Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
fyrir öll tölvurými og skrifstofur
Rafstjórn tekur út
og þjónustar kæli- og
loftræstikerfi
Kæling
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Verð frá kr.
181.890 m/vsk
Aukin lífsgæði
án verkja og eym
Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata
ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar.
Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6
töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra
svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég
var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og
smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir
nú horfnir.
Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu
sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum.
Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra
gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“
Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt
NUTRILENK
ACTIVE
sla
Það er þyngra en tár-
um taki að horfa upp á
ástand þjóðvegakerf-
isins á Vesturlandi og
Vestfjörðum. Á þessu
svæði er ástandið senni-
lega hvað verst á lands-
vísu og brýnust þörf
fyrir úrbætur til að
fylgja eftir kröfum al-
mennings og atvinnu-
lífs.
Vestfjarðavegur, Gufudalssveit
Áformað var að fara í útboð fyrsta
verkþáttar Vestfjarðavegar um
Gufudalssveit síðastliðið haust, en af-
staða skipulagsyfirvalda kom í veg
fyrir að svo yrði.
Stefnt var að því að sl. haust yrði
sköpuð aðstaða fyrir verktaka, gert
skarð í gegnum Teigsskóg og keyrt
fyllingarefni út í firðina. Frekari fjár-
mögnun yrði kunngjörð í samgöngu-
áætlun á Alþingi í byrjun þessa árs.
Öllum sem til þekkja er ljóst að nýr
vegur um Gufudalssveit þolir enga
bið. Þessi framkvæmd hefur verið
lengi á dagskrá en málið tafist vegna
dómsmála og afstöðu Skipulagsstofn-
unar. Nú er beðið niðurstöðu sveitar-
félagsins varðandi skipulagsmál, en
hennar er að vænta í febrúar.
Þessi vegur er síðasti áfanginn í að
tengja með bundnu slitlagi byggð-
irnar á sunnanverðum Vestfjörðum
en nú mega íbúar og aðrir þeir sem
þarna eiga