Morgunblaðið - 07.12.2017, Page 59

Morgunblaðið - 07.12.2017, Page 59
UMRÆÐAN 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017 Vestfirðingar hafa búið við fólksfækkun í mörg ár. Tekist hefur með dugnaði og at- vinnuuppbyggingu í fiskeldi að snúa því dæmi við á sunnan- verðum Vestfjörðum. Þaðan eru flutt dag- lega með sex flutn- ingabílum útflutnings- verðmæti fyrir um 40 milljónir króna. Enn eru vegir um Gufudalssveit gamlir moldar- og malarvegir, brattir og með þröngar beygjur. Þar skapast hættur, einnig fyrir skólabílinn sem sækir börn daglega þessa leið yfir veturinn. Í meira en 20 ár hefur verið rædd vegalagning um Gufudals- sveit. Alltaf er því slegið á frest vegna mótmæla og dómsmála. Gilsfjarðarbrúin Í Morgunblaðinu 30. nóvember sl. er grein sem ber yfirskriftina Hernaðurinn gegn fjörðunum við norðanverðan Breiðafjörð. Þar skrifa menn sem vilja hafa firðina fyrir sig óbreytta um ókomna framtíð. Þeir segja að það hafi verið „umhverfisskemmdarverk“ að brúa Gilsfjörð, en sú fram- kvæmd komst í gagnið 1998. Vet- urinn 1996-1997 þurfti ég að keyra gamla veginn um Gilsfjörðinn tvisvar í mánuði til að sækja fundi í Reykjavík. Oft var blindbylur, lítið skyggni og hálka á vegi. Með hugann við það hve mörg mann- skæð slys höfðu orðið þar á liðnum árum vegna skriðufalla og snjó- flóða hlakkaði ég mik- ið til þess að vera laus við þennan veg, þegar brúin kæmi yfir fjörð- inn. Gilsfjarðarbrúnni var mótmælt á sínum tíma en aðallega vegna þess að rauð- brystingurinn þyrfti að hafa þar viðdvöl á leirunum til fæðuöfl- unar á ferðum sínum vor og haust. Helst var að heyra á þeim sem þannig töluðu að fuglategundin myndi deyja út eftir þessa brúargerð. En hvað gerðist? Jú, fuglinn leitaði sér fæðu í öðrum fjörðum í kring og reyndar mynduðust smám sam- an nýjar leirur fyrir neðan brúna þar sem sjá má mikið fuglalíf. Náttúran er nefnilega síbreytileg og lagar sig að aðstæðum. Gamli vegurinn um Gilsfjörðinn er eftir sem áður keyrður að sumarlagi og hægt að njóta þar náttúrunnar þegar vel viðrar. Nú vilja þeir menn sem skrifuðu greinina um Hernaðinn gegn fjörðunum við norðanverðan Breiðafjörð koma í veg fyrir að fleiri firðir séu brúaðir á þeirri leið. Rökin eru m.a. að það sé sjónmengun að horfa út firðina og sjá mannvirkin þar sem vegurinn muni liggja yfir fjörðinn. Nú eru brýrnar lengri og betri vatna- skipti. En geta ferðamenn ekki notið náttúrunnar þó að einhver merki séu um mannlíf og atvinnu- líf? Nú fær botn fjarðanna að vera í friði og þar þrífst bæði gróður og fuglalíf. En það er gott að vera laus við að aka undir bröttum hlíð- um þar sem hætta er á snjóflóði eða skriðuföllum. Að tala um eyði- leggingu fjarðanna við þverun finnst mér alveg fráleitt. Gils- fjörður var brúaður fyrir 20 árum. En þó Gilsfjörðurinn líti í dag út eins og fallegt stöðuvatn þá sé ég ekkert athugavert við það. Mikið er rætt um virkjun sjávarfalla. Í framtíðinni mætti nota straum- röstina undir brúnni til að fram- leiða rafmagn. Það er nóg til af fjörðum við Ísland sem aldrei verða brúaðir. Teigsskógur Allir Íslendingar þekkja umræð- una um Teigsskóg og vegalagn- ingu þar. Fyrir um 20 árum var auglýst skipulag í Reykhólahreppi með vegalagningu um Teigsskóg og fyrir Hallsteinsnes sem kæmi í stað hins stórhættulega vegar yfir Hjallaháls. Það lenti í mótmælum og málaferlum sem stóðu í mörg ár og var lokið með dómi Hæsta- réttar sem hafnaði vegalagning- unni. En ekki vegna skógarins heldur vegna þess að ekki væru nægar rannsóknir til á botnlífi fjarðanna sem átti að brúa um leið. Á þeim tíma sögðu mótmæl- endur að gera ætti jarðgöng í gegnum Hjallaháls í staðinn. Ekk- ert bólar á slíkri tillögu af neinu viti og engar rannsóknir hafa farið fram. Nú er búið að rannsaka botn fjarðanna og þar er heldur dauft botndýralíf, enda tæmast firðirnir af sjó tvisvar á sólarhring. Teigs- skógur er gamall beitarskógur, birkihríslur eins og sjá má í öllum dölum á sunnanverðum Vest- fjörðum. Eftir að hafa fylgst með vegarlagningu um Barmahlíð fyrir 20 árum, en þar er einnig birki- skógur, treysti ég Vegagerðinni fullkomlega til að fara með gætni í gegnum Teigsskóg þó þar verði lagður vegur. Við bíðum ekki í önnur 20 ár til þess að komast á jarðgangalistann. Til gamans má geta þess að sl. 15 ár hef ég rækt- að skóg á mínu landi í Reykhóla- hreppi og þar af gróðursett u.þ.b. 45.000 birkiplöntur, og fræið er tínt á þessum slóðum. Lokaorð Við Vestfirðingar erum búin að fá meira en nóg af því fólki sem býr við bestu aðstæður allt árið hvað varðar samgöngur og þjón- ustu, en vill fá að ráða því að Vestfirðir verði aðeins sumar- paradís fyrir ferðamenn og þar megi helst ekkert gera til að bæta mannlíf og atvinnulíf. Er það að- eins náttúran sem á að njóta vaf- ans en aldrei mannfólkið sem vill búa með náttúrunni? Vilja menn að allir Vestfirðir verði eyðibyggð- ir? Hver á þá að þjóna ferðamönn- unum sem leggja þangað leið sína? Samfélög verða að fá að þróast og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í landinu. Náttúran er lifandi og síbreytileg. Vestfirðir geta áfram verið náttúruparadís þó lagðir verði öruggir vegir til að ferðast um. Hernaðurinn gegn mannlífi á Vestfjörðum Eftir Jónu Valgerði Kristjánsdóttur »Er það aðeins nátt- úran sem á að njóta vafans, en aldrei mann- fólkið sem vill búa með náttúrunni? Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Höfundur er skógarbóndi í Reykhóla- sveit og fv. sveitarstjóri þar. Móttaka að- sendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Atvinna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.