Morgunblaðið - 07.12.2017, Page 44
44 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Börn á leikskólanum Krógabóli á
Akureyri nota spjaldtölvur reglu-
lega við málörvun af ýmsu tagi og
hefur það gefist mjög vel að sögn
verkefnastjóra í skólanum. Leik-
skólinn hefur tvívegis fengið mynd-
arlegan styrk úr Sprotasjóði, alls
þrjár og hálfa milljón króna, til þró-
unarstarfs í læsi og snjalltækni og á
dögunum var opnuð vefsíðan Snjall-
tækni í leikskólastarfi sem er af-
rakstur þróunarstarfsins.
Íris Hrönn Kristinsdóttir, verk-
efnisstjóri og Anna R. Árnadóttir,
leikskólastjóri Krógabóls, eru afar
ánægðar með hvernig til hefur tek-
ist. Þær segja verkefnið hafa vakið
töluverða athygli og aðrir leikskólar
sýnt því áhuga. „Við höfum tekið á
móti hópum víða af landinu, sem
hafa viljað kynna sér verkefnið,“
segir Íris við Morgunblaðið.
Stundum er haft á orði að snjall-
tæki séu beinlínis af hinu vonda,
þegar börn eiga í hlut, en starfs-
menn Krógabóls eru sannarlega á
öðru máli. „Við ætlum ekki að vera
snjalltækjaskóli heldur er þetta við-
bót; spjaldtölvan er eins og bókin
eða kubbarnir. Við veljum verkefni
handa krökkunum og veltum svo
fyrir okkur hvernig best er að vinna
þau. Stundum notum við kubbana,
stundum snjalltækin eða förum út.
Notum þau áhöld hverju sinni sem
henta best,“ segir Anna.
Verkefnið hefur verið í þróun frá
2014 og miðar að því að efla málrækt
í leikskólanum og nýta snjalltækni á
skapandi hátt. Þær segja læsi og
málörvun í raun undirstöðu leik-
skólastarfs, unnið hafi verið á marg-
víslegan hátt að þeim þáttum en
áhugi hafi verið á því á Krógabóli að
gera starfið markvissara. Eitt leiddi
af öðru og þannig hófst verkefnið
með snjalltæknina.
„Við notum snjalltæki til að örva
börnin, ýta undir ímyndunarafl
þeirra og sköpun. Þau átta sig á því
að spjaldtölvan er gott tæki til þess
að læra af, ekki bara til þess að spila
einhverja leiki. Börnin eru notendur,
ekki bara neytendur,“ sagði Íris.
Börnin á Krógabóli hafa gaman
af því að búa til sögur, að sögn Önnu
og Írisar. Bæði endursegja þau sög-
ur sem lesnar eru fyrir þau, eða
semja sínar eigin. „Við vinnum til
dæmis með þjóðsögurnar og þá fer
mesti tíminn í undirbúning; þau búa
til bakgrunn og persónur, læra sög-
una og loks er tekið upp myndband.
Það er endahnúturinn en áður hafa
þau lært heilmikið.“
Þær segja starfsfólk leikskólans
ekki hafa síður gott og gaman af
tæknivæðingunni, enda ekki allir
vanir tölvum. „Hlutverk verkefn-
isstjórans skipti sköpum,“ segir
Anna. „Allir gátu leitað til Írisar og
hún lét alla gera ákveðin verkefni.“
Verkefnið var unnið í góðu sam-
sarfi við Miðstöð skólaþróunar við
Háskólann á Akureyri. „Þrír starfs-
menn þar unnu náið með okkur;
Rannveig Oddsdóttir, Hólmfríður
Árnadóttir og Þóra Rósa Geirs-
dóttir, og ástæða er til að þakka
þeim sérstaklega fyrir,“ sagði Íris.
Nýverið var styrkjum úthlutað
úr Menningar- og viðurkenning-
arsjóði KEA í 84. skipti, alls 15 millj-
ónum til 64 aðila. Úthlutað var til
margvíslegra verkefna; í flokknum
menningar- og samfélagsverkefni
fóru 2,6 milljónir í 20 verkefni, jafn-
mörg fengu samtals 7,5 milljónir í
flokki íþrótta- og æskulýðsmála, auk
þess sem 13 ungir afreksmenn fengu
samtals tæpar tvær milljónir, og
styrkir til rannsókna- og mennta-
mála voru samtals 3 milljónir króna.
KEA hefur keypt rúmlega 7%
hlut í ferðaþjónustufyrirtækinu
Saga Travel á Akureyri og kemur
inn í félagið sem nýr hluthafi ásamt
fjárfestingasjóðnum Eldey, skv.
frétt á heimasíðu KEA í gær. „Sam-
hliða innkomu þessara aðila festi
Saga Travel kaup á Geo Iceland sem
hefur sérhæft sig í dagsferðum frá
Reykjavík. Saga Travel hefur hing-
að til aðallega sérhæft sig í upplif-
unarferðum á Norðurlandi en hefur
nú haslað sér völl á suðvesturhorni
landsins með kaupum á Geo Iceland.
Stöðugildi hjá Saga Travel eru að
meðaltali um 20, þar af 16 á Ak-
ureyri þar sem höfuðstöðvar og sölu-
skrifstofa félagsins er staðsett.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snjöll málrækt Nemendurnir Baldur Máni Hreiðarsson og Hrafndís Jana Gautadóttir æfa sig. Íris Hrönn Krist-
insdóttir verkefnastjóri er til vinstri, þá Anna Árnadóttir leikskólastjóri og Lilja Valdimarsson leikskólakennari.
Skapandi mál-
örvun með
snjalltækjum
Skapti Hallgrímsson
Leppalúði Baldur Máni og Hrafndís Jana hlusta hér á orðið Leppalúði lesið
í tölvunni og finna í framhaldinu réttu stafinu til að skrifa orðið sjálf.
Skrímsli Bríet Rut Sveinsdóttir, til vinstri, og Rakel Vignisdóttir með
skrímslabókina og heimatibúin skrímsli, úr smiðju nemenda og kennara.
Aðeins kr. 7.860 – Pantaðu jólaáskriftina
á rit.is/askrift eða í síma 578 4800
Tvö glæsileg blöð
í jólapakkann og
fimm tölublöð inn
um lúguna
yfir árið