Morgunblaðið - 07.12.2017, Side 116
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Drakk bara vatn í heila viku
2. Þórdís Kolbrún í stað Sigríðar
3. Án ríkisfangs í Danmörku
4. Munar um álið í sprittkertunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Árlegir jólatónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur verða í Norður-
ljósum Hörpu á sunnudag kl. 17. Ein-
leikarar koma úr röðum sveitarinnar
en einnig verður lútuleikarinn Arn-
geir Heiðar Hauksson sérstakur gest-
ur. Hann hefur helgað sig uppruna-
flutningi á fornri tónlist og hefur
starfað lengi í Bretlandi með ýmsum
tónlistarhópum.
Árlegir jólatónleikar
Kammersveitarinnar
Degi íslenskrar
tónlistar er fagn-
að í dag kl. 11. Í
Hörpu verða flutt
þrjú lög og út-
varpað í beinni
svo þjóðin geti
tekið undir. Sig-
ríður Thorlacius,
Valdimar Guð-
mundsson og Tómas Jónsson flytja
„Líttu sérhvert sólarlag“ eftir Braga
Valdimar Skúlason, Elín Ey flytur „Ef
engill ég væri með vængi“ eftir Ellen
Kristjánsdóttur við texta Elínar
Eiríksdóttur og Jón Jónsson flytur
„Gefðu allt sem þú átt“ eftir sjálfan
sig við texta Einars Lövdahl.
Degi íslenskrar tón-
listar fagnað í dag
Auður Gunnarsdóttir sópran, Þor-
björn Rúnarsson tenór og Bjarni Thor
Kristinsson bassi flytja jólaperlur frá
ýmsum tímum ásamt kvennakórnum
Concordia og hljómsveit á
lokatónleikum ársins
hjá Á ljúfum nótum í
Fríkirkjunni í dag kl.
12. Aðgangseyrir
rennur óskiptur til
styrktar kviðarhols-
og þvagfæraskurð-
deild Landspít-
alans.
Jólaperlur frá ýmsum
tímum í Fríkirkjunni
Á föstudag
Breytileg átt 3-8 m/s, léttskýjað. NV 10-18 austanlands framan af
og dálítil él með ströndinni, lægir smám saman. Frost 4 til 14 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Lægir með bjartviðri vestan til, en áfram hvassviðri eða stormur og
él austanlands. Frost 1 til 6 stig, en herðir á frosti síðdegis.
VEÐUR
Ungt lið Fjölnis berst fyrir lífi
sínu í Olísdeild kvenna í
handknattleik en þetta er
aðeins þriðja tímabilið eftir
að ákveðið var að senda
meistaraflokk til keppni
haustið 2015. Fjölnisliðið er
að stórum hluta byggt á hópi
stúlkna sem urðu Íslands-
meistarar í 4. flokki árið
2014. Í opnu íþróttablaðsins
í dag er fjallað ítarlega um
lið Fjölnis og rætt við Andreu
Jacobsen. » 2-3
Ungt lið Fjölnis í
harðri baráttu
FH-ingurinn Gísli Þorgeir Krist-
jánsson verður fyrsti íslenski hand-
knattleiksmaðurinn í sex ár til þess
að fara frá íslensku félagsliði beint í
efstudeildarlið í Þýskalandi. Gísli
skrifaði undir
þriggja ára
samning við
THW Kiel á
dögunum, en
gjörningurinn
var opinber-
aður í gær. Þeir
sem síðast fóru
beint frá Íslandi í
efstu voru einnig
Hafnfirðingar. » 1
Sá fyrsti í 6 ár sem fer
beint í þýsku deildina
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA,
mun greiða félögum sem eiga leik-
menn í lokakeppni heimsmeistara-
móts karla í knattspyrnu í Rússlandi
næsta sumar samtals 21,5 milljarða
íslenskra króna og upphæðin er þre-
falt hærri en í síðustu keppni.
Greiðslur til félaga vegna þátttöku ís-
lenska landsliðsins nema minnst 534
milljónum króna. » 1
Fá 534 milljónir fyrir
þátttöku Íslands á HM
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Safnaðarstarfið í Glerárkirkju er lif-
andi og fjölbreytt og þátttaka fólksins
góð. Frá fyrstu tíð höfum við átt vel-
unnara sem hafa lagt lið með ýmsu
móti – og í sóknarnefnd og önnur leið-
andi hlutverk hér hefur valist fólk sem
hefur haft metnað fyrir hönd kirkj-
unnar. Að því búum við mjög,“ segir
Gunnlaugur Garðarsson, sóknar-
prestur við Glerárkirkju á Akureyri.
