Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 112
112 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Skopmyndateiknarinn og grínist-
inn Hugleikur Dagsson sýnir ásamt
Steinþóri Hróari Steinþórssyni,
betur þekktum sem Steindi Jr.,
kvikmyndina Batman & Robin í Bíó
Paradís í kvöld kl. 20. Verður hún
hluti af sýningum sem Hugleikur
stendur fyrir undir nafninu Prump-
að í Paradís, þar sem skemmtilega
vondar kvikmyndir verða sýndar.
Hugleikur og Steindi munu síðan
leiklesa valið atriði og ræða mynd-
ina við gesti sýningarinnar.
Meira en bara slæm mynd
Batman & Robin frá 1997 hefur
verið aðhlátursefni kvikmyndaunn-
enda árum saman og þykir ein-
staklega klisjukennd en Steindi
segir að á sama tíma sé eitthvað
einstaklega fallegt við myndina.
„Það hefur alveg klárlega eitthvað
gerst, eins og með allar þessar
myndir sem Hugleikur er að sýna.
Það hefur verið einhver brjáluð
meðvirkni á settinu eða það hefur
eitthvað farið allsvakalega úrskeið-
is þarna en á rosalega fallegan hátt.
Það skín alveg í gegn bæði með
þessa mynd og aðrar að það var
verið að vilja vel og það er hjarta á
bak við þetta og það var fólk að
reyna að búa til góða mynd.“
Hugleikur og Steindi munu svo
taka upp hlaðvarpsþátt/uppistand
þar sem kvikmyndin verður rædd
þegar sýningu lýkur og verður
gestum boðið að taka þátt í umræð-
unum. „Við horfum á myndina og
spjöllum svo um hana eftir á. Við
Hugleikur tölum um hana og áhorf-
endur geta tekið beinan þátt í um-
ræðunum eða bara setið og hlustað.
Þetta verður mjög afslappað og
frjálst.“
Steindi segir að þeir félagar ætli
að fara vel yfir myndina, en af
nægu er að taka. Hugleikur hefur
svo þýtt eitt atriði úr myndinni yfir
á íslensku og ætla þeir að leiklesa
það fyrir gesti.
„Ég ef ætti einn draum væri það
sennilega að horfa framan í hljóð-
manninn í senunni þegar
Schwarzenegger, sem Mr. Freeze,
og Uma Thurman, sem Poison Ivy,
eru að fara yfir málin og plotta,“
segir Steindi og hlær. „Það hefði
átt að vera myndavél beint í andlit-
ið á hljóðmanninum sem er að fá
samtalið þeirra mjög djúpt í eyr-
un.“
Steindi segir hins vegar að mynd-
in sé svo miklu meira en bara en lé-
legar samræður og hnyttnar ein-
línur. „Munurinn er að það er verið
að dæla út vondum myndum dag-
lega, það er alltaf verið að prumpa
út einhverjum vondum myndum.
Þetta er ekki einungis vond mynd;
hún er mjög góð á sama tíma. Það
er hægt að horfa á þetta en til þess
að horfa á svona myndir og fá alla
upplifunina þarf að horfa á hana í
hópi. Við erum að hlæja saman og
erum í rauninni að hlæja saman að
óförum annarra en það er ekkert
fórnarlamb. Í það minnsta enginn
sem fær að heyra af því.“ Miðaverð
á sýninguna er 1.600 krónur og
hægt er að nálgast miða á tix.is.
Steindi hvetur fólk eindregið til að
koma og hlæja með þeim.
Morgunblaðið/Hari
Prumpað í Paradís Að sýningu lokinni munu Steindi Jr. og Hugleikur
Dagsson svara spurningum ásamt því að leiklesa eitt atriði fyrir gesti.
Allt fór úrskeiðis
en á fallegan hátt
Batman & Robin sýnd í Bíó Paradís
Biggi Hilmars
fagnar útgáfu
þriðju breiðskífu
sinnar, sem
nefnist Dark
Horse, á tón-
leikum á Húrra,
Tryggvagötu 22,
í kvöld. Húsið
verður opnað kl.
20 og tónleikar
hefjast kl. 21. Biggi leikur lögin af
nýju plötunni ásamt hljómsveit.
„Platan hefur fengið lof erlendra
og innlendra gagnrýnenda og var
plata vikunnar á Rás 2 í síðasta
mánuði,“ segir í tilkynningu. Í við-
tali við Morgunblaðið í seinasta
mánuði sagði Biggi um lög plöt-
unnar: „Ég er að semja um lífið,
dauðann, stríð, veikindi og per-
sónulegar upplifanir sem drifið
hefur á daga mína og minna nán-
ustu á þessu tímabili.“ Plötuna má
nálgast á Spotify og á vefsíðu
Bigga, www.biggihilmars.com.
Miðar eru seldir á tix.is og við inn-
ganginn.
