Morgunblaðið - 07.12.2017, Síða 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Rannsóknir sýna að
það er ekkert sem læt-
ur börnum líða verr en
að hafa orðið fyrir ein-
elti og útilokun. Jafn-
vel ofbeldi og van-
ræksla af hendi
fullorðinna sest í annað
sætið í rannsókn á veg-
um Warwick-háskóla
sem kannaði tengsl
sjálfsvígshugsana,
kvíða og þunglyndis
við erfiðleika í æsku. Þar höfðu
29,7% svarenda lent í einelti en 8,5%
höfðu orðið fyrir vanrækslu/
misbeitingu.
Samfélagið, umhverfið og jafn-
ingjar okkar skipta gríðarlegu máli
fyrir sjálfsmyndina. Samfélagið seg-
ir okkur að misbeiting barna sé
óréttlát og fær sá sem verður fyrir
slíku ákveðna svörun frá samfélag-
inu um að það sé ólíðandi. Þeir sem
hinsvegar verða fyrir útilokun frá
jafningjum sínum upplifa annað, hjá
þeim er stutt í ranghugmyndir um að
eitthvað sé að þeim sjálfum. Þessar
ranghugmyndir taka menn svo með
sér út í lífið.
Brottfall úr námi
Mörg barna sem verða fyrir úti-
lokun flosna upp úr námi og enda í
óreglu. Einhver þeirra munu leita á
náðir hefðbundinna og óhefðbund-
inna lækninga. Með óhefðbundnum
lækningum er hér átt við Bakkus
frænda, félagslega einangrun og
veruleikaflótta af ýmsu tagi. Þar
kemur tölvu- og netfíkn
til bjargar einmana sál-
um.
Hér hefur skólakerf-
ið okkar brugðist.
Skólakerfi sem skilar
föstu hlutfalli nemenda,
ár eftir ár, óhæfu til að
takast á við lífið, er
óásættanlegt kerfi.
Þetta er ekki aðeins
réttlætismál gagnvart
þeim sem verða fyrir fé-
lagslegri útilokun, held-
ur kostar þetta þjóðfé-
lagið gríðarlegar fjárhæðir. Skýrsla
á vegum Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu mat sem svo að
tapið vegna brotthvarfs nema á
framhaldsskólastigi árið 2012 væri í
námunda við 52,2 milljarða það árið.
Jaðarsetning er ekki
náttúrulögmál
Á meðfylgjandi grafi má sjá að
staða þessara hópa sem flosna upp
úr skólakerfinu hefur versnað að
undanförnu. Eftir aldamótin og fram
til ársins 2008 voru ca þrír grunn-
skólamenntaðir á móti hverjum ein-
um háskólamenntuðum utan vinnu-
markaðar. Nýjustu tölur sýna
hinsvegar að þetta hlutfall hefur
aukist í fjóra á móti hverjum einum.
Neikvætt viðhorf samfélagsins til
þeirra sem ekki uppfylla kröfur þess
til menntunar er spádómur sem upp-
fyllir sig sjálfur. Við búumst við því
að þeir sem eru með litla menntun
séu minna virði á launamarkaði. For-
dómar sem þessir auka líkurnar á að
félagsleg staða afkomenda þeirra
verði verri en annarra. Fátækt og fé-
lagsleg vandamál valda því að þau fá
ekki nægjanlega góða menntun og
uppeldi, sem aftur ýtir þeim út á jað-
arinn á fullorðinsárum. Í miðju þess-
arar hringrásar er viðhorf okkar til
jaðarsettra, sem ýtir á eftir hring-
ekjunni á öllum stigum.
Ábyrgð menntastofnana
Baráttan við einelti í grunnskólum
er nauðsynlegur partur af því að tak-
ast á við félagslega útilokun og jað-
arsetningu í samfélaginu. Ætla má
að einelti í grunnskólum sé meg-
inorsök þess að ungt fólk svipti sig
lífi og sé meginorsök þunglyndis og
kvíða hjá ungmennum. Ábyrgð
menntastofnana er að koma í veg
fyrir einelti og félagslega útilokun á
skólatíma.
Þeir sem ekki finna sig í hefð-
bundnum bóknámsgreinum eru
einnig líklegir til að þrífast illa í
skólakerfinu. Ábyrgð skólakerfisins
er þá að bjóða upp á fleiri tækifæri til
menntunar fyrir þennan hóp.
Í könnun á vegum Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins er viðhorf
nemenda til verklegs og bóklegs
náms í grunnskóla borið saman við
brottfall og kom þar fram mikill
skortur í framboði verklegra greina.
Meira en helmingur þeirra sem lík-
aði betur verklegt nám útskrifaðist
ekki úr neinu námi. Jafnvel þeir sem
„geta ekki gert upp á milli“ velja á
endanum flestir bóklegt nám, að lík-
indum því þar er meira framboð af
námi víða um landið.
Ábyrgð atvinnulífsins
Atvinnurekendur, yfirmenn og
samstarfsmenn bera ábyrgð á að búa
til umhverfi sem tekur vel á móti jað-
arsettum einstaklingum.