Um komandi helgi verða liðin 25 ár frá
vígslu kirkjunnar, en það var á öðrum
sunnudegi í aðventu árið 1992. Þess-
ara tímamóta er minnst með ýmsu
móti. Þar ber hæst hátíðarmessu
sunnudaginn 10. desember klukkan
11.
Ein besta nútímakirkjan
Á Akureyri er Lögmannshlíðar-
sókn, kennd við kirkjustað í útjaðri
bæjarins. Henni var lengi þjónað af
prestum Akureyrarkirkju en árið 1981
var ákveðið að setja á laggirnar sjálf-
stætt prestakall og reisa því kirkju. Sr.
Pálmi Matthíasson kom þá til starfa
og þjónaði í átta ár og á eftir honum sr.
Pétur Þórarinsson, sem þjónaði í tvö
ár. Frá 1991 hefur Gunnlaugur Garð-
arsson verið sóknarprestur í Glerár-
kirkju. Prestur við kirkjuna er Stef-
anía Guðlaug Steinsdóttir, djákni er
Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir og
Valmar Väljaots er tónlistarstjóri.
„Fyrstu tvö árin sem ég þjónaði hér
stóðu framkvæmdir við kirkjuna enn,
svo að verkefni varðandi bygginguna
voru talsverður hluti af starfi mínu
fyrstu árin, Að vísu var bráðabirgða-
aðstaða í kirkjunni komin en starfinu
voru eigi að síður takmörk sett. En svo
var kirkjan vígð og þá breyttist margt
til betri vegar. Svanur Eiríksson arki-
tekt hannaði einhverja bestu nútíma-
kirkju á Íslandi, sem tekur mið af fjöl-
þættu starfinu hér,“ segir Gunn-
laugur.
Lögmannshlíðarsókn nær yfir
hverfin á Akureyri norðan Glerár. Þar
búa um 7.500 manns og af þeim eru
tæplega 7.000 skráð í Þjóðkirkjuna,
sem telst hátt hlutfall.
Festa í samfélagi
„Kirkja skapar festu í samfélaginu.
Það á ekki síst við úti á landi, þar sem
safnaðarstarf tengir fólk saman á
dýpstu forsendum lífssýnar. Tilbeiðsla
er kjarni kirkjustarfs og hér eru mess-
ur alla sunnudaga og fylgt sígildu
formi. Messan er kjölfestan og utan
um þann miðpunkt höfum við fjöl-
breytni og víðan faðm,“ segir Gunn-
laugur og getur þess að í Glerárkirkju
sé öflugt barna- og unglingastarf og
þar oft fyrirlestrar um áhugaverð efni,
m.a. guðfræði. „Kirkjan og kærleiks-
boðskapur hennar skipta miklu máli
og hingað í Glerárkirkju kemur fólk
bæði í gleði og sorg,“ segir sóknar-
presturinn.
Kjölfestan og víður faðmur
25 ára vígsluaf-
mæli Glerárkirkju
á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sóknarprestur Kirkjan með sinn kærleiksboðskap skiptir samfélagið miklu máli, segir sr. Gunnlaugur Garðarsson.
Nú á laugardag, 9. desember, flytur Pétur
H. Ármannsson erindi í Glerárkirkju sem
ber yfirskriftina Guðshús nýrra tíma.
Pétur er manna fróðastur um húsa-
gerðarlist Íslendinga og byggingarsögu
og mun nálgast sögu kirkjunnar á þeim
nótum. Fyrirlestur Péturs hefst kl. 14.
Á sunnudagsmorgun kl. 11 hefst svo
hátíðarmessan þar sem biskup Íslands,
Agnes M. Sigurðardóttir, þjónar ásamt
prestum kirkjunnar. Þegar afmælishald-
inu lýkur tekur við helgihald í aðdraganda
jóla, með ýmsum viðburðum sem allir
bera þess svip að hátíð fer nú að hönd-
um.
Í guðshúsi nýrra tíma
HÁTÍÐARMESSA Á SUNNUDAGINN