Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Njóttu bakstursins,
við hreinsum fötin
Við erum sérfræðingar í erfiðum blettum
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
umhverfis- og skipulagssviðs borg-
arinnar um að hafin verði kynning og
umsagnarferli að nýju deiliskipulagi
á kolli Úlfarsfells. Fyrirtækið Fjar-
skipti hf. (Vodafone) hefur sótt um
leyfi til að setja upp fjarskiptastöð á
fjallinu. Íbúðabyggð hefur þrengt að
möstrum á Rjúpnahæð og Vatnsenda
og mikilvægt er talið að finna hent-
ugan stað fyrir útvarpssenda.
Úlfarsfell liggur á mörkum
Reykjavíkur og Mosfellsbæjar og
skiptist það nokkuð jafnt á milli sveit-
arfélaganna. Fjarskipti hf. hafa lagt
fyrir borgina lýsingu á nýju deili-
skipulagi sem unnin er af Verk-
fræðistofu Bjarna Viðarssonar. Sam-
kvæmt henni á skipulagsferlinu að
ljúka um mitt ár 2018.
Útvarpsrekstur á Íslandi hófst fyr-
ir alvöru í árslok 1930 þegar Rík-
isútvarpið hóf útsendingar sínar.
Sendingarnar voru á langbylgju og
var sendistöðin staðsett á Vatns-
endahæð þar sem reist höfðu verið
tvö 150 metra há stálmöstur vegna
sendinganna. Seinna hófust FM-
útvarpssendingar, en þær eru nú
allsráðandi í útvarpsþjónustu þótt
langbylgjusendingum sé enn við-
haldið. Lengst af var höfuðborg-
arsvæðinu að mestu leyti þjónað með
sendibúnaði á Vatnsendahvarfi og
Rjúpnahæð í Kópavogi. Árið 2007 var
fjarskiptastöðin á Rjúpnahæð lögð
niður og rifin til þess að rýma fyrir
íbúðabyggð á svæðinu.
Útvarpsrekstur á hrakhólum
„Frá þeim tíma hefur aðstaða fyrir
útvarpsrekstur á höfuðborgar-
svæðinu verið á hrakhólum auk þess
sem framtíð Vatnsendahvarfs sem
sendistaðar er í uppnámi,“ segir í lýs-
ingu vegna nýs deiliskipulags.
Athygli fjarskiptarekenda hafði
nokkru áður beinst að Úlfarsfelli sem
heppilegum stað fyrir fjarskiptastöð,
sem þjónað gæti höfuð-
borgarsvæðinu öllu. Árið 2007 sendu
Fjarskipti erindi til bæjarráðs Mos-
fellsbæjar þar sem óskað var eftir lóð
fyrir fjarskiptastöð á þeim hluta
fjallsins sem liggur innan bæjar-
marka Mosfellsbæjar. Árið 2009 fékk
fyrirtækið Fjarski ehf, sem þá var í
eigu Landsvirkjunar, stöðuleyfi fyrir
lítinn fjarskiptahýsil vegna fjar-
skiptaþjónustu sinnar í þágu Lands-
virkjunar. Í desember 2010 sendu
Fjarskipti erindi til skipulagsstjóra
Reykjavíkur með ósk um viðræður
við Reykjavíkurborg um lóð til fjar-
skiptareksturs.
Ítrekun á erindinu var send í októ-
ber 2011, en þá hafði samvinna tekist
með Fjarskiptum og Ríkisútvarpinu
um að vinna sameiginlega að upp-
byggingu á þessum stað.
Í svari skipulagsstjóra var tilkynnt
að ekki væri hægt að verða við því að
úthluta lóð fyrr en reynsla væri kom-
in á hvernig staðsetningin reyndist
og bent á að sækja skyldi um bygg-
ingarleyfi fyrir minni mannvirkjum
til reynslu. Þetta var gert og bygg-
ingarleyfi gefið út í maí 2012 fyrir
litlu tækjaskýli og tveimur tréstaur-
um til fjarskiptareksturs. Jafnframt
var veitt framkvæmdaleyfi fyrir lögn
á rafmagnsheimtaug og ljósleiðara að
stöðinni. Útvarpsrekstur frá bráða-
birgðastöðinni á Úlfarsfelli hófst
sumarið 2012 og hefur síðan verið út-
varpað þaðan fimm til sex útvarps-
dagskrám. Í lýsingunni segir að fljót-
lega hafi orðið ljóst að Úlfarsfellið
stóð fyllilega undir væntingum sem
útvarpssendistaður, en að bráða-
birgðamannvirkin nægðu ekki til
þess að sinna þjónustuþörfinni á full-
nægjandi hátt. Í apríl 2013 var lögð
fram í fyrirspurnarformi til skipu-
lagsfulltrúa Reykjavíkur ósk Fjar-
skipta hf. og Ríkisútvarpsins um
heimild til þess að reisa mastur við
tækjahúsið. Í bréfinu var lýst nýund-
irrituðum samningi milli Rík-
isútvarpsins og Fjarskipta um þjón-
ustu á dreifikerfum útvarps.
Í svari í ágúst 2015 var óskað eftir
því að skoðaðir væru möguleikar á
öðrum staðsetningarkostum áður en
Úlfarsfellið fengi frekari meðhöndl-
un. Einnig var óskað eftir frekari
rökstuðningi fyrir því að staðsetning
í Reykjavík ætti að leysa vanda í öðr-
um sveitarfélögum og að skoðaðar
yrðu staðsetningar í viðeigandi sveit-
arfélögum til úrlausnar á vanda í
þeim. Til þess að verða við þessum
óskum ákváðu Fjarskipti hf. að fá
óháðan aðila til þess að vinna skýrslu
um mögulegt staðarval.
