Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Spurð um gott ráð til að hjálpa
fólki að borða betur segir Alda
„Grænmeti með hádegis- og kvöld-
mat, ekki verra að hafa það í milli-
málum líka. Það má alveg fela það
í réttunum, þarf ekki endilega að
vera hálfur diskur af salati. Annars
er alltaf best að meta hversu mikla
næringu hver máltíð mun gefa
manni, velja betri kostinn næring-
arlega og skammtalega.“
Fyrir þá sem vilja fylgjast með
Öldu má finna hana á samfélags-
miðlum undir aldawellness.
Döðlupestó
1 krukka sólþurrkaðir tómatar (ca
300 gr krukkan með olíu)
1 krukka steinlausar svartar ólífur
(ca 100 gr ólífur)
10 stórar og mjúkar döðlur
2 hvítlauksrif
1,5 dl kasjúhnetur
1,5 dl klettasalat
Hella olíunni af sólþurrkuðu
tómötunum og vatninu af ólífunum.
Skera döðlurnar og taka steinana
úr þeim. Rífa niður tvö hvítlauks-
rif. Annaðhvort saxa þetta allt með
hníf og hræra saman i skál eða
skella því í matvinnsluvél. Passa
bara að mauka það ekki alveg ef
ætlunin er að halda í þessa grófu
áferð. Saxa klettasalat og kasjú-
hnetur í grófa bita og bæta út í
skálina. Hræra allt vel saman. Gott
er að bæta við næringargeri og
hræra saman við en það gefur
keim af ostabragði. Einnig má
bæta við fetaosti.
Gott er að leyfa pestóinu að
standa í kæli í smá tíma áður en
það er borið fram, leyfa bragðinu
að hámarka sig. Pestóið má bera
fram með brauðsneið, hrökk-
brauði, baka það á þunnum pizza-
botni eða jafnvel hræra soðin egg
saman við.
Dúndur-uppskriftir einkaþjálfarans
Alda María Ingadóttir, íþróttafræðingur og þjálfari í Hreyfingu, er orkumikil og jákvæð fyrir nýju ári. Alda kennir einnig hiphop dans
og eldri borgurum stóla- og vatnsleikfimi en hún hættir ekki þar því hún er einnig öflug í eldhúsinu og deilir hér girnilegum upp-
skriftum í hollari kantinum sem gott er að styðjast við nú í janúar þegar margir ákveða að byrja árið með bættum lífsstíl.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Girnilegt Döðlupestóið
svíkur engan.
Sætkartöflu-borgari 4 stk
Kartöfluskífur
1-2 stórar sætar kartöflur
0,5 dl ólífuolía
1 tsk hvítlauksduft
¼ tsk svartur pipar
1/3 tsk gróft salt
Borgarar
500 gr hakk
½ -1 tsk hvítlauksduft
½ tsk gróft salt
½ tsk grófur pipar
1 egg
Á milli
Hvítlauks aioli sósa (til dæmis frá
Gestus)
Klettasalat
Grænmeti að vild (agúrka, tómatur,
paprika, steiktir sveppir)
Kartöfluskífur:
Blandið olíunni og kryddinu saman.
Hitið pönnu á háum hita.
Skerið niður stóra sæta kartöflu í
átta eins cm þykkar sneiðar og
penslið dressingunni á b áðar hliðar.
Kartöflurnar eru steiktar á hvorri
hlið í 5-10 mínútur. Hægt er að
steikja þær allan tímann á pönnu,
setja þær á grill eða í ofn. Gott er
að setja þær á grill eða pönnu til að
fá stökkari áferð að utan.
Borgarar:
Blandið hakkinu og kryddunum
saman í skal. Hrærið eggið saman
og hella því út í hakkið. Hnoðið vel
saman og skiptið svo í 4 hluta.
Blöndunni er hnoðað saman í kúlur
og þær flattar út með lófunum eða
hamborgarapressu. Borgararnir
eru steiktir á pönnu eða grilli eftir
smekk. Varist að ofsteikja, gott er
að hafa borgarann léttbleikan í
miðjunni. tobba@mbl.is
Djúsí frá grunni Heimagerðir
borgarar eru fljótlegir í gerð
og innihalda engin aukaefni.
Alda einkaþjálfari Hægt er
að fylgjast með hollum afrek-
um Öldu á instagram undir
nafninu aldawellness.
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja