Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 7
Kjartan Magnússon
— í forystu fyrir Reykjavík
Traustur og dugandi
forystumaður fyrir Reykjavík
Veljum þekkingu, yfirsýn og ábyrgð
í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðismanna á laugardag.
Kjartan Magnússon hefur víðtæka
þekkingu á borgarmálum og er
þekktur fyrir málafylgju í þágu Reyk-
víkinga. Hann gjörþekkir málefni
allra hverfa borgarinnar og vill að
hvert þeirra blómstri á sínum for-
sendum. Fjölmargir borgarbúar leita
til hans þegar vinna þarf að einstökum
málum, t.d. varðandi viðhald gatna
og gangstétta, umhirðumál, skólamál,
íþróttamál og svo mætti áfram telja.
Hann veit að Reykvíkingar eru fjöl-
breyttur hópur, með mismunandi
þarfir, sem kalla á ólíkar lausnir.
Kjartan hefur verið óþreytandi við
að gagnrýna vinstri meirihlutann í
borgarstjórn, en um leið haft skýra
sýn hvert beri að stefna. Þannig hefur
hann flutt tillögur um hvernig leysa
megi húsnæðisvandann með auknu
framboði nýrra lóða og umferðar-
vandann með nýjum samgöngumann-
virkjum, eflingu og aukinn skilvirkni
leiðakerfis Strætó. Kjartan hefur einn-
ig flutt fjölda tillagna um úrbætur í
skólamálum, umhirðumálum og mál-
efnum eldri borgara, sem vinstriflokk-
arnir hafa látið reka á reiðanum.
Kjartan hefur harðlega gagnrýnt
útþenslu stjórnkerfisins í tíð vinstri
manna. Hann hefur barist gegn því
að borgarfulltrúum verði fjölgað um
53% eða úr 15 í 23 eins og vinstri
meirihlutinn hefur beitt sér fyrir. Þess
í stað vill Kjartan endurskoða kosn-
ingafyrirkomulag, binda kosningu
borgarfulltrúa við ákveðin kjörhverfi
og sjá þannig til þess að öll hverfi eigi
sér málsvara í borgarstjórn. Þannig
verður ábyrgð borgarfulltrúa aukin og
boðleiðir styttar milli þeirra og kjós-
enda.