Morgunblaðið - 07.12.2017, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is
Skoðið glæsilegt úrval á carat.is
Sendum frítt um allt land
Ekkert jólastress
Hjá okkur er opið allan sólarhringinn
á www.carat.is
HÁLSMEN – ARMBÖND – HRINGIR – EYRNALOKKAR
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Sú ákvörðun Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta að viðurkenna formlega
Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og
flytja sendiráð Bandaríkjanna þang-
að gæti valdið ólgu í Miðausturlönd-
um, leitt til nýrrar hrinu ofbeldis,
grafið undan tilraunum Bandaríkja-
stjórnar til að ná friðarsamningum
milli Ísraela og Palestínumanna og
skaðað tengsl Bandaríkjanna við
samstarfsríki þeirra í heimshlutan-
um. Þetta er mat embættismanna í
utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og
stjórnvalda í mörgum öðrum löndum.
Trump ákvað að virða þessar við-
varanir að vettugi og efna loforð sem
hann gaf í kosningabaráttunni í fyrra.
Þar með vék hann frá stefnu sem
bandarísk stjórnvöld hafa fylgt síð-
ustu áratugi í deilu Ísraela og Palest-
ínumanna um Jerúsalem sem gyðing-
ar, kristnir menn og múslímar líta á
sem helga borg. Hún hefur verið eitt
af erfiðustu deilumálum Ísraela og
araba og torveldað mjög friðarsamn-
inga.
Stjórnvöld í Ísrael fögnuðu ákvörð-
un Trumps, sögðu hana sögulega, en
fulltrúi Palestínumanna í Bretlandi
lýsti henni sem „stríðsyfirlýsingu“ og
„kossi dauðans“ fyrir friðarviðræður
sem byggðust á tveggja ríkja lausn-
inni svonefndu. Palestínumenn hafa
krafist þess að Austur-Jerúsalem
verði höfuðborg ríkis þeirra þegar
fram líða stundir. Bandarísk stjórn-
völd hafa fylgt þeirri stefnu að leysa
eigi deiluna um Jerúsalem í friðarvið-
ræðum, eins og kveðið er á um í
samningi Ísraela og Palestínumanna
frá árinu 1993.
Innlimunin brot á þjóðarétti
Ekkert ríki er með sendiráð í Jerú-
salem núna. Allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna samþykkti árið 1947
áætlun um skiptingu Palestínu í tvö
ríki, gyðinga og araba, og samkvæmt
henni átti Jerúsalem, Betlehem og
nálægir helgistaðir að vera undir
stjórn alþjóðasamtakanna. Gyðingar
samþykktu áætlunina um skipting-
una en arabaríki höfnuðu henni og
hófu stríð gegn Ísrael eftir að ríkið
var stofnað árið 1948. Þegar átökun-
um lauk ári síðar tilheyrði austurhluti
borgarinnar Jórdaníu en vestur-
hlutinn Ísrael. Ísraelar hernámu
austurhlutann í sex daga stríðinu
1967 og síðan hefur öll borgin verið
undir stjórn Ísraels. Austurhlutinn
var innlimaður í landið árið 1980 með
lögum þar sem Jerúsalem var lýst
sem „eilífri og óskiptri höfuðborg Ísr-
aels“. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna fordæmdi innlimunina, sagði
hana vera brot á þjóðarétti, og sam-
tökin hafa aldrei viðurkennt hana.
Eftir innlimunina hafa borgarmörk
Jerúsalem verið færð út með lögum
sem samþykkt hafa verið á þingi Ísr-
aels. Alls búa um 200.000 gyðingar á
svæðum sem Ísraelar hafa lagt undir
sig í austurhluta Jerúsalem. Samein-
uðu þjóðirnar líta á landtökubyggð-
irnar sem brot á þjóðarétti en Ísrael-
ar neita því. Með því að viðurkenna
Jerúsalem formlega sem höfuðborg
Ísraels gæti Trump styrkt Ísraela í
deilunni um landtökubyggðirnar.
Fyrir innlimunina voru Holland og
tólf ríki Rómönsku Ameríku með
sendiráð í vesturhluta Jerúsalem en
sendiráð Bandaríkjanna hefur alltaf
verið í Tel Avív. Eftir innlimunina
fluttu öll ríkin þrettán sendiráð sín til
Tel Avív. Nokkur lönd, þeirra á meðal
Bandaríkin, eru með ræðismanns-
skrifstofu í vesturhluta Jerúsalem.
Kveðst styðja stofnun
Palestínuríkis
Þing Bandaríkjanna samþykkti ár-
ið 1995 lög þar sem kveðið er á um að
viðurkenna eigi Jerúsalem sem
höfuðborg Ísraels og flytja eigi sendi-
ráðið þangað. Bandaríkjaforseti fékk
þó heimild til að fresta gildistöku
ákvæðisins vegna öryggishagsmuna
landsins og forverar Trumps hafa
nýtt þessa heimild og frestað gildis-
töku ákvæðisins með hálfs árs milli-
bili. Trump gerði það einnig í júní.
Forsetinn útskýrði ákvörðun sína í
ræðu sem hann flutti í gærkvöldi.
Hann sagði m.a. að leysa bæri deiluna
um borgarmörk Jerúsalem í samn-
ingaviðræðum um framtíðarstöðu
borgarinnar og að Bandaríkjastjórn
styddi óbreytta stöðu Musteris-
hæðarinnar, helgistaðar gyðinga,
kristinna manna og múslíma. Hann
lýsti því einnig yfir að hann styddi
stofnun Palestínuríkis ef samkomu-
lag næðist um það, en hann hafði áður
neitað að gera það, að sögn The Wall
Street Journal.
António Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að
ákvörðun Trumps græfi undan
tveggja ríkja lausninni og samræmd-
ist ekki ályktunum Sameinuðu þjóð-
anna um að deilan um framtíðarstöðu
Jerúsalem yrði leidd til lykta með
samningum milli Ísraela og Palest-
ínumanna.
Bandarískir embættismenn segja
að með því að viðurkenna Jerúsalem
sem höfuðborg Ísraels sé Trump að
„viðurkenna veruleikann“. Þeir segja
að það taki nokkur ár að flytja sendi-
ráðið til Jerúsalem, því að velja þurfi
lóð fyrir það, huga að öryggis-
ráðstöfunum, hanna og fjarmagna
bygginguna áður en framkvæmdirn-
ar geti hafist.
Samningaumleitanir fyrir bí?
Margir leiðtogar annarra ríkja vör-
uðu við því að ákvörðun Trumps gæti
valdið mikilli ólgu meðal múslíma í
Miðausturlöndum og bandaríska
utanríkisráðuneytið tók þær viðvar-
anir alvarlega. Starfsmönnum banda-
rískra sendiráða var sagt að vera við-
búnir mótmælum og bandarískum
ríkisstarfsmönnum og fjölskyldum
þeirra var bannað að ferðast til Jerú-
salem og Vesturbakkans vegna hættu
á að þau yrðu fyrir árásum.
Donald Trump lýsti sér sem af-
burðasnjöllum samningamanni í
kosningabaráttunni og sagði þegar
hann ávarpaði allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna í september að hann
væri að vinna að „alerfiðasta samn-
ingnum“, þ.e. friðarsamningi milli
Ísraela og Palestínumanna til að
binda enda á 70 ára erjur þeirra. Hon-
um hefur verið lýst sem „samningi
aldarinnar“.
„Ég tel að við séum í góðu færi – ef
til vill betra en nokkru sinni fyrr,“
sagði Trump í ræðunni og kvaðst ætla
að gera allt sem hann gæti til að
tryggja slíkan samning.
Tengdasonur Trumps, Jared Kush-
ner, og aðalsamningamaður forsetans,
Jason Greenblatt, hafa stjórnað þess-
um samningaumleitunum. Hermt að
krónprins Sádi-Arabíu, Mohammed
bin Salman, gegni lykilhlutverki í við-
ræðunum og Sádar leggi fast að
Mahmoud Abbas, forseta heima-
stjórnar Palestínumanna, að fallast á
nýja friðaráætlun. Lítið er vitað um
nýju tillögurnar en sagt er að þær feli
meðal annars í sér að Palestínumenn
fái yfirráð yfir dreifðum svæðum á
Vesturbakkanum, sem verði umlukin
landsvæðum Ísraels, og einu úthverfi í
Austur-Jerúsalem, Abu Dis.
Konungur Sádi-Arabíu var á meðal
leiðtoga arabaríkja sem fordæmdu
ákvörðun Trumps. Ráðgjafi Abbas,
Nabil Shaath, sagði að yfirlýsing
Trumps í gær myndi binda enda á
draum hans um „samning aldarinn-
ar“.
„Koss dauðans“ fyrir frið?
Trump viðurkennir Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels Palestínumenn segja ákvörðun forsetans
gera draum hans um „samning aldarinnar“ að engu Sögð geta leitt til ólgu og hrinu ofbeldis
TEL AVÍV
Nablus
Jenín
Betlehem
Hebron
Ramallah
Jeríkó
Austur-
Jerúsalem
Vestur-
Jerúsalem
Í S R A E L
DAUÐA-
HAF 10 km
Ísrael, Jerúsalem og Vesturbakkinn
Borgarmörk Jerúsalem
„Græna línan“
Landamærin
árið 1949
Múr Ísraela á Vesturbakkanum
Hefur verið reistur
Í byggingu
Svæði sem lúta yfirráðum
Palestínumanna að hluta eða
að öllu leyti
Landtökubyggðir gyðinga
Ísraelar segja að Jerúsalem
sé óskipt höfuðborg Ísraels
en Palestínumenn segja að hún
eigi að vera höfuðborg ríkis
þeirra þegar fram líða stundir.
Öll sendiráðin í
Ísrael eru í
Tel Avív núna,
alls 86
Skýringartexti fyrir Vesturbakkann
Útvarðarstöðvar gyðinga
Svæði á Vesturbakkanum
undir stjórn Ísraela
JÓ
RD
A
N
ÍA
SÝ
RL
A
N
D
Í S R A E L
Gaza-
svæðið
Vestur-
bakkinn
G
ól
an
-
hæ
ði
r
JERÚSALEM
LÍBANON
50 km
Heimildir: peacenow.com/B’Tselem/GoogleMap/Openstreetmap
VESTURBAKK INN
AFP
Umdeild yfirlýsing Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi að Bandaríkin
myndu viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels, fyrst ríkja heims.
Ákvörðunin gagnrýnd
» Leiðtogar Sádi-Arabíu,
Egyptalands, Jórdaníu, Evr-
ópusambandsins, Frakklands,
Þýskalands og Tyrklands réðu
Trump frá því að viðurkenna
Jerúsalem sem höfuðborg Ísr-
aels áður en hann tilkynnti
ákvörðun sína í gær.
» Forseti Tyrklands sagði að
ákvörðun Trumps yrði vatn á
myllu hryðjuverkamanna og
hótaði að slíta stjórnmála-
sambandi við Ísrael.
» Stjórnvöld í Sádi-Arabíu
sögðu ákvörðunina „smánar-
lega ögrun við múslíma“.
» Frans páfi hvatti öll ríki til að
virða óbreytta stöðu Jerúsal-
em í samræmi við ályktanir
öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.