Morgunblaðið - 07.12.2017, Síða 50
50 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
UMBOÐSAÐILI RAY•BAN Á ÍSLANDI
Gríðarmiklir skógar- og kjarreldar geisa nú í Kaliforníu í
Bandaríkjunum og berjast yfir 1.000 slökkviliðsmenn við
eldhafið, oft við afar erfiðar aðstæður.
Er eldurinn sagður breiðast nokkuð hratt yfir vegna
óhagstæðra veðurskilyrða á svæðinu, en gróður þarna er
mjög þurr og því afar mikill eldsmatur. Ríkisstjóri Kali-
forníu, Jerry Brown, hefur beðið fólk um að vera reiðubúið
að yfirgefa heimili sitt með skömmum fyrirvara, en um 30
þúsund manns hafa þegar yfirgefið hættusvæðið. Þá
greinir fréttaveita AFP frá því að minnst einn hafi látið líf-
ið í hamförunum. Meðfylgjandi er mynd af slökkviliðs-
manni í eftirlitsferð um íbúðarhverfi.
AFP
Mikið eldhaf ógnar mannslífum og eignum
Minnst 21 almennur borgari er sagð-
ur hafa fallið í loftárás rússneskra
orrustuþotna í gær á þorp austan við
fljótið Efrat í austurhluta Sýrlands.
Er það fréttastofa Reuters sem
greinir frá og vitnar í mannréttinda-
hreyfinguna Syrian Observatory for
Human Rights, sem fylgist með
stríðinu þar í landi.
Árásin er sögð hafa átt sér stað
skammt frá borginni Deir al-Zor,
sem finna má nærri landamærum
Íraks. Átti hún að styðja við aðgerðir
bandalags kúrdískra og arabískra
hreyfinga, sem nefnist Sýrlensku
lýðræðisöflin (SDF), gegn sveitum
Ríkis íslams. En vígamenn gerðu í
seinustu viku árás á þorpið.
Ekki var í gær ljóst hversu margir
vígamenn létust í loftárás rúss-
neskra sveita, en mannréttinda-
hreyfingin segir sýrlenska herinn og
bandamenn hans hafa „útrýmt“
vígamönnum Ríkis íslams á svæðinu-
vestan við Efrat-fljót.
Þá hafa einnig borist fregnir af
mikilli sigurgöngu liðsmanna YPG,
sem er vopnaður hópur Kúrda, innan
austasta hluta héraðsins Deir al-Zor.
Eru þeir sagðir hafa unnið stórsigur
á Ríki íslams þar nýverið.
Í höndum Rússlands
Bandaríkin og Frakkland hvetja
nú Rússa til þess að beita sér fyrir
því að ríkisstjórn Bashars al-Assads
Sýrlandsforseta taki virkan þátt í
friðarviðræðum í Genf, svo binda
megi enda á styrjöldina í Sýrlandi.
„Við höfum sagt Rússum að það sé
mjög mikilvægt að sýrlenska stjórn-
in verði við borðið og taki þátt í þess-
um viðræðum og um leið um-
ræðunni,“ sagði Rex Tillerson,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á
blaðamannafundi sem haldinn var í
Brussel í Belgíu. „Það er í höndum
Rússa að koma þeim að borðinu.“
Þá greinir Reuters einnig frá því
að komi fulltrúar sýrlenskra stjórn-
valda ekki að samningaborðinu yrði
það „mjög vandræðalegt“ fyrir ráða-
menn í Kreml.
Sprengjur
féllu á þorp
Mjög hefur fjarað undan Ríki íslams
AFP
Átök Stjórnarhermaður horfir yfir
Deir Ezzor eftir að loftárás var gerð.