Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 83
MINNINGAR 83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
✝ Stella Gísla-dóttir fæddist
á Patreksfirði 18.
júní 1939. Hún lést
á Landspítalanum
15. nóvember
2017.
Hún var elst sex
barna, hjónanna
Gísla Snæbjörns-
sonar og Guðrúnar
Samsonardóttur.
Systkin Stellu eru:
Bjarney, gift Eyjólfi Þorkels-
syni, Sigríður, var gift Jóhanni
Svavarssyni, sem nú er látinn,
Snæbjörn, giftur Kristínu Finn-
bogadóttur, Guðmundur, næst-
yngstur, og þá Margrét, yngst.
Stella giftist Richardi Krist-
jánssyni. Hann er sonur
hjónanna Kristjáns Ólafssonar
og Lilju Kristófersdóttur. Börn
Stellu og Richards eru: 1) Guð-
rún Richardsdóttir, gift Gunn-
ari Brynjólfssyni. Þeirra synir
eru: a) Guðni Páll Gunnarsson,
er í sambúð með Auði Ásgeirs-
dóttur, og synir þeirra eru
Dagur Gunnar og Bjarki
Stormur, b) Brynjólfur Árni
Gunnarsson. 2) Árný Rich-
Vignisson, er í sambúð með
Hildi Guðrúnu Þorleifsdóttur.
Þeirra sonur er Björn Orri. c)
Fjalar Orri Vignisson. 5) Fjalar
Richardsson, er látinn, var í
sambúð með Svanhvíti Yngva-
dóttur, þau slitu samvistum.
þeirra börn eru: a) Erla Fanný,
fósturdóttir Fjalars, er í sam-
búð með Jóni Eyþóri Gott-
skálkssyni, þeirra dóttir er
Svanhvít Rós. b) Friðrik Fjal-
arsson, er í sambúð með Brynju
Hallgrímsdóttur. c) Lilja Mar-
grét Fjalarsdóttir. Frosti Rich-
ardsson var í sambúð með
Hjördísi Gígju Brandsdóttur,
þau slitu samvistum. Þeirra
börn eru Hlífar Máni, Anton
Breki og Emma Dögg. Frosti
er kvæntur Auði Sigurð-
ardóttur. Fósturbörn Frosta
eru Gunnar, Júlía og Unnar.
Stella ólst upp á Patreks-
firði, fór í Framhaldskólann að
Laugum í Eyjafjarðarsveit. Fór
í Húsmæðraskólann í Reykja-
vík. Stella starfaði í Öldusels-
skóla, fyrst sem gangavörður
en lengst af sem húsvörður þar
til hún lét af störfum vegna
veikinda. Stella hafði unun af
söng og var lengi í Kirkjukór
Seljakirkju.
Stella var jarðsungin frá
Seljakirkju 27. nóvember 2017.
ardsdóttir, var gift
Friðriki Dungal
Höskuldssyni, hann
lést af slysförum.
Þeirra synir eru
Richard Dungal og
Árni Kristinn Dun-
gal, hann lést af
slysförum. Árný er
gift Ívari Atlasyni,
þeirra sonur er El-
liði Ívarsson, unn-
usta hans er Krist-
ín Ingólfsdóttir. 3) Gísli
Richardsson, var kvæntur Sig-
ríði Halldórsdóttur, þau slitu
samvistum. Þeirra börn eru: a)
Halldór Fannar Gíslason, er í
sambúð með Jennýju Magn-
úsdóttur. Þeirra sonur er Gísli
Fannar. b) Stella Valdís Gísla-
dóttir, er í sambúð með Brynj-
ari Má Bjarnasyni, þeirra börn
eru Alexander og Orka Malín.
4) Vignir Richardsson, var
kvæntur Unni Ýr Björnsdóttur,
þau slitu samvistum. Þeirra
börn eru: a) Trausti Björn, fóst-
ursonur Vignis, er kvæntur
Jónínu Rós Guðfinnsdóttur.
Þeirra börn eru Erla Ýr og
Kristin Bjarki. b) Axel Kári
Elsku Stella mamma, mamma
og langamma okkar er látin.
