsáætlun
næsta árs sem samþykkt var á bæj-
arstjórnarfundi í gær er lögð
áhersla á umbætur í leik- og grunn-
skólum, bæði í faglegu starfi og hús-
næði og aðbúnaði nemenda og
starfsfólks.
Á næsta ári verður lögð áhersla á
aukna samvinnu fagfólks á fjöl-
skyldu- og fræðslusviði í þágu barna
og ungmenna og er sérstök áhersla
á forvarnir, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Hafnarfjarð-
arbæ. Áhersla er lögð á snemmtæka
íhlutun inni í leik- og grunnskólum
með það að markmiði að leysa vanda
barns áður en hann verður of stór og
oft á tíðum illviðráðanlegur.
Útsvar verður óbreytt í Hafn-
arfirði, 14,48%. Jafnframt er gert
ráð fyrir að álagningarprósenta
fasteignagjalda lækki milli ára til að
mæta mikilli hækkun fasteignamats.
Gjaldskrár hækka almennt ekki.
Útgjöld aukast um 588 milljónir
umfram almennar verðlagshækk-
anir. Þau fara, samkvæmt tilkynn-
ingunni, meðal annars til leik- og
grunnskóla, fjölskylduþjónustu, við-
halds eigna, menningarmála og um-
hverfisþjónustu.
Gert er ráð fyrir að keypt verði fé-
lagslegt húsnæði fyrir 500 milljónir
króna og það fjármagnað með lán-
töku. Bætt verði í næstu árin og
keypt félagslegt húsnæði fyrir sam-
tals 2 milljarða fram til ársins 2021.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hafnarfjörður Umskipti hafa orðið í rekstri Hafnarfjarðarbæjar síðustu ár.
Útgjöld aukast um
588 milljónir kr.
Gjaldskrár hækka ekki í Hafnarfirði
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
var samþykkt af meirihluta borgar-
stjórnar í fyrrinótt. Í greinargerð
með áætluninni kemur fram að svig-
rúmi, sem hafi myndast í fyrra og sé
til staðar í ár varðandi rekstur borg-
arinnar, sé varið í aukin framlög til
leik- og grunnskóla, auk húsnæðis-
mála og velferðarþjónustu.
Tekjur borgarinnar aukast tals-
vert, en auk þess munu skuldir A-
hluta borgarinnar hækka um 7,6
milljarða milli ára.
Fram kemur, að stærstu verkefnin
séu nú í Úlfarsárdal þar sem skóli,
íþróttahús og sundlaug muni rísa. Þá
verði byggt íþróttahús, knatthús og
fimleikahús í Breiðholti á næstu ár-
um. Einnig að aukin framlög fari til
viðhalds á húsnæði og öðrum eignum
borgarinnar árið 2018 og til næstu
ára.
Kostnaðarsamasti málaflokkur
borgarinnar er skóla- og frístunda-
svið en kostnaður borgarinnar vegna
hans er 47,8 milljarðar á næsta ári og
hækkar um tæpa tvo milljarða miðað
við útkomuspána. Þá er gert ráð fyrir
að verja 22,5 milljörðum í velferðar-
svið, en á þessu ári er áætlað að
kostnaðurinn verði 21,8 milljarðar.
Áætlað er að verja 7,7 milljörðum í
íþrótta- og tómstundasvið.
Gert er ráð fyrir að tekjur Reykja-
víkurborgar aukist um 5,7% miðað
við spá fyrir árið 2017 og verði sam-
tals 116,9 milljarðar miðað við 109,8
milljarða í ár, en mesta hækkunin er í
formi hærri skatttekna sem gert er
ráð fyrir að verði 90,8 milljarðar í stað
83 milljarða á þessu ári.
Skuldir hækka um 7,6 milljarða
Þá er gert ráð fyrir að laun og
launatengd gjöld hækki um tæplega 5
milljarða milli ára og verði 76,3 millj-
arðar. Nemur hækkunin 6,7% frá út-
komuspá þessa árs. Annar rekstrar-
kostnaður hækkar einnig og nemur á
áætlun 2018 55,3 milljörðum í stað 50
í útkomuspánni. Á móti er breyting
vegna lífeyrisskuldbindinga mun
minni en í útkomuspánni. 5,4 millj-
arðar á næsta ári á móti 11 milljörð-
um á þessu ári.
Áformað er að samstæða A- og B-
hluta borgarinnar skili 17,1 milljarðs
rekstrarhagnaði á næsta ári, en í ár
gerir útkomuspáin ráð fyrir að af-
gangurinn sé 28 milljarðar.
Skuldir A-hluta borgarinnar eru
samkvæmt útkomuspá um 100 millj-
arðar. Gert er ráð fyrir að þær verði
um 107,6 milljarðar á næsta ári sam-
kvæmt fjárhagsáætluninni.
Þegar rekstrartölur borgarinnar
eru skoðaðar á hvern íbúa má sjá að
áætlað er að tekjur í formi skatttekna
og frá jöfnunarsjóði nema 788 þúsund
krónum á næsta ári samanborið við
727 þúsund á þessu ári. Þá hækka
þjónustutekjur lítillega, úr 630 þús-
und í 639 þúsund. Rekstrargjöld og
fjármagnsliðir nema hins vegar 1.322
þúsund krónum á hvern íbúa. Skuld-
bindingar eru 362 þúsund á hvern
íbúa og skuldir rúmlega 2 milljónir.
Tekjur og skuldir
Reykjavíkur aukast
Stærstu verkefnin á næsta ári verða í Úlfarsárdal
Morgunblaðið/Golli
Ráðhúsið Borgarstjórn Reykjavíkur hefur afgreitt fjárhagsáætlun næsta árs.