Verkfræðistofan Mannvit vann
verkið og ber skýrslan heitið „Út-
varpsþjónusta á höfuðborgarsvæð-
inu“, dagsett í mars 2016. Í skýrsl-
unni er farið yfir stöðu mála, skoðuð
dreifing útvarpsþjónustu frá tólf
stöðum á svæðinu og gerður saman-
burður á þeim sem dreifingarstöðum
fyrir útvarp. Samkvæmt niður-
stöðum skýrslunnar er staðsetning
útvarpsmasturs á Úlfarsfelli áber-
andi besti kosturinn.
Útvarp er almannaþjónusta
„Ríkir almannahagsmunir liggja í
því að útvarpsþjónusta sé góð á höf-
uðborgarsvæðinu. Útvarpsþjónusta
er almannaþjónusta sem veitt er án
endurgjalds og flestir íbúar nýta sér
á hverjum degi. Efni í dagskrám út-
varpsstöðva snerta flest svið mann-
lífsins. Þar eru fréttir, fræðsla, um-
fjöllun um málefni sem eru í
deiglunni, tónlist, tilkynningar og
auglýsingar. Öryggishlutverk út-
varps er ennfremur mikið,“ segir í
lýsingunni.
Mannvirki á Úlfarsfelli, sem nauð-
synleg eru vegna fjarskiptastöðv-
arinnar, eru tækjahús og mastur fyr-
ir loftnet. Gert er ráð fyrir því að
tækjahúsið verði 60-80 fermetrar og
að mastrið verði 50 metra hátt stál-
grindarmastur. Þessi masturshæð er
nauðsynleg til þess að tryggja pláss
fyrir loftnetastæður sem tryggja
dreifingu á öflugum útvarpsmerkjum
margra útvarpsstöðva á þjón-
ustusvæðinu.
Útvarpsbylgjur frá Úlfarsfelli
Kynning og umsagnarferli vegna nýs deiliskipulags á kolli Úlfarsfells hafin Vodafone hefur sótt
um leyfi til að setja upp fjarskiptastöð Staðsetning útvarpsmasturs á Úlfarsfelli góður kostur
Ljósmynd/Verkfræðistofa BV
Úlfarsfell Bráðabirgðamannvirkin og sendiloftnet þeirra séð úr lofti og er horft úr suðaustri yfir Sundin. Reisa þarf öflugri mannvirki á fjallinu.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið skrifaði stærstu sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu bréf í
júlí síðastliðnum. Þar sagði að Póst-
og fjarskiptastofnun hefði vakið at-
hygli ráðuneytisins á því að nokkur
óvissa virtist ríkja um framtíð helstu
sendistaða hljóðvarps og sjónvarps á
höfuðborgarsvæðinu, þ.e. á Vatns-
endahvarfi og Úlfarsfelli.
En hverju breytir það ef heimilað
verður að setja upp sendistöð á Úlf-
arsfelli? Því svarar Þorleifur Jóns-
son, forstöðumaður tæknideildar
Póst- og fjarskiptastofnunar:
„Fyrir allmörgum árum lagðist
Rjúpnahæð af sem annar af tveimur
mikilvægum sendastöðum á höfuð-
borgarsvæðinu (hinn er Vatns-
endahæð). Í framhaldi af því var
reynt að nota Víðines sem fjar-
skiptasendastað en það gafst ekki
vel. Úlfarsfell var talið mjög hentugt
sem sendastaður og með þeirri
bráðabirgðaaðstöðu sem þar er nú
hefur það verið staðfest. Verði heim-
ild veitt fyrir þeirri aðstöðu sem nú
er í ferli og vísað var til í fyrirspurn
þinni, en þar er um að ræða að reist
verði 50 metra hátt mastur auk
stærra tækjahúss, þá má segja að
búið verði að leysa þau vandamál
sem urðu til við það að Rjúpnahæð
lagðist af sem sendastaður.
Leggist hins vegar Vatnsendahæð
af sem sendastaður í framtíðinni
(sem verður að teljast frekar líklegt)
þarf að skoða aðrar tæknilegar
lausnir til að koma megi þeim 10
sendum (dagskrám) sem þar eru
fyrir í mastrinu á Úlfarsfelli. Hugs-
anlega þarf að setja upp einhverja
smærri senda til að ná dekkun á
svæðum sem Úlfarsfell nær ekki til
en Vatnsendi dekkar í dag (Suður-
hlíðar í Garðabæ og Hafnarfirði til
dæmis). Einnig er rétt að hafa í huga
að íbúðabyggð á höfuðborgarsvæð-
inu bæði þéttist og dreifir úr sér
þannig að kröfur um aukna dekkun
aukast sífellt.“
Þeir aðilar sem nú reka dreifikerfi
fyrir útvarp eru Vodafone sem er
stærst (dreifir fyrir RÚV og 365),
Frequency ehf. sem dreifir fyrir Ár-
vakur, Útvap Sögu o.fl., svo eru
minni hljóðvarpsstöðvar sem dreifa
sjálfar. Loks má nefna að Míla er
hýsingaraðila á Vatnsenda og leigir
því út aðstöðu þar fyrir aðra aðila.
Morgunblaðið/Þorkell
Vatnsendahæð Myndin er tekin um aldamótin en möstrum hefur fækkað verulega. Þau fyrstu voru reist 1930.
Vatnsendi er enn mikilvægur