Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 16
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Gjafir sem gle
ðja
HAMMERSHOI
Blómavasi 20 cm
Verð 7.690,-
AHLMAN
Kertastjaki
Verð 4.390,- STELLA
Hangandi kertastjaki
Verð 5.590,-
NOBILI
Fyrir sprittkerti
Verð frá 4.190,-
FIORA
Vasi 20 cm gull
Verð 7.190,-
OMAGGIO
Blómavasi 28 cm
Verð 9.390,-
HAMMERSHOI
Kanna
Verð 9.990,-
URBANIA
Kertahús
Verð frá 2.990,-
LOVE SONG
Blómavasi
Verð frá 4.190,-
STELLA
Kertastjaki
Verð 4.190,-
GLOBO
Kertastjaki 23 cm
Verð 7.790,-
HAMMERSHOI
Teljós
Verð 3.190,-
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Innlent
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Miðaldra karlmenn eru sá hópur
sem kann síst að haga sér í at-
hugasemdakerfum netmiðlanna og
á bloggsíðum. Það eru helst frétt-
ir um konur og útlendinga sem
þessi hópur skrifar óviðeigandi at-
hugasemdir við. Þetta segja þeir
Árni Matthíasson, einn umsjónar-
manna blog.is sem hýst er og rek-
ið af mbl.is og Kristjón Kormákur
Guðjónsson, ritstjóri DV. Hvor-
ugur þeirra segist kunna neinar
skýringar á því hvers vegna þessi
hópur hagi sér svona umfram
aðra.
Kristjón segir að karlmenn séu
í miklum meirihluta þeirra sem
hafi verið bannaðir á athuga-
semdakerfi DV.is vegna óviðeig-
andi athugasemda og orðbragðs. Í
flestum tilvikum séu þeir mið-
aldra. „Í athugasemdum við sum-
ar fréttir hafa menn farið alger-
lega fram úr sér, við höfum
stundum ekki undan við að fylgj-
ast með því sem er skrifað. Þegar
það gerist höfum við þurft að loka
fyrir kerfið,“ segir hann.
Þær fréttir sem helst vekja
hörð viðbrögð þessa hóps segir
Kristjón vera fréttir af stjórn-
málum og þeim flokkum sem séu í
ríkisstjórn hverju sinni. „Fréttir
um Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokkinn virðast kveikja mjög í
lesendum DV. Þá verða oft
gríðarlega harðar umræður um
fréttir sem tengjast femínisma á
einhvern hátt og við höfum oft
þurft að grípa þar í taumana. Það
sama gildir um fréttir af útlend-
ingum og hælisleitendum.“
Getur verið erfitt viðureignar
Kristjón segir að í þessum efn-
um sé reynt að feta á milli þess
að vera vettvangur frjálsra skoð-
anaskipta og ábyrgra samskipta.
„En stundum þarf að vera fundar-
stjóri og vera leiðinlegur,“ segir
hann.
Að sögn Kristjóns getur verið
býsna snúið að koma í veg fyrir
að fólk, sem ítrekað hefur skrifað
óviðeigandi athugasemdir á DV.is,
haldi því áfram. „Stundum höfum
við bannað einhvern, sem hefur
þá bara mætt galvaskur til leiks
undir öðru nafni,“ segir hann, en
athugasemdakerfi DV.is er tengt
við Facebook-síður notenda. „Við
vitum dæmi um menn sem eru
með allt að tíu gervisíður og það
er erfitt að fást við það.“
Hótuðu að nauðga konum
Árni segist geta nefnt mörg
dæmi um fréttir eða atburði sem
hafa vakið upp sterk viðbrögð á
blog.is og í athugasemdakerfi
mbl.is. Eitt svæsnasta dæmið sé
umdeild klámráðstefna sem til
stóð að halda á Hótel Sögu árið
2007, en á þeim tíma var bloggið
mjög vinsæll miðill. „Þá voru
margir ungir karlmenn sem hög-
uðu sér þannig að það þurfti að
taka út bloggfærslur þeirra. Þeir
skrifuðu mjög óþverralega hluti
um fólk, sökuðu nafngreinda ein-
staklinga um að vera með geð-
sjúkdóma eða að vera viðriðna
glæpsamlegt athæfi. Þá var kon-
um sem mótmæltu þessari ráð-
stefnu hótað nauðgunum, bar-
smíðum og öðru ofbeldi. Obbinn
af þeim sem svona skrifuðu var
karlmenn á þrítugsaldri,“ segir
Árni.
