Morgunblaðið - 07.12.2017, Qupperneq 97
DÆGRADVÖL 97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Hnífar og hnífatöskur
20%
afsláttur
Gildir til 24. desember á
meðan birgðir endast
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þegar þú trúir á einhvern, gerðu það
þá alla leið. Og það er kannski jafn gott.
Segðu það sem þér finnst, en kenndu ekki
öðrum um líðan þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú færð góðar fjáröflunarhugmyndir í
dag. Ráðgerðu að borða kvöldmat með vin-
unum og segðu þeim góðu fréttirnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er auðvelt að fá letikast á
verstu mögulegu stundu. Frá og með deg-
inum í dag ættirðu að geta horft fram á veg-
inn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hafðu allar staðreyndir á hreinu ef
þú vilt vinna einhverja til fylgis við málstað
þinn. Umfram allt skaltu ekki hafa óþarfa
áhyggjur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður fyrir óvæntu happi og það er
í þínum höndum að spila sem best úr því.
Greiddu hundinum þínum, vökvaðu blómin
og þvoðu teppið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Himintunglin varpa ljósi á ráðgátu í
uppsiglingu. Láttu ekkert verða til að egna
þig upp. Gömul vandamál skjóta upp koll-
inum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú vilt breyta einhverju þá skaltu
strax ganga í málin og sannfæra aðra um
ágæti hugmynda þinna. Ef það gerist, skaltu
segja allt af létta.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert ákveðinn í að komast til
botns í ákveðnu máli í dag. Hafðu í huga að
samskipti þín við aðra endurspegla það hver
þú ert.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er engin ástæða til að gera
of mikið úr hlutunum þótt eitthvað fari öðru-
vísi en þú ætlaðir. Gefðu þér líka tíma til þess
að staldra við og vega og meta stöðu þína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að allt hefur sinn tíma og
það hefur ekkert upp á sig að beita þrýstingi.
En það gerir lítið til, því draumarnir næstu
nótt verða stórkostlegir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Notaðu daginn til þess að ræða
skyldur tengdar barnastarfi eða barnaupp-
eldi í dag. Einbeittu þér að því að leysa mál-
in. Það hefur nefnilega steytt á steinum upp
á síðkastið og orðið tímabært að koma öllu
aftur á flot.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að það eru fleiri en ein hlið á
hverju máli og því getur verið erfitt að finna
sannleikskjarnann. Gleymdu ekki að gefa
þínum nánustu tíma og umhyggju.
Sigurlín Hermannsdóttir skrifarað þá sé jólafastan brostin á með
allri sinni ofgnótt af mat (og öðru). –
„Merkilegt hvað landinn þarf alltaf
að borða mikið ef eitthvert tímabil
kallast fasta,“ segir hún og lætur
ljóðið „Desember“ fylgja:
Dásemd ein er desember
þótt dekki heiminn kaldur snjór
því jólafastan alveg er
yfirfull af mat og bjór.
Litla gefa hlaðborð hvíld,
heimsmenningar göfug stund;
purusteik og pikkluð síld,
piparkrydduð hrossalund.
Villibráð og grafin gæs
grísatær og hreindýrsmauk
hasselbäck á borði er næs
og brúnuð sulta úr rauðum lauk.
Boðið upp á eggjaflan,
ístertu sem bætir geð,
möndlugraut og marsipan,
makkintoss og kaffi með.
Þorlák hyllir þjóðin enn
þykir nokkuð við hann sátt.
Kæsta skatan kætir menn,
kasúldin sú hefur mátt.
Þá blessuð jólin bresta á
er boðið tvíreykt hangikjöt
hamborgarahryggur, já
og heilsteikt rjúpa lögð á föt.
Krónhirti og kalkúnsskip
kunnáttumenn reiða fram
kokka stykki af kostagrip
með kryddi upp á milligramm.
Með öllu þeir svo velja vín
vökvun fyrir sálarhró
aðrir malt og appelsín
og ætla það sé feikinóg.
Um áramótin þjóðin þarf
þokkalega að hlúa að sér.
