Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 113
MENNING 113
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2017
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Diskurinn er hluti af jólasýning-
unni minni, Las Vegas Christmas
Show, og lögin á samnefndum diski
eru blanda af jólalögum
og venjulegum amerísk-
um popplögum. Diskurinn
er óður til sýningarinnar
og ákvörðunin um að
blanda saman jólalögum
og popplögum er pínu
öðruvísi og á að gefa hug-
mynd um hvernig við vinnum þetta.
Það má segja að þetta séu tvær plöt-
ur á einum diski og því má spila
diskinn allan ársins hring eða byrja
að spila hann í nóvember og halda
svo áfram út desember,“ segir Geir
Ólafsson, söngvari og tónlistar-
maður, um jóladisk sem hann gefur
út samhliða jólatónleikunum sem
hann heldur í Gamla bíói á morgun,
föstudag, og einnig á laugardag.
Þekktir hljóðfæraleikarar
„Það er virkilega ánægjulegt að
strákarnir frá Ameríku skuli vera
það áhugasamir að vilja vera með
mér hérna á Íslandi með sýningu,
þeir hafa hvatt mig til að halda
áfram að gefa út efni og voru með
mér í því. Þetta eru allt frekar
þekktir hljóðfæraleikarar. Don
Randy er sá frægasti. Hann spilaði
inn allt fyrir Beach Boys, Michael
Jackson, Frank Sinatra og var í The
Wrecking Crew, hljómsveit sem
spilaði fyrir allar stórstjörnurnar í
Los Angeles á sjöunda og áttunda
áratugnum og menn hafa keppst um
að fá að vinna með honum. Hann vel-
ur þá sem koma með honum til
Íslands að spila á sýningunni. Um-
gjörðin verður í sama stíl og í Las
Vegas en ég er með hljóðfæraleikara
sem eru fastráðnir flestir sem stúdí-
ótónlistarmenn og hafa unnið mikið í
Las Vegas. T.d. spiluðu fjórir af
þeim sem koma til landsins núna á
amerísku tónlistarverðlaununum,
með Beyoncé og fleirum, þannig að
þetta er stórt skref fyrir mig en lítið
fyrir mannkynið,“ segir Geir, hress í
bragði.
Hann segir Las Vegas-þemað
tengjast því að vera með amerískt
efni og hljóðfæraleikara og tónlistin
sé í takt við það sem er að gerast í
Las Vegas núna. Geir og Don Randy
ákváðu að gefa ungu og efnilegu
fólki tækifæri til að koma fram því
honum finnst mikið sama fólkið allt-
af vera að koma fram og syngja.
„Annars vegar er það Alexandra
Dögg Einarsdóttir og hins vegar
Már Gunnarsson, sem er
blindur söngvari og píanó-
leikari. Þau eru bæði langt
innan við tvítugt, bara 16-
17 ára. Það er mikill heið-
ur að hafa tækifæri til að
bjóða fólki upp á að sjá og
heyra flóruna; ungt hæfi-
leikafólk sem þarf að fá tækifæri til
að láta ljós sitt skína.“
Varðandi lagavalið þá var Don
Randy með hugmyndir og Geir líka,
þeir báru þær undir hvor annan og
þannig völdust lögin í sýninguna og
diskinn, að sögn Geirs, en hann gaf
út jólalög í fyrra og sum eru þau
sömu. Munurinn núna sé sá að að
þessu sinni séu lögin tekin upp „live“
í stúdíóinu, hver nóta sé eins og hún
var spiluð.
Seldist upp á átta klukkutímum
„Ég er stoltur af því að vera með
„dinner & show“, það verður lagt
meira í þetta verkefni núna, við er-
um alltaf að læra, þetta er alltaf að
stækka. Það hefur verið mikil eftir-
spurn og það er búið að biðja okkur
mikið um að vera með þriðju og jafn-
vel fjórðu tónleikana en við viljum
halda okkur á jörðinni og gera það
vel sem við höfum í höndunum og
reyna að byggja á þessu. Vonandi
getum við þá verið með fleiri sýn-
ingar á næsta ári, en það seldist upp
á tónleikana núna á aðeins átta
klukkutímum.
Ég er gríðarlega ánægður og
þakklátur fyrir það og ég vil nota
tækifærið og þakka öllum sem hafa
keypt miða og stutt þetta verkefni,
en ég er að reyna að gera eitthvað
sem er öðruvísi en gengur og gerist
á Íslandi. Það er mikill heiður.“
Aðspurður hvað hann sé búinn að
vera að gera á árinu segist Geir m.a.
vera í söngnámi. „Ég er alltaf í tím-
um hjá Kristjáni Jóhannssyni óperu-
söngvara, hann er bara yndislegur,
ég er búinn að vera hjá honum í
nokkuð mörg ár. Það hefur verið af-
ar lærdómsríkt og breytt ferli mín-
um mikið,“ segir Geir og kveðst
sjálfur ekki vera að kenna en þeim
mun meira í að gefa ungum söngv-
urum tækifæri. „Annars varð ég fað-
ir árið 2016, ég eignaðist litla dóttur
sem heitir Anna Rós, hún hefur átt
hug minn allan og það eina sem ég
hef verið að gera undanfarið er að
reyna að vera góður pabbi og góður
uppalandi. Þetta er það besta sem ég
hef gert á ævinni, að eignast þessa
litlu stúlku.
Ég er þakklátur fyrir að eiga líka
góða konu en ég gifti mig á árinu.
Nú eigum við fjölskyldu og ég er
orðinn fjölskyldufaðir og það á hug
minn allan. Allt annað er í raun lítils
virði miðað við það.“
„Stórt skref fyrir mig
en lítið fyrir mannkynið“
Las Vegas-jól Geirs Ólafs, nýr diskur og tónleikar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Augasteinn Geir Ólafsson ásamt dóttur sinni, Önnu Rós, sem á hug hans allan. „Það eina sem ég hef verið að gera
undanfarið er að reyna að vera góður pabbi og góður uppalandi,“ segir Geir sem undirbýr jólasýningu sína.
Ós Pressan stendur fyrir útgáfu-
teiti í tilefni af annarri útgáfu Óss,
The Journal, í kvöld kl. 19 í Grön-
dalshúsi. Útgáfan inniheldur texta
á átta tungumálum eftir 31 höfund
og tengjast höfundarnir allir Ís-
landi. The Journal er fjölþjóðlegt
bókmenntatímarit með 13 smásög-
um og 28 ljóðum. Tungumálin átta
eru íslenska, enska, pólska, þýska,
hollenska, spænska, kúrdíska og
búlgarska, að því er fram kemur í
tilkynningu. Nokkrir af þeim sem
eiga verk í útgáfunni munu lesa
upp úr verkum sínum fyrir gesti í
teitinni í kvöld.
„Markmið Ós Pressunnar er að
fagna öllum þeim ólíka uppruna,
kynjum, stílum og tungumálum sem
móta hið íslenska bókmennta-
samfélag í dag,“ segir ritstjórn í til-
kynningu.
Ós fagnar útgáfu The Journal
Höfundur Eiríkur Örn Norðdahl er meðal
þeirra sem efni eiga í The Journal.
Atvinna
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 6
SÝND KL. 8, 10.15SÝND KL. 5.30, 8, 10
SÝND KL. 8, 10.25
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
ICQC 2018-20