Atvinnulífið mætti taka til skoð-
unar að slaka á menntunarkröfum og
finna aðrar leiðir til að mæla færni. Í
mörgum iðngreinum er t.a.m. boðið
upp á svokallað „raunfærnimat“ þar
sem iðnnemar geta fengið reynslu
sína metna til eininga í skóla. Slíku
„raunfærnimati“ væri vel hægt að
beita við mannaráðningar í mörgum
greinum í stað þess að horft sé á
skólaskírteini. Atvinnulífið gæti auk
þess, í samstarfi við skólana, einfald-
að námsleiðir fyrir margar greinar.
Ábyrgð stjórnmálanna
Aðalnámskrá grunnskóla er í valdi
okkar að breyta þannig að hún mæti
þörfum þeirra sem ekki finna sig í
bóknámi. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd er mikið ójafnvægi milli
bóklegra og annarra greina.
Það er svo sveitarfélaganna að búa
öllum börnum öruggt umhverfi þar
sem þau verða ekki fyrir útilokun og
einelti. Samkvæmt könnun Olweus-
aráætlunarinnar frá 2015 segja 5%
stúlkna og 4% drengja sér líða illa
eða mjög illa í skóla. Þetta er
óásættanleg tala. Við verðum að
gera betur. Framtíð þessa hóps er í
húfi.
Eftir Viðar Frey
Guðmundsson
»Ætla má að einelti
í grunnskólum sé
meginorsök þess að
ungt fólk svipti sig lífi
og sé meginorsök
þunglyndis og kvíða
hjá ungmennum.
Viðar Freyr
Guðmundsson
Höfundur er félagsmálafrömuður.
vidarfreyr@vidarfreyr.is
Hringrás félagslegrar útilokunar
Verklegt
Bóklegt
Viðmiðunarstundaskrá úr Aðalnámskrá grunnskóla
0 2.000 4.000 6.000 8.000 10.000
Heildarmínútur á viku samanlagt fyrir 1.–10. bekk
Námsstaða við 24 ára aldur eftir afstöðu til verklegs og
bóklegs náms í efri bekkjum grunnskóla – hundraðshluti
Hlutfall utan vinnumarkaðar eftir menntunarstöðu (%)
Það hefur verið
margt sagt og ritað
síðan hrunið varð og
allt var í kaldakoli, en
á fáu hefur meira verið
klifað en því sem Geir
H. Haarde sagði í sjón-
varpinu í lok ræðu
sinnar þá: „Guð blessi
Ísland“. Ég hef ætíð
síðan verið Geir þakk-
lát fyrir þessi orð, af
því að þau sýndu trú hans og traust
á Drottni, og voru eins og ljós inn í
þessa dimmu atburði. Ég vildi óska
þess að þeir sem eru æðstu menn
þessarar þjóðar bæðu landi sínu og
þjóð guðs blessunar. Þá gengi
örugglega betur að stjórna þessu
landi. Því þótt Alþingi og þeir sem
þar ráða þykist vita allt og geta allt,
fer samt margt úrskeiðis. Ég vil
hvetja alþingismenn og -konur að
leita í þann viskubrunn, sem Biblían
er, og biðja Drottin um visku inn í
öll mál; þá gengi betur stjórnarfarið.
Guð skapaði manninn í sinni
mynd og hann þráir að maðurinn sé
í nánu samfélagi við sig og þá mun
hann opinbera honum vilja sinn,
sem er það góða, fagra og full-
komna. Alþingismenn, takið það til
greina og hafið Biblíuna við hönd-
ina, þegar þið þurfið að taka stórar
ákvarðanir.
Ég er ekki viss um að þjóðin mín
viti hve margir hafa
beðið fyrir þessu landi
nú, þegar trúleysið
veður uppi. Gæti verið
að það séu þessar bæn-
ir sem hafi gefið land-
inu okkar að komast á
réttan kjöl með svo
skjótum hætti eins og
frægt er orðið? Guð
notar nefnilega menn
til að framkvæma vilja
sinn. Höldum áfram að
biðja fyrir landi og
þjóð og Alþingi Íslendinga og biðj-
um um samheldni og kærleika
manna á milli, í staðinn fyrir ljót orð
og skítkast. Biðjum að sanngirni sé
alltaf gætt í orðum og gjörðum, og
að allri fátækt og mismunun sé út-
rýmt og að allir geti lifað með reisn.
Þá mun þessari þjóð farnast vel um
alla framtíð. Förum eftir boðum
Jesú Krists. Það er það sem hann
vill sjá. Hann segir í orði sínu: „Ég
er vegurinn, sannleikurinn og lífið“.
Og það er hann svo sannarlega.
Guð blessi Ísland
Eftir Guðrúnu
Oddsdóttur
» Gæti verið að það
sé m.a. þessi bæn
sem hafi gefið landinu
okkar að komast svo
skjótt á réttan kjöl?
Guðrún Oddsdóttir
Höfundur er húsmóðir og
eldri borgari.