Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
17
4
6
36
4
Rekstrarland er hluti af Olís
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
NILFISK HÁÞRÝSTIDÆLUR
VINNA VERKIÐ Á METHRAÐA
Nilfisk háþrýstidælur eru til í ýmsum
stærðum og styrkleikum jafnt fyrir heimili
sem til iðnaðar- og fyrirtækjanota. Með
öflugri háþrýstidælu vinnur þú verk á svip-
stundu sem annars tæki mun lengri tíma.
er að þróa með sér vandamál í lið-
og vöðvakerfi líkamans.
Gauti segir að á meðal þess sem
sjúkraþjálfarar fáist við séu kross-
bandaslit. Þau séu um 300 á hverju
ári. Hann telur að meðalkostnaður
við hvert slíkt óhapp sé um ein
milljón króna að lágmarki. Þessi
kostnaður felist í fjarveru frá vinnu,
aðgerðum sem fara þarf í og vanda-
málum sem fylgja í framtíðinni.
Hann telur mikilvægt að reyna að
koma í veg fyrir þessi slys. Það sé
hægt með bættri þjálfun og vitn-
eskju hvers og eins um líkamlegt
ástand sitt.
Að þekkja réttar hreyfingar
Kylfingar eru hópur sem mikið
leitar í sjúkraþjálfun. „Erlendar
rannsóknir sýna að um 18% kylf-
inga eiga við verki eða önnur óþæg-
indi að stríða sem rekja má til golf-
iðkunarinnar,“ segir Gauti. Hann
segir að um 3600 Íslendingar séu
með áverka tengda golfi og mik-
ilvægt sé að nálgast ekki málið að-
eins sem einstaklingsbundin vanda-
mál heldur horfa á hvernig
kylfingar beri sig að á vellinum.
Þeir þurfi að hreyfa sig rétt í sveifl-
unni og kunna að ná stöðugleika. Yf-
ir þessi atriði sé farið í tímum fyrir
kylfinga hjá Sjúkraþjálfun Reykja-
víkur.
„Samhliða aukinni offitu og hreyf-
ingarleysi er þeim sem þróa með sér
sykursýki 2 að fjölga verulega. Með
því að grípa inn í sjúkdómsferlið
snemma er hægt að koma í veg fyrir
og hægja á þróun þessa skelfilega
sjúkdóms sem kostar mikla skerð-
ingu á lífsgæðum, hreyfigetu og or-
sakar marga sjúkdóma sem dýrt er
að vinna á,“ segir Gauti.
„Það hefur á síðustu árum orðið
mikil aukning á komum fólks vegna
álagseinkenna í öxlum, herðum og
hálsi. Þetta er fólk sem vinnur við
tölvur,“ segir Gauti. Hann segir að
krakkar sem límdir eru tölvurnar
sínar alla daga sýni líka slík ein-
kenni í auknum mæli. Svo séu að
skapast vandamál sem rekja megi
til mikillar símanotkunar ungs fólks.
„Staðan sem er á hálsinum þegar
verið er að tala getur haft áhrif á
öndunina,“ segur hann. „Þessi hall-
andi staða þrýstir á taugar sem eiga
að viðhalda taugaflæði niður í
þindina þannig að krakkarnir missa
hæfileikann til að ná djúpri öndun
og það skapar vandamál í framtíð-
inni.“
Alhliða endurhæfingarstöð
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur flutt í ný húsakynni á Fiskislóð 12 sjúkraþjálfarar og 3 íþróttafræð-
ingar Búnaður til að mæla líkamsástand Rétt hreyfing og þjálfun kemur í veg fyrir vandamálin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Æfingar Hóptímar njóta vaxandi vinsælda hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Þeir eru meðal annars fyrir kylfinga og hlaupara.