Hennar er sárt saknað og verða
afmælisveislur og heimboð öðru-
vísi hér eftir. Stella hafði gaman
af að fylgjast með barnaskar-
anum, enda fyrirmyndarmamma
og -amma. Hún hafði gott tón-
eyra, hafði gaman af söng. Stella
var hlý og umhyggjusöm og var
ekki að velta sér upp úr smá-
munum. Gunni minnist enn
fyrstu samskipta sinna við
Stellu, tilvonandi tengdamóður
sína, þegar hann bauð henni upp
á kaffi, í fyrsta sinn, þá sagði
hún kímin, að það hefði komist
fullmikið af vatni í kaffið.
Þau Rikki voru dugleg að fara
í útilegur með börnin sín og
þurfti næmt auga fyrir því hvar
passaði að stinga hlutum í skott-
ið á bílnum en hver hlutur átti
sinn stað í skottinu. Þegar börn-
in voru flutt að heiman, breyttist
ferðamátinn. Húsbílar voru
komnir í stað Ægistjaldsins. Í
einu ferðalaginu, þau í húsbíln-
um og við í Ægistjaldinu vökn-
uðum við við að Stella og Rikki
voru vel vöknuð og höfðu út-
varpið stillt á fréttir. Við höfðum
á orði að þau hefðu boðið okkur
út í morgunmat. Því þegar við
vorum klædd og komin út var
búið að leggja á borð. Það var
gott að ferðast með þeim og
hefðu ferðalögin mátt vera fleiri.
Húsbíllinn fór nokkuð greitt yfir
og ekki erfitt að vera í samfloti
með þeim, þessi fáu skipti sem
það var. Stella hafði gaman af
hannyrðum. Eftir hana eru
margar myndir sem okkur þykir
afar vænt um.
Kjólasaumur á dæturnar lék í
höndum hennar. Jólakjólar og
hversdagskjólar voru fallegir og
dæturnar ánægðar. Veisluborðin
hennar Stellu og hjálpsemin við
að útbúa veislur er okkur eft-
irminnileg. Því sannarlega
svignuðu borðin undan öllum
kræsingunum. Elsku mamma,
amma og langamma, við þökkum
fyrir allt sem þú gerðir fyrir
okkur af þinni fórnfýsi. Hvíl í
friði.
Kveðja frá
Guðrúnu, Gunnari
og fjölskyldu.
Stella Gísladóttir
Hár aldur skilur
ekki alltaf á milli
lífs og dauða. Þessi
örlög Steins Ólafs Grétarssonar
voru ráðin er hann lést á heim-
ili sínu 7. nóvember síðastlið-
inn. Góður drengur með fagrar
hugsjónir og létta lund lauk þar
með jarðvist sinni.
Steinn Ólafur fæddist á Ísa-
firði 8. ágúst 1962, sonur
hjónanna Grétars Steinssonar
og Valgerðar Karlsdóttur.
Hjónaband foreldranna varð
ekki farsælt til lengdar og slitu
þau samvistir. Eftir það ólst
Steinn upp með móður sinni,
lengst af í Reykjavík. Hann var
efnilegur unglingur, myndar-
legur á velli með háar hug-
sjónir og hjálpsamur öðrum.
Hann vann ýmis störf á breið-
um vettvangi, var vandvirkur
og sanngjarn. Það er fremur
Steinn Ólafur
Grétarsson
✝ Steinn ÓlafurGrétarsson
fæddist 8. ágúst
1962. Hann lést 7.
nóvember 2017.
Bálför Steins
Ólafs fór fram í
kyrrþey 23. nóv-
ember 2017.
regla en undan-
tekning að fólki
sem er félagslega
sinnað með ljúft
hugarfar er hætt-
ara við utanaðkom-
andi áhrifum af öfl-
um sem ekki eru
ávallt eftirsótt og
æskileg. Fljótlega
eftir unglingsárin
fór Bakkus að gera
sig heimakominn
og sótti stíft á. Steinn háði
harða baráttu við að komast úr
klóm hans, en það reyndist erf-
itt.
