Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 40
Herra
ORTLES GTX
Kr. 74.9
Ortles herra og dömu úlpurnar eru
hannaðar fyrir krefjandi aðstæður
eins og fjallgöngur, ísklifur og
skíða- og jöklaferðir.
PRO
90.-
VERSLUN SALEWA LAUGAVEGI 91
Dömu
ORTLES 2 GTX PRO
Kr. 74.990.-
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Þetta var gaman en ekki síður mik-
ilvægt, þetta er í fimmta sinn sem
Reykjavíkurborg færir Þórshöfn
jólatré,“ segir Líf Magneudóttir,
sem fór sem staðgengill borgar-
stjóra til að afhenda tréð. Líf er for-
seti borgarstjórnar og oddviti
Vinstri grænna í borgarstjórn.
Líf segir ekki vera mikið um tré í
Færeyjum, þetta sé ekki bara þakk-
lætisvottur, heldur líka tákn um góð
samskipti á milli Þórshafnar og
Reykjavíkur. Hefðinni var komið á
fyrir fimm árum en tengist líka vest-
norræna sjóðnum. Líf segir Reykja-
víkurborg líka gefa tré til Nuuk á
Grænlandi. Í ár hafi verið kveikt ljós
á trénu þar í annað sinn. Þessar
þrjár borgir,
Reykjavík, Þórs-
höfn og Nuuk,
séu í samstarfi og
vest-norræni
sjóðurinn sé
þeirra samstarfs-
vettvangur.
„Það voru þús-
undir manna
þarna á Vaglinum
í Þórshöfn.
Örugglega fleiri en á Austurvelli
þegar við tendruðum ljósin á Óslóar-
trénu. Þetta var bara svolítið magn-
að, þarna hefst jólahátíðin hjá Fær-
eyingum. Öll börn koma þarna og
það er mikið gert úr þessu, mjög há-
tíðleg stund, þannig að þetta hefur
sess hjá fólkinu. S. Björn Blöndal
átti að fara til Nuuk til að vera við
tendrun ljósanna á jólatrénu þar, en
hann varð veðurtepptur, þannig að
þau tendruðu það bara sjálf,“ segir
Líf. Hún segir að í fyrra hafi tréð
a.m.k. verið fallega skreytt með
norðurljósin í baksýn og að það hafi
verið ævintýri líkast að horfa á.
Þykir vænt um Óslóartréð
Líf segir að Reykvíkingum þyki
vænt um Óslóartréð. Nú sé það
fengið úr Noregslundi í Heiðmörk,
en Óslóarbúar eiga þann lund.
Þórshafnarbúar skreyttu tréð sitt
fallega með stjörnu á toppnum mið-
að við heldur látlausari skreytingu á
Óslóartré Reykvíkinga, sem virðist
eins ár frá ári. „Við erum bara svo
nýtin hérna í Reykjavík en þetta er
frekar nýtt í Færeyjum,“ telur Líf
að gæti verið ástæðan.
Ljósmynd/Reykjavik.is
Þórshöfn Reykjavíkurtréð í Þórshöfn í Færeyjum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reykjavík Óslóartréð á Austurvelli, úr Heiðmörk.
Kveikt á glæstu Reykja-
víkurtré á Vaglinum
Nýtnir Reykvíkingar með minna skreytt Óslóartré
Líf
Magneudóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Það heyrir til undantekninga að
sérfræðilæknar innheimti gjald
fyrir þjónstu sem þeir veita sjúk-
lingum í gegn um síma eða með
rafrænum samskiptum. Sem dæmi
má nefna að aðeins einn af 56
læknum sem hafa stofur hjá
Læknasetrinu í Mjódd innheimtir
gjald fyrir fjarþjónustu.
Heimild um að innheimta gjald
fyrir fjarþjónustu og rafræn sam-
skipti var tekin upp í samningum
Læknafélags Reykjavíkur og
Sjúkratrygginga Íslands í lok árs
2013. Í reglugerð kemur fram að
sjúklingurinn sjálfur skuli greiða
gjaldið án niðurgreiðslu ríkisins.
Kristján Guðmundsson, formað-
ur samninganefndar Læknafélags
Reykjavíkur, lítur á þessa heimild
sem viðurkenningu á þjónustu sem
sérfræðilæknar eru að veita sjúk-
lingum. Telur hann algengt að
þegar læknar hafi lokið viðtölum
dagsins bíði þeirra 10 til 20 beiðnir
um að hringja til sjúklinga og
reyni þeir að sinna því eftir bestu
getu.
Kristján telur að læknar noti
þessa heimild afar lítið. Það sé
fyrst og fremst vegna vandræða
við innheimtu gjaldsins. Nefnir að
það kosti 400 krónur að búa til
greiðsluseðil til að innheimta þær
2.000 krónur sem gjaldskráin
heimilar. Þá kosti vinnu að upp-
fylla þau skilyrði sem eru fyrir
innheimtunni. Beiðni um fjarþjón-
ustuna þarf að koma frá sjúklingi,
upplýsa þarf hann um kostnað og
gjaldfæra samskiptin sérstaklega í
sjúkraskrá. Ekki er heimilt að inn-
heimta gjald fyrir samskipti sem
eiga sér stað í þrjá mánuði, í fram-
haldi af viðtali og skoðun.
Bíða eftir einfaldari lausn
Kristján lítur svo á að innheimta
eigi gjald fyrir fjarþjónustu þegar
læknirinn leysir vandamál sjúk-
lingsins í gegn um síma og það
komi í stað viðtals á stofu.
Hann telur að læknar almennt
bíði eftir einfaldari greiðslulausn,
til dæmis með nýju kerfi, heilsu-
vera.is, sem tekið hefur verið í
notkun á heilsugæslustöðvum.
Sjaldan greitt fyrir símtöl
Sérfræðilæknar hafa heimild til að innheimta 2.000 kr. fyr-
ir fjarþjónustu Lítið nýtt vegna fyrirhafnar við innheimtu
Morgunblaðið/Eggert
Þjónusta Ríkið niðurgreiðir ekki
gjald sem læknar innheimta.