Nýtt húsnæði Ekki bara hefðbundin sjúkraþjálfun heldur alhliða end-
urhæfingarstöð, segir Gauti Grétarsson.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Hér fer ekki bara fram þessi
hefðbundna sjúkraþjálfun, heldur
lítum við á þetta nýja húsnæði og
þann tækjakost sem hér er sem al-
hliða endurhæfingarstöð þar sem
lögð er áhersla á forvarnir ekkert
síður en úrræði við verkjum og
meiðslum sem fólk kemur til að fá
bót á.“
Þetta segir Gauti Grétarsson
sjúkraþjálfari sem stýrir Sjúkra-
þjálfun Reykjavíkur. Um síðustu
helgi flutti hún starfsemi sína í
glæsileg og rúmgóð húsakynni á 2.
hæðinni í Ellingsenhúsinu við Fiski-
slóð. Þetta er rótgróið fyrirtæki,
stofnað 1988 og þá með aðsetur á
Seljavegi. Stöðin á því 30 ára afmæli
í vor. Þar starfa nú 12 sjúkraþjálf-
arar og 3 íþróttafræðingar auk ann-
ars starfsfólks.
„Heilbrigðismál framtíðarinnar
snúast um fjölgun aldraðra, aukn-
ingu á sykursýki 2, fjölgun stoðkerf-
iseinkenna, afleiðingar tölvunotk-
unar og álagseinkenni hvers konar
og hreyfingarleysi,“ segir Gauti.
Hann segir að í nýju endurhæfing-
arstöðinni sé aðstaða, tækjabúnaður
og þjálfað starfsfólk sem geti tekist
á við þessi vandamál með mark-
vissri þjálfun og mælingum.
Bæta ástand eldra fólks
„Ég hefði gjarnan viljað sjá sem
innlegg í nýjan stjórnarsáttmála að
stefnt væri að því að bæta líkams-
ástand fólks á aldrinum 55 til 75 ára
með markvissu átaki til að koma í
veg fyrir að það þurfi að leggjast
inn á hjúkrunarheimili í framtíð-
inni,“ segir Gauti. „Við erum með
þekkingu og fólk til að vinna þessa
hluti.“ Hann segir að þekking á
öldrun og aðferðum til að takast á
við hana hafi aukist mikið á síðustu
10 til 20 árum. Það hljóti að vera
markmiðið að fólk sem hættir á
vinnumarkaði sökum aldurs geti átt
hamingjusamt ævikvöld án þess að
vera að bíða eftir plássi á hjúkr-
unarheimili. En forsenda þess að
nýta tækifærin sem skapast við
starfslok sé að vera í góðu lík-
amlegu ástandi og formi.
Í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur er
auk einstaklingsmeðferðar boðið
upp á hópþjálfun fyrir karla og kon-
ur, fyrir kylfinga og hlaupara og
fleiri hópa. Einstakur tækjabúnaður
stöðvarinnar nýtist við hvers kyns
mælingar á líkamlegu þoli og
ástandi, kröftum og þreki. Með
mælingum er hægt að sjá hvort fólk
Á vef Sjúkraþjálfunar Reykja-
víkur segir að sjúkraþjálfun sé
byggð á eðlilegri starfsemi
líkamans og frávikum sem
kunna að valda óþægindum.
„Sjúkraþjálfarar fást við
greiningu og meðferð fólks
með ýmis einkenni sem tengj-
ast truflun á hreyfigetu og
stafa af sjúkdómum, slysum
eða röngu álagi. Markmið
sjúkraþjálfunar er að auka og
viðhalda styrk, hreyfigetu,
jafnvægi og færni sjúklings,
kenna leiðir til að fyrirbyggja
tap á þessum þáttum og
minnka verki.
Meðferð getur verið ein-
staklingsbundin eða í hópum,
allt eftir því hvað við á hverju
sinni. Einstaklingsmeðferð
felst m.a. í styrkjandi, liðk-
andi og úthaldsaukandi æf-
ingum, fræðslu um rétta lík-
amsbeitingu og góða
líkamsstöðu o.fl.“
Laga truflaða
hreyfigetu
SJÚKRAÞJÁLFUN