Hann segir að síðustu fimm ár
eða svo hafi umsjónarmenn blog-
.is og athugasemda við fréttir á
mbl.is eingöngu þurft að hafa af-
skipti af miðaldra karlmönnum.
Tilefnið sé yfirleitt fréttir af inn-
flytjendum eða af konum sem
krefjist réttar síns á einhvern
hátt.
Einbeittur brotavilji
Árni segir að helst sé gripið inn
í þegar verið sé að saka fólk um
ólöglegt athæfi. Ekki sé heldur
hægt að samþykkja þegar fólki
séu gerðir upp geðsjúkdómar eða
það svívirt. „Við leyfum heldur
ekki að veist sé að manni eða hópi
manna vegna trúarbragða, litar-
háttar eða kynhneigðar, það er í
samræmi við almenn hegningar-
lög.“
Árni segir að ýmsar leiðir séu
notaðar í þessu sambandi.
Stundum sé bloggsíðum lokað,
sumum sé bannað alfarið að
blogga hjá blog.is. Í sumum til-
vikum sé lokað fyrir IP-tölur, en
sumir reyni að komast hjá því
með því að stofna erlenda IP-tölu.
„Hjá sumum er býsna einbeittur
brotavilji, þeir leita allra leiða til
að geta hagað sér dólgslega á net-
inu.“
Getty Images/iStockphoto
Athugasemdakerfi Að sögn Árna Matthíassonar hjá mbl.is og Kristjóns Kormáks Guðjónssonar hjá DV.is eru mið-
aldra karlmenn í meirihluta þeirra sem hafa þarf afskipti af vegna óviðeigandi athugasemda á þessum vefsíðum.
Flestir netdólgar eru
miðaldra karlmenn
Fréttir um konur og innflytjendur vekja hörð viðbrögð
Nýverið greindu norskir fjölmiðlar frá því að karlar yfir fimmtugu eru
90% þeirra sem skrifa athugasemdir sem er eytt úr athugasemdakerfi
norska vefmiðlisins VG. Helsta ástæða þess að athugasemdum þeirra er
eytt eru að í þeim er talað á óviðeigandi hátt um konur og útlendinga. Í
viðtali við norska ríkissjónvarpið sagðist Øyvind Solstad, umsjón-
armaður athugasemdakerfis VG, telja að fyrir þessu væru nokkrar
ástæður. „Sumir átta sig einfaldlega ekki á því að þeir eru á opinberum
umræðugrundvelli,“ segir Solstad og bætir við að unga fólkið sé ekki sá
hópur sem helst þurfi kennslu í hvernig beri að haga sér á netinu, heldur
ætti það frekar við um þá sem eldri eru.
„Unga fólkið hefur alist upp í netheimum og þess fyrir utan hafa for-
eldrar þess og skólinn sífellt hamrað á því að það verði að vanda það
hvernig það tjáir sig á netinu. Eldra fólkið er margt hvert nýbyrjað að
nota netið og áttar sig ekki á því hvaða áhrif hegðun þess getur haft.“
Þurfa kennslu í nethegðun
ÁTTA SIG EKKI Á AÐ ÞEIR ERU Á OPINBERUM GRUNDVELLI
Árni
Matthíasson
Kristjón K.
Guðjónsson