Morgunblaðið - 07.12.2017, Page 66
Stella ofursvöl í
Spaksmannsspjörum
Morgunblaðið/Ófeigur
Marta María
martamaria@mbl.is
„Framleiðendurnir höfðu samband
og Stella smellpassaði í Spakmanns-
spjara-stílinn. Hún er örugg með sig
og vill vera smart en í leiðinni ekkert
endilega of áberandi. Stella er grjót-
hörð og vill að klæðaburðurinn end-
urspegli það,“ segir Björg sem að-
stoðaði búningahönnuð þáttanna,
Evu Völu Guðjónsdóttur, við val á
fötum á Stellu.
Stella Blómkvist lendir í ævintýr-
um og líka í mjög hættulegum að-
stæðum. Einhvern veginn nær hún
að vera alltaf óaðfinnanleg í öllum
aðstæðum. Björg segir að það hafi
verið gaman að taka þátt í þessu
verkefni.
„Hún er í öllu frá okkur nema
skóm og nærfötum held ég alveg
örugglega. Hún er áberandi í hetju-
kápunni sinni og fer yfir í það að
vera mjög kynþokkafull í samkvæm-
isfatnaði frá okkur.“
Þegar Björg er spurð að því hvað
þetta hafi verið margar flíkur segist
hún ekki muna það.
„Þetta var alveg slatti,“ segir hún.
Stella Blómkvist er ekki alveg
þessi rósótta blómakjólatýpa og
klæðnaðurinn endurspeglaði mann-
gerðina í þáttunum. Það tókst vel til
og þeir sem hafa horft á þættina sjá
að Stella er ansi svöl til fara í þátt-
unum.
„Stella er eiginlega bara í svörtu
nema í einni senu, þá er hún í „off-
white“ og í annarri í blágrænum
buxum. Annars var Stella í blöndu af
allskonar, hetjukápunni sem er upp í
háls hjá henni, leðurbuxum og bol-
um og toppum, samkvæmisklæðnaði
og aukahlutum,“ segir Björg.
Stella Blómkvist hefur slegið í gegn í Sjónvarpi Símans Premium en hún fer
með hlutverk lögfræðings sem blandast inn í æsispennandi mál. Leikkonan
Heiða Reed, sem leikið hefur í þáttunum Poldark, leikur Stellu. Björg Ingadótt-
ir, fatahönnuður og eigandi Spaksmannsspjara, klæddi Stellu í þáttunum vin-
sælu en búningahönnuður þáttanna er Eva Vala Guðjónsdóttir.
Einfalt og smart
Björg Ingadóttir,
fatahönnuður í
Spaksmanns-
spjörum, sá um að
klæða Stellu
Blómkvist.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
6.490 k
4.490
L
f
r.
kr.
esljós
ylgir!