Ætla má að þessi vandi hafi
reynst honum ofjarl í lífsbar-
áttunni því að hann var aðeins
55 ára að aldri er hann lést.
Nú hvílir Steinn Ólafur í nýj-
um heimkynnum. Hinsta kveðja
og útför fór fram að viðstödd-
um nánustu ættingjum og vin-
um þann 23. nóvember síðast-
liðinn.
Aldraðri móður, föður, börn-
um, systkinum og öðrum ætt-
ingjum og vinum vottum við
okkar dýpstu samúð.
Lára Karlsdóttir,
Ágúst Karlsson,
Svala Karlsdóttir.
Halldóra
Hjaltadóttir
✝ HalldóraHjaltadóttir
fæddist í Hólum
í Nesjum 3.1.
1929. Hún lést á
Heilbrigð-
isstofnun Suð-
austurlands 27.
nóvember 2017.
Útför Halldóru fór fram 6.
desember 2017.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
✝ Tómas Hall-grímsson,
fæddist í Reykjavík
17. september 1967.
Hann varð bráð-
kvaddur á heim-
ilinu sínu í
Cochrane, Kanada,
9. október 2017.
Foreldrar hans
eru Guðrún Örk
Guðmundsdóttir, f.
1941, og Hall-
grímur Tómas Jónasson, f. 1939.
Systkini Tómasar eru: Helga
Björg Hallgrímsdóttir, f. 1959,
eiginmaður hennar er Ágúst
Jakobsson, f. 1956. Þau eiga eina
dóttur og þrjú barnabörn. Anna
Vilborg Hallgrímsdóttir, f. 1960.
Hún á fjögur börn og eitt barna-
barn. Hildur María Hallgríms-
dóttir, f. 1966, eiginmaður henn-
ar er Alexander Poole, f. 1966.
Þau eiga tvo syni. Jónas Hall-
grímsson, f. 1970, eiginkona
hans er Kristín Sverrisdóttir, f.
1972. Þau eiga þrjár dætur.
Tómas ólst upp á
Íslandi til níu ára
aldurs eða þar til
fjölskylda hans
flutti til Calgary í
Albertafylki í Kan-
ada árið 1976. Synir
Tómasar búsettir í
Cochrane í Kanada
eru: Mathias Roger,
f. 1998, og Jakob
Tómas, f. 2001.
Uppeldisdætur
Tómasar eru: Aeriel, f. 1988.
Hún á tvær dætur. Janet Lee, f.
1990. Hún á einn son. Móðir
þeirra er Kathy King. Tómas og
Kathy slitu samvistum árið 2012.
Tómas starfaði við pípulagnir
lengst af og síðustu ár var hann
framkvæmdastjóri í eigin pípu-
lagningafyrirtæki í Calgary.
Útför Tómasar fór fram í
Cochrane, Albertafylki í Kan-
ada, 14. október 2017. Minning-
arathöfn var haldin í Garða-
kirkju 21. nóvember. Jarðsett
var í Garðakirkjugarði.
Þungbær er kveðjustundin,
elsku bróðir. Ósjálfrátt reikar
hugurinn fimmtíu ár aftur í tím-
ann. 16. september 1967. Þetta er
afmælisdagurinn hennar
mömmu. Hún er að því komin að
fæða barn og býst til að fara á
fæðingardeildina. Ég er átta ára
og finnst mikið til þess koma að
mamma fái barn í afmælisgjöf.
En þú ákvaðst að sitja einn að
þínum afmælisdegi og komst í
heiminn 17. september 1967 – lít-
ill hnoðri með bollukinnar sem
mér fannst svo gott að kyssa og
knúsa.
Þremur árum síðar bættist
yngsti bróðirinn í hóp okkar
systkinanna og við þá orðin fimm.
Oft mikið fjör í hópnum og gott
að eiga hvert annað að.
