Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 74
74
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Bragð af
vináttu
• Hágæða gæludýrafóður
framleitt í Þýskalandi
• Bragðgott og auðmeltanlegt
• Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@k100.is
Þær Sara Dallin, Siobhan Fahey og
Keren Woodward, sem allar eru
farnar að nálgast sextugt, stofnuðu
Bananarama árið 1981. Þær gefa
yngri poppsystrum sínum ekkert
eftir í kynþokka og framkomu og
voru tvívegis klappaðar upp á líf-
legum tónleikum í Brighton.
Útsendarar K100, Auðun Georg
Ólafsson og vinir hans, sem vilja
ekki láta nafna sinna getið í þessari
frétt af ótta við álitshnekki, skelltu
sér á tónleikana og nutu í botn.
„Þetta byrjaði sem grín og flipp, en
svo ákváðum við að taka þetta alla
leið; gúggla sveitina fyrir tón-
leikana og rifja upp gömlu 80’s lög-
in,“ segir ónefndur vinur Auðuns.
„Það er skemmst frá því að segja
að það kom töluvert á óvart hversu
sveitin á marga einlæga aðdáendur
og hvað þetta voru raunverulega
skemmtilegir tónleikar. Lífsgleðin
og einlægnin var smitandi og við
könnuðumst flestir við lögin. Þetta
var eins og beinlínutenging við
bernskuna að sjá þær á sviði og því
verður ekki neitað að við hrifumst
með. Þvílíkar gyðjur!“
Þeir félagar eru ekki einu Ís-
lendingarnir sem notið hafa tón-
leika Bananarama því sjálf popp-
stjarna Íslands, Páll Óskar, sá þær
í London á dögunum og skrifaði
eftirfarandi færslu á Facebook:
„Þetta var eitt besta gigg sem ég
hef upplifað. Þvílíkt power, orka og
lífsgleði. Djöfull eiga þær mikið af
hitturum. Ég söng (gargaði) með
allan tímann.“
Stöllurnar í Bananarama eru um
þessar mundir á tónleikaferðalagi í
Bretlandi en eftir áramót koma
þær fram í Bandaríkjunum og
Kanada.
Goðsagnakenndu glimmergellurnar í Bananarama slógu enga feilnótu í tón-
leikahöllinni í Brighton um síðustu helgi. Á fimmta þúsund manns dilluðu sér
við þekkt lög sveitarinnar eins og Venus, I heard a Rumour, Na Na Hey Hey og
Cruel Summer. Tónlistarspekúlantar tala um endurkomu ársins og vinsældir
þessarar fyrstu stúlknasveitar Bretlands nálgast nú fyrri hæðir þegar þær
slógu í gegn á níunda áratug síðustu aldar.
Engu gleymt Bananarama-gyðjurnar hafa ekki sungið saman í 30 ár en þær hafa samt engu gleymt.
Gyðjur á fjallstindi –
Bananarama slær í gegn á ný
Hulda Bjarnadóttir
hulda@mbl.is
Sumarið 2011 tóku nokkrir ein-
staklingar sig til og stofnuðu Hinseg-
in kórinn. Fyrsta æfingin fór fram í
húsnæði Samtakanna 7́8 en kórinn
stækkaði það ört að strax var þörf á
stærra húsnæði, og í dag er æft í hús-
næði Listdansskólans í Laugar-
dalnum. Kórinn spilar stórt hlutverk
á Hinsegin dögum í Reykjavík og
Faroe Pride í Þórshöfn í Færeyjum
auk þess að koma fram í afmælum, á
vinnustaðaskemmtunum og víðar. Og
nú er komið að hinum árlegu jóla-
tónleikum kórsins, sem haldnir verða
laugardaginn 9. desember í Linda-
kirkju í Kópavogi. Þar mun jóla-
glimmerinu rigna yfir, eins og segir í
tilkynningu kórsins. Kórstjórinn
Helga Margrét Marzellíusardóttir og
kórmeðlimurinn Ragnhildur Sverris-
dóttir voru í viðtali hjá Huldu og
Hvata í Magasíninu á K100 þar sem
rætt var um starfið og verkefnin fram
undan.
Skemmtilegt og göfugt kórstarf
Helga Margrét, sem er fædd og
uppalin á Ísafirði, hefur stjórnað Hin-
segin kórnum frá því haustið 2011.
Hún segir alla vera velkomna í kór-
inn, óháð kynhneigð. „Hinsegin kór-
inn er ekki bara hinsegin fólk. Ég
myndi samt segja að fólk sé svolítið
hinsegin í sér til að vera með. Við vilj-
um fólk sem er opið, við viljum fólk
sem er glatt og tilbúið að taka þátt í
þessu starfi. Sem er líka að ákveðnu
leyti til að ýta undir þennan málstað.“
Ragnhildur tekur undir það og
segir það aðalsmerki kórsins hversu
fordómalausir kórfélagarnir séu.
Hún heillaðist sjálf af kórnum fyrir
um tveimur árum á tónleikum og
ákvað að sækja um og vera með. „Ég
vildi tengja aftur inn í hinsegin sam-
félagið. Þetta kom mér svolítið inn í
starfið á ný. Það skipti mig máli,“
segir Ragnhildur. Hún segist hafa
verið sópran á árum áður er hún tók
þátt í kórstarfi MR á menntaskóla-
árunum en í dag er hún alt-rödd í
kórnum.
Kórinn er með eindæmum líflegur,
segja þær, og segir Ragnhildur hóp-
inn einstaklega skemmtilegan. Þau
eru eitthvað látin dansa í takt við tón-
ana og fullyrðir hún að danshæfileik-
arnir hafi aukist eftir að hún gekk til
liðs við kórinn. Hvort sem það er
kaldhæðni eður ei segir hún að fólk
verði bara að koma á jólatónleikana
til að dæma fyrir sig sjálft, enda sé
sjón sögu ríkari. „Þetta er bara svo
skemmtilegur hópur,“ segir Ragn-
hildur og ljóst er að gleðin og ástríðan
fyrir söngnum er aðalatriðið.
100 kóra mót í Þýskalandi
Starfið er mikið ár hvert, ekki síð-
ur erlendis, enda er markmið kórsins
að syngja utan landsteinanna að lág-
marki annað hvert ár, samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu kórsins. Í
júní 2014 tók kórinn þátt í Various
Voices, alþjóðlegu kóramóti hinsegin
kóra í Dublin á Írlandi, sumarið 2015
fór kórinn til London og söng sem
gestakór á tónleikum Pink Singers,
hinsegin vinakórs í London.
Helga Margrét og Ragnhildur
segjast hafa tekið þátt í kóramóti í
Finnlandi í vor og nú sé stefnan sett á
Þýskaland. Þar mun kórinn taka þátt
í risastóru hinsegin kóramóti þar sem
tæplega 100 kórar munu mæta til
leiks.
Hýrir jólatónar
Hinsegin kórinn leggur áherslu á
fjölbreytt lagaval og líflega fram-
komu og það verður engin und-
antekning á því á jólatónleikunum
næstkomandi laugardag. Á boðstól-
um verða hýrir jólatónar í bland við
dægurlög og popp en búast má við
miklu fjöri og ljúfum tónum sem áður
hafa verið fluttir af meisturum á borð
við Stevie Wonder, Pat Benatar, Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, Bee Gees,
The Weather Girls og Elton John.
Kórinn syngur sem fyrr segir und-
ir stjórn Helgu Margrétar Marzellí-
usardóttur og píanóleikari er Halldór
Smárason. Með kórnum á jólatónleik-
unum verða Ásmundur Jóhannsson á
trommum, Steinþór Guðjónsson á
gítar og Jóhann Ásmundsson á bassa.
Jólaglimmerinu
mun rigna yfir
Hinsegin kórinn heldur sína árlegu jólatónleika
næstkomandi laugardag, 9. desember, í Lindakirkju
í Kópavogi. Kórinn leggur áherslu á fjölbreytt laga-
val og líflega framkomu og það verður engin und-
antekning á því á laugardag, segja þær Helga Mar-
grét kórstjóri og Ragnhildur Sverrisdóttir sem er
altrödd í kórnum.
Hinsegin kórinn Jólatónleikarnir verða haldnir í Lindakirkju um helgina.
Í heimsókn Ragnhildur og Helga Margrét kórstjóri í viðtali á K100.