Það er orðið ærið starf
að eta sig gegnum desember.
Fallegar hugsanir sækja á mann á
jólaföstu. Guðmundur Arnfinnsson
yrkir á Boðnarmiði:
Kertaljósið brennur blítt,
burtu skugga hrekur,
gerir lífið gott og hlýtt
og gleði hjartans vekur.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
sér „Ljósið“:
Þegar allra þreyta fer
þá mun halla degi.
Ljósið fagra lýsi þér
lífs á góðum vegi.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir:
Vonarbirtu ljósið ljær
lífs á dimmum vetri.
Hátíð nálgast helg og skær
hlýnar sálartetri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vel er kveðið á jólaföstu
„HANN ER FRÁ TRYGGINGAFÉLAGINU.
ÞEIR VILDU ANNAÐ ÁLIT“
„EF ÉG KEMST AÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ SÉRT AÐ
PLATA, VERÐUR EKKERT NAMMI Í VIKU“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... Þegar hún vill bara
dansa við þig
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SJÁÐU GRETTIR, ÉG
FANN HAPPASKEIFU
BANK
BANK!
ÞAÐ ER HALTUR HESTUR
FYRIR UTANOG HANN
VIRÐIST EKKI VERA GLAÐUR
ÉG ER SKOTIN
Í HUGAÐASTA
STRÍÐSMANNINUM ÞÍNUM.
…OG HVER MYNDI
ÞAÐ VERA ?
ÞESSI SEM ÞORÐI AÐ BIÐJA
ÞIG UM KAUPHÆKKUN
Jólaundirbúningurinn er hafinn,með öllu sínu stressi og streði.
Víkverja finnst það oft kyndugt
hversu mjög fólk bætir á áhyggj-
urnar á þessum árstíma, allt til þess
eins að geta tryggt sjálfum sér eins
og eina gleðilega kvöldstund mitt í
svartasta myrkrinu.
x x x
Víkverji tekur þrátt fyrir það full-an þátt í stressinu og hleypur til
og frá í leit að bestu jólagjöfunum og
skreytingunum sem gera munu að-
fangadagskvöld að ógleymanlegri
lífsreynslu, og þá vonandi af góða
taginu.
x x x
Þegar Víkverji var barn, var þaðalltaf stór partur af jólaundir-
búningnum að fara á landareign fjöl-
skyldu sinnar, þar sem skógrækt
hefur verið stunduð í fjölmörg ár, til
þess að fá sér jólatré. Féll fjölskylda
Víkverja æði oft í þá gildru, að tré
sem virtust vera lítil og settleg úti í
miðri náttúrunni voru ekki svo lítil
eða settleg þegar þau voru komin í
miðja stofuna. Minntu aðfarir fjöl-
skyldunnar að þessu leyti stundum á
fræga jólakvikmynd með gamanleik-
aranum Chevy Chase.
x x x
Víkverja varð óneitanlega hugsaðtil barnæsku sinnar, nú þegar
hann og Frú Víkverji fóru að kaupa
sér nýtt jólatré. Að þessu sinni
skyldi keypt gervijólatré, þar sem
þau eiga víst að vera umhverf-
isvænni, auk þess sem Víkverji er
ekki viss um að aumingja furunni
eða grenitrénu finnist það skemmti-
legt að hanga í stofunni heima hjá
honum yfir hátíðarnar. Þá losnar
Víkverji að auki við alls kyns dýralíf
sem iðulega fylgir lifandi trjám.
x x x
Til að gera langa sögu stutta, þáfór Víkverji örlítið offari að
þessu sinni, og keypti ögn stærra
jólatré en lagt hafði verið upp með í
byrjun. Það fer svo sem vel í stof-
unni og lítur mikilfenglega út.
Skuggavarp í stofunni er hins vegar
orðið talsvert meira eftir að tréð var
sett upp. Eins gott að jólin eru líka
hátíð ljóssins. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þeg-
ar hann er mér til hægri handar hnýt
ég ekki.
(Sálm. 16:8)