Þú varst níu ára þegar fjöl-
skyldan flutti til Kanada 1976 og
árin liðu. Litli drengurinn þú
varðst að kraftmiklum, fallegum,
ungum manni sem reiðubúinn
var að takast á við lífið. Stofnaðir
fjölskyldu, eignaðist börn og sett-
ir á fót þitt eigið fyrirtæki. Alltaf
mikið að gera.
Þrátt fyrir að búa í rúm fjöru-
tíu ár í Kanada voru rætur þínar
alltaf á Íslandi.
Þú varst stoltur af landi og
þjóð, talaðir ætíð og skrifaðir
lýtalausa íslensku og fékkst ekk-
ert betra að borða en lambakjöt í
karrí þegar þú heimsóttir pabba
og mömmu á Íslandi. Hin síðari
ár sóttir þú Ísland heim eins oft
og þú hafðir tök á. Ljóslifandi í
minningunni er sumarið 2008
þegar þú komst með alla fjöl-
skylduna þína til Íslands í heim-
sókn og við slógum upp samkomu
í sveitinni þar sem stórfjölskyld-
an og vinir komu saman.
Jólin 2012 standa líka upp úr
þegar þú komst til Íslands ásamt
drengjunum þínum tveimur;
Matthíasi og Jakobi. Þá vorum
við öll saman systkinin, börnin
okkar og pabbi og mamma. Syn-
irnir, uppeldisdæturnar tvær og
barnabörnin þrjú sakna nú sárt
pabba síns og afa.
Oft var hugurinn hjá þér, elsku
Tommi minn, þrátt fyrir fjar-
lægðina. Ég er þakklát fyrir allar
góðu stundirnar. Hvíldu í friði.
Þess óskar þín stóra systir
Helga Björg.
Um leið og ég kveð Tómas,
kæran bróðurson minn, sem svo
snögglega var kallaður frá okkur,
skoða ég mynd sem var tekin fyr-
ir nokkrum árum á Laugarvatni.
Þar var stórfjölskyldan saman
komin í tilefni þess að Tommi og
fjölskylda voru á Íslandi en þau
eru búsett í Kanada. Það er skrít-
ið að fjórar manneskjur á mynd-
inni eru nú horfnar frá okkur.
Svo á ég líka fjölskyldumynd frá
jólum 1969 á Háaleitisbrautinni.
Þar var Tommi í fanginu á pabba
og mömmu sinni, voða hræddur
við jólasveininn sem var nú bara
föðurbróðir hans. Nokkrum mán-
uðum seinna kúrði hann hjá okk-
ur í Kópavogi á meðan mamma
hans var á fæðingardeildinni að
eignast yngsta barnið, litla bróð-
ur Tomma.
Öll systkinin hafa myndað
sterka taug við mína fjölskyldu,
bæði á gleði- og sorgarstundum.
Ég þakka fyrir það og enn er
römm þessi taug. Þessar minn-
ingar sem ég rifja upp eigum við
um einstaklega ljúfan dreng.
Síðast þegar Tommi var á Ís-
landi bauð hann mér á kaffihús
og áttum við góða stund saman.
Þó Tommi hafi búið í Kanada í
mörg ár elskaði hann Ísland og
naut þess að ferðast um landið en
vinnan og fjölskyldan voru í
Calgary.
Ég óska þess og bið að drengj-
unum hans vegni vel í framtíð-
inni.
Bróður mínum, mágkonu og
systkinum Tómasar votta ég
sambúð og kveð þig, kæri frændi
og vinur.
Þín frænka
Hrafnhildur.
Tómas
Hallgrímsson
Það er með mikl-
um söknuði að ég
kveð hana, Sigrúnu
Guðmundsdóttur,
Díu, móðir æskuvinkonu minnar,
Guðrúnar. Við Guðrún áttum
heima í sömu blokk í Skipholti
þegar við fæddumst og hefur
vinskapur okkar haldist síðan.
Día var svo indæl, hlý og ljúf,
að mér fannst ég alltaf velkomin
í hvert sinn sem ég kom í heim-
sókn. Það er mér sérstaklega
minnisstætt við eina heimsókn-
ina þegar hún tók á móti mér í
gullsamfestingi sem mér þótti
svo fallegur. Hún tók sig svo vel
út í honum að hún minnti mig
einna helst á prinsessu.