Leikur Dark Horse
á Húrra í kvöld
Biggi Hilmars
Johnny Hally-
day, dáðasta
rokkstjarna
Frakka, er látinn
74 ára að aldri.
Samkvæmt frétt
BBC var beina-
mein hans
lungnakrabba-
mein.
Hallyday, sem
hét réttu nafni Jean-Philippe Smet,
ákvað að gerast söngvari þegar
hann sá Elvis Presley á hvíta tjald-
inu árið 1957. Hann var af aðdáend-
um sínum nefndur hinn franski
Presley, enda var hann fyrstur til
að syngja rokktónlist á frönsku. Á
ferli sínum seldi hann um 100 millj-
ón plötur og lék í fjölda kvikmynda,
en var engu að síður nær óþekktur
utan hins frönskumælandi heims.
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, minnist Hallyday með hlýju
og segir hann eiga heima í hjörtum
allra Frakka. „Hann heillaði
Frakka með gjafmildi sinni á tón-
leikum.“
Johnny Hallyday lát-
inn 74 ára að aldri
Johnny Hallyday
The Killing of a
Sacred Deer
Skurðlæknirinn Steven flæk-
ist inn í erfiðar aðstæður
sem þarf að færa óhugsandi
fórn, eftir að ungur drengur
sem hann tekur undir vernd-
arvæng sinn fer að haga sér
undarlega.
Metacritic 73/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 17.45, 20.00
Atvikið á Nile Hilton
Lögreglumaður rannsakar
dularfullt morð á konu sem í
fyrstu er talin vændiskona,
en annað kemur í ljós.
Bíó Paradís 22.00
Listy do M3
Bíó Paradís 20.00
Batman And Robin
Bíó Paradís 20.00
Thor: Ragnarok 12
Thor er í kapphlaupi við tím-
ann til að komast aftur heim
til Ásgarðs til að stöðva
heimsendi.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 72/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 19.45,
22.30
Murder on the Orient
Express 12
Einn af farþegum Austur-
landahraðlestarinnar er
myrtur í svefni og Hercule
Poirot fær tækifæri til að
leysa málið.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 56/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 20.10, 22.40
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 22.00
Reynir sterki 16
Sagan af Reyni Erni Leós-
syni, sem gerði garðinn
frægan á áttunda áratugn-
um sem sterkasti maður í
heimi.
Smárabíó 20.00
Borgarbíó Akureyri 17.50
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína
sem eiga í deilu við fólkið í
næsta húsi.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 17.50
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 18.00
Wonder
Saga um ungan dreng með
afmyndað andlit, sem tekst
að fá fólk til að skilja að feg-
urð er ekki á yfirborðinu.
Metacritic 68/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.25
Háskólabíó 17.50, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.50,
20.00
Jigsaw 16
Lík finnast hér og þar í borg-
inni og þau benda til þess að
hryllileg morð hafa verið
framin að undanförnu.
Metacritic 39/100
IMDb6,1/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Blade Runner 2 16
Morgunblaðiðbbbbn
Metacritic 82/100
IMDb 8,8/10
Smárabíó 20.30, 22.10
A Bad Mom’s
Christmas 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,7/10
Laugarásbíó 20.00, 22.15
Háskólabíó 18.00, 21.00
Litla vampíran Tony langar að eignast vin til
að hleypa smá ævintýrum
inn í líf sitt.
Metacritic 45/100
IMDb 5,9/10
Laugarásbíó 17.30
Smárabíó 15.40, 18.00
Hneturánið 2 Ævintýramynd um sérvitran
íkorna og vini hans.
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 15.40
The Party
Janet heldur veislu til að
fagna stöðuhækkun.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 18.00, 23.00
Mother! 16
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 74/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 22.15
Í myndinni hafa þeir Dusty og Brad ákveðið að
taka höndum saman um að halda hin fullkomnu
jól fyrir börnin. Það reynir hinsvegar á þessa nýtil-
komnu vináttu þeirra þegar karlremban faðir
Dusty og hinn ofurblíði og tillitssami faðir Brad,
sem John Lithgow leikur, mæta á svæðið.
Metacritic 30/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 21.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 17.00, 17.50, 19.30, 19.50, 22.00, 22.10
Daddy’s Home 2
Coco
Röð atburða, sem tengjast aldagamalli ráðgátu, fer af stað.
Það leiðir til óvenjulegra fjölskylduendurfunda.
Metacritic 80/100
IMDb 8,9/10
Sambíóin Álfabakka
17.20, 18.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni
17.20
Sambíóin Akureyri 17.20
Smárabíó 15.15, 17.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Justice League 12
Batman safnar liði af ofur-
hetjum; Wonder Woman,
Aquaman, Cyborg og The
Flash, til að sigrast á aðsteðj-
andi ógn.
Metacritic 49/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.20, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 21.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.10, 19.45, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 22.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna