Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þegar ég kom til Íslands leiðmér eins og ég væri kominheim. Það á afar vel viðmig að vera í svona mikilli
nálægð við náttúruna. Ég ólst upp í
Óðinsvéum í Danmörku sem er þétt-
býli, og til að komast þar út í náttúr-
una þurfti ég að fara á bíl eða í lest,
gera mér ferð. En hér heima á Ís-
landi geng ég út frá heimili mínu í
stutta stund og er þá komin út í frið-
sæla náttúru. Það er yndislegt og
skiptir mig miklu máli,“ segir Aja
Jensen, dönsk ung kona sem ætlaði
að vera aðeins í einn mánuð í starfs-
námi á Íslandi, en hún er hér enn,
nokkrum árum síðar. Hún er búin að
koma sér vel fyrir í Reykholti í Bisk-
upstungum með íslenska kærastan-
um sínum og saman hafa þau eignast
litla stúlku.
Aja lærði Skogteknik í Dan-
mörku og þegar hún fékk tækifæri
til að fara til Íslands í verklega hluta
námsins í einn mánuð, þá sló hún til.
„Ég kynntist kærastanum mín-
um, Níels Magnúsi Magnússyni, ein-
mitt þar í íslenska skóginum,
Haukadalsskógi hér í sveitinni, þar
sem hann starfar. Örlögin leiddu
okkur saman, og núna eigum við níu
mánaða gamla stúlku, Rósu litlu
Jensen, sem er mikill gleðigjafi.“
Þetta er hluti af mér
Aja er listræn og hefur skapað
með höndunum frá því hún man eftir
sér.
„Það hefur alltaf verið
mér eðlislægt, líkt og hluti
af mér, hvort sem það er
að mála eða búa eitthvað
til, og þá sérstaklega úr
því sem náttúran gefur.
Til dæmis úr tré og trjá-
berki, jurtum, mosa og
hverju því sem verður á vegi
mínum. Ég er líka hrifnust af nátt-
úrulegum litum,“ segir Aja en hún
og Níels hafa skapað heilmikið úr
því sem fellur til í skóginum. Níels
hefur gert hillur úr trjábökum með
trjáberkinum á og ýmislegt fleira, en
auk þess býr hann til tóbakshorn,
upptakara og lyklakippur úr horn-
um, enda hæg heimatökin þar
sem foreldrar hans eru
sauðfjárbændur.
„Rósa tengdamóðir
mín selur fyrir okkur það
sem við Níels höfum verið
að búa til í galleríinu sínu,
Gallerí Rós, í Austurhlíð hér
í Biskupstungum, og ferða-
menn eru mjög hrifnir af því. En
ég sel auk þess skartgripina mína á
Instagram.“
Tenging við sögu sauðkindar
Aja býr til hringa, hálsmen,
eyrnalokka og nælur undir merkinu
Naturalistica creations.
„Ég er að prófa mig áfram,
bæði með efnivið og aðferðir, ég nota
til dæmis brot úr laufblöðum og
blómum sem ég finn úti í náttúrunni,
þurrka þau og mála eða gylli, og set
svo á bakgrunn hrings eða hálsmens
og lími gler yfir. Ég nota líka myndir
og ég hef sagað lítil brot úr hrúts-
hornum til að nota í skartgripagerð-
ina, mér finnst hornin spennandi
efniviður og tengingin við sögu sauð-
kindarinnar á Íslandi. Mér finnst
frábært að búa til verðmæti úr því
sem annars væri hent,“ segir Aja
sem leggur mikið upp úr því að efnin
sem hún notar séu sem hreinust.
„Ég hef verið að prófa að gera
einfalda hringi úr trjáberki. Mér
finnst frábært að geta borið á mér
skart sem geymir eitthvað úr nátt-
úrunni, en ég hef stundað fjall-
göngur og útivist alla tíð, og þá finn
ég alltaf eitthvað í þeim ferðum sem
ég tek með mér heim til að búa eitt-
hvað til. Það er svo ótrúlega margt
smátt og fagurt úti í náttúrunni,
bara ef maður gefur því gaum,“ seg-
ir Aja og bætir við að hún fyllist
orku við að skapa og það veiti henni
mikla ánægju. „Níels segir að ég
hverfi inn í annan heim þegar ég er
að þessu.“
Lukkukróna á fæðingardeild
Aja segir að fólk geti sent henni
eða komið með til hennar eitthvað
sérstakt sem er því kært, blóm eða
annað, og hún geti búið til skartgrip
sem dýrmætið er hluti af. „Þá getur
fólk borið á sér það sem hefur til-
finningalegt gildi fyrir það. Til dæm-
is ætla ég að búa til skartgrip fyrir
dóttur mína úr krónupeningi sem við
Níels fundum í herbergi sem við
dvöldum í á kvennadeild eftir fæð-
inguna. Fæðingin var erfið og ég var
send í bráðakeisara en allt fór vel.
Við lítum á þessa krónu sem lukku-
peninginn okkar, því það er gæfa að
fá heilbrigt barn í hendurnar þegar
hlutirnir standa tæpt. Ég hef geymt
þessa krónu vel og vandlega og
hlakka til að búa til skartgrip handa
Rósu og segja henni söguna af krón-
unni þegar hún verður eldri.“
Nýtir það sem náttúran gefur
Aja ætlaði að skreppa til
Íslands í einn mánuð
fyrir nokkrum árum, en
örlögin gripu í taumana
og hún er hér enn. Hún
kann vel að meta ná-
lægðina við náttúruna á
Íslandi og sækir þangað
efniðvið í skart.
Hálsmen Í því er bútur úr hrútshorni og gyllt laufblaðsbrot.
Litla listræna fjölskyldan Níels, Rósa og Aja við hillu sem Níels bjó til. Vatnslitamyndirnar eru eftir Aju.
Armband Ævintýralegt og fínlegt. Haustlegt Þurrkaðar jurtir undir gleri. Flott Níels bjó til úr hornum.
Fingurskart Aja er hrifin af því að búa til skart sem lítur út fyrir að vera gamalt. Hringir með máluðum brotum laufblaða.
Litríkir Engir tveir hringar eru eins, sem Aja býr til af listfengi og natni.
Þeir sem vilja kaupa skart af
Aju eða fá hana til að búa sér-
staklega til fyrir sig skart, geta
sent henni skilaboð á messenger á
Facebook: Aja Jensen, á In-
stagram: naturalistica_creations,
eða í tölvupósti: ajajens@gmail-
.com.