Día var einstök kona og fór
sínar eigin leiðir varðandi útlit
og fataval. Hún átti mikið af föt-
um og voru þau oft mjög sérstök
auk þess sem þeim fylgdi fjöl-
breyttur hárlitur og mikið af fal-
legu skarti, sem oft á tíðum
stakk í stúf við tíðarandann.
Hún stóð uppúr og lét álit ann-
arra ekki hafa áhrif á sig enda
klár og sjálfstæð kona sem vissi
hvað hún vildi. Það birtist líka í
því að hún var útivinnandi og
kláraði nám sem löggiltur fast-
eignasali sem var ekki algengt í
þá daga.
Eftir að hún Día greindist
með Alzheimer hélt hún áfram
að vera þessi ljúfa og yndislega
kona, þó svo að ég veit að það
var alls ekki alltaf auðvelt fyrir
fjölskyldu hennar þegar þessi
sjúkdómur fór að láta á sér bera.
Eftir að hún komst inn á Lauga-
skjól, komu þær mæðgur af og
til í heimsókn til mín, þegar
Sigrún
Guðmundsdóttir
✝ Sigrún Guð-mundsdóttir,
Día, fæddist 27.
janúar 1934. Hún
lést 25. september
2017. Útförin fór
fram 3. október
2017.
Guðrún tók hana
með sér í bíltúr. Ég
á eftir að sakna
þeirra stunda því
það var alltaf mikið
hlegið ekki síst
vegna þess að Día
hefur alltaf haft
mikinn húmor og
ekki síst fyrir
sjálfri sér og þrátt
fyrir veikindin var
alltaf stutt í grínið
hjá henni.
Það var svo dásamlegt að
fylgjast með því hve dugleg og
natin hún Guðrún var við að
sinna mömmu sinni alla tíð. Eft-
ir að hún veiktist sinnti hún
henni alveg sérstaklega vel. Día
var alltaf svo fín og vel til fara,
með snyrtar neglur, fínt hár og í
fínum fötum. Guðrún sá til þess
að hún hélt alla tíð reisn sinni
hvað það varðar og ég veit að
það skipti hana miklu máli.
Elsku Guðrún, Rúnar, Ágúst,
Sturla, Arndís, Rúnar yngri, við
fjölskyldan í Starmýri sendum
ykkur einlægar samúðarkveðjur.
Söknuðurinn er mikill en minn-
ingin lifir.
Nanna.
Elsku amma.
Það eru mikil
kaflaskipti í okkar
lífi nú þegar þú ert
farin. Fallegar minningar sitja
eftir bæði úr Snekkjó, Skúlagöt-
unni og svo að lokum Brúnaveg-
inum.
Þú varst einstaklega falleg,
sterk, dugleg kona og góð fyr-
irmynd og það er alltaf jafnmikill
heiður þegar fólk segir að ég sé
lík ömmu minni í útliti.
Ég er mjög þakklát fyrir að
hafa fengið að hafa þig svona
Elín M. Kaaber
✝ Elín MargretheKaaber fæddist
20. janúar 1922.
Hún lézt 16. nóv-
ember 2017.
Útför og sálu-
messa fór fram 24.
nóvember 2017.
lengi hjá okkur. Ég
er sérstaklega
þakklát fyrir að
Diddi litli fékk að
kynnast langömmu
sinni svona vel.
Honum fannst svo
gaman að kíkja til
þín á Brúnaveginn
og fara með þér á
kaffihúsið að fá
pönnukökur og
kakó. Honum þykir
leitt að hafa ekki náð að nagla-
lakka þig eins og þið voruð búin
að ákveða en við eigum margar
góðar minningar saman sem lifa
áfram.
Elsku amma, við eigum eftir
að sakna þín gríðarlega en það
er mikil huggun í því að vita að
þið afi eruð loksins sameinuð á
ný.
Anna Lára og Friðrik Breki.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru
eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar