Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Fuglavernd stendur fyrir fræðslu-
kvöldi um garðfugla kl. 21 í kvöld,
fimmtudaginn 25. janúar, í sal Barð-
strendingafélagsins, Hverfisgötu
105, Reykjavík. Örn Óskarsson, fé-
lagsmaður og umsjónarmaður garð-
fuglakönnunar Fuglaverndar, heldur
framsöguerindi um garðfugla, grein-
ingu tegunda og fóðrun þeirra. Að er-
indi loknu svarar hann fyrirspurnum
úr sal. Skrifstofa Fuglaverndar verður
opin, en þar er hægt að kaupa fóður-
hús, fuglahús, fóðrara og fuglafóður
til styrktar félaginu. Frítt inn fyrir fé-
lagsmenn og eru nýir félagar boðnir
sérstaklega velkomnir.
Garðfuglahelgin er svo strax í kjöl-
farið, helgina 26. – 29. janúar. Árlega
fitjar Fuglavernd upp á talningu garð-
fugla yfir eina helgi, venjulega síð-
ustu helgina í janúar. Gott er að hefja
undirbúning talningar nokkrum dög-
um áður með því að hefja daglegar
fóðurgjafir til að lokka að fugla.
Nánari upplýsingar um fram-
kvæmdina eru á vefsíðunni fugla-
vernd.is.
Vefsíðan www.fuglavernd.is
Fuglafræðsla í kvöld og
garðfuglakönnun um helgina
Morgunblaðið/Golli
Garðfugl Auðnutittlingar eru af finkuætt og lifa í skógum, kjarri og görðum.
Ljósmynd/Bill Bradshaw
Heimsóknin Hallvarður fremstur á mynd að taka þátt í sýningunni The Visit eftir Friedrich Dürrenmatt.
Katrín Lilja Gunnarsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Þegar ég komst ekki inn íListaháskóla Íslands þávar það eina sem ég heyrði„þú getur reynt aftur eftir
heilt ár“ eða „Sveppi reyndi í sex ár“.
Ég er greinilega óþolinmóð mann-
eskja að vilja ekki bíða í ár. Ég vildi
byrja strax. Af-
hverju að eyða
heilu ári? Ég
byrjaði á að fara á
kynningar og
sótti svo um í leik-
listarskóla í Bret-
landi sem mér
leist vel á. Ég
flaug út í prufu og
fékk strax svar
um að ég hefði
komist inn. Loks-
ins gat ég byrjað!,“ segir Hallvarður
Jes Gíslason, leiklistarnemi í Bourne-
mouth á Englandi um þá ákvörðun
sína að leggja land undir fót og láta
reyna á lukkuna á erlendri grundu.
En hvers vegna leiklist?
„Ég hef alla mína ævi á einn eða
annan hátt verið tengdur við leiklist.
Ég útskrifaðist af Leiklistarbraut
Fjölbrautaskólans í Garðabæ og sem
krakki fór ég á nokkur sumarnám-
skeið í í Draumasmiðjunni hjá Borg-
arleikhúsinu og var einnig virkur
meðlimur í leikfélaginu Óríon í nokk-
ur ár. Ég fór á leiklistarhátíðir í bæði
Þýskalandi og Möltu, leikstýrði verki
í Borgarleikhúsinu í samstarfi við há-
tíðina Unglist, auk þess sem ég hef
verið aukaleikari hér og þar.“
Gott að breyta aðeins til
Að sögn Hallvarðar er töluverð
upplifun að læra í erlendum háskóla.
Það er skemmtileg lífsreynsla. Ég
missi auðvitað af háannatímanum í
Hámu og pup-quiz kvöldunum í
Stúdentakjallaranum, en öðlast
reynsluna að búa í öðru landi sem
mér finnst að allir ættu að prófa að
minnsta kosti einu sinni á ævinni. Ég
er ekki beint hinum megin á hnett-
inum, en munurinn er samt nægur til
að gera háskólareynsluna ógleym-
anlega. Mæli einnig eindregið með að
prófa að búa í landi þar sem aðal-
tungumálið er ekki enska.“
En hvað skyldi standa uppúr?
„Nú tala ég við alla listamenn.
Þekkiði ekki tilfinninguna að sjá all-
an áhuga hverfa á sekúndubroti í
augunum á manneskju sem var að
spurja hvað þú vilt verða? Þú segir
„listamaður“ og viðkomandi svarar
„já, flott . . . en hvað ætlarðu í alvör-
unni að verða?“ Það brýtur mann
niður þegar enginn skilur að þetta er
meira en bara áhugamál. Seinustu
þrjú ár hef ég algjörlega losnað við
þetta. Fólkið í skólanum kemur fram
við mig sem listamann, leikara í míni
tilviki. Engin niðrandi augnráð held-
ur koma spurningar eins og „hefurðu
áhuga á að leika í myndinni sem að
ég er að fara að leikstýra“ eða þýða
„ég hef verið að vinna að myndatöku
og væri til í að vinna með þér “.
Draumurinn er orðinn að veruleika.
Þetta er það sem hefur staðið mest
uppúr fyrir mig í náminu, að geta
loksins fengið svigrúm til að vera
leikari,“ segir Hallvarður og tekur
fram að hann hafi aldrei fengið þetta
augnaráð frá fjölskyldu sinni. „Þar
var ég heppinn.“
Vill stofna Listamanna-félag
Hvar sérðu sjálfan þig að námi
loknu?
„Ég sé fyrir mér lífstíl þar sem
ég get flakkað á milli þess að leika í
bæði bíómyndum og leikritum, hvort
sem það verður erlendis eða á Ís-
landi, og svo bæði þróa og koma upp
listamanna-félagi með vini mínum
sem er að læra á Spáni. Þetta Lista-
manna-félag myndi hafa algjört
frelsi til að gera sín eigin verkefni,
hvort sem það væru bíómyndir,
þættir eða leikrit. Og fólk getur
komið til okkar með hugmyndir,
hæfileika, handrit og spurt „getum
við unnið saman að þessu verkefni?“
Sífellt færist í vöxt að Íslend-
ingar flytji til útlanda, og hafa marg-
ir þeirra kosið að setjast að í Bret-
landi. Spurður hvað sé gott að hafa í
huga þegar á að aðlagast bresku
samfélagi stendur ekki á svari.
„Ekki bjóða Breta ristað brauð með
marmelaði og osti. Sú blanda á eftir
að fá þig rekinn úr landinu. Er ekki
einu sinni að grínast. Án efa skrýtn-
asti menningarmunur sem ég veit
um. Og hinn hluturinn sem Bretar
kunna ekkert á eru innanhúss-
hittingar. Ég á hinsvegar heima í
stúdentahúsi svo það gæti verið und-
antekning.“
Engin niðrandi
augnaráð
í skólanum
Hallvarður Jes Gíslason er leiklistanemi í Arts
University í Bournemouth á Englandi. Hann er einn
af fjölda Íslendinga sem kjósa að sækja sér menntun
til útlanda en sá hópur fer sístækkandi.
Fínir Hallvarður lagar bindi samleikara síns eftir sýningu The Visit.
Æfing Leiklistarnemendur á æfingu, Hallvarður svartklæddur fyrir miðju.
Hallvarður Jes
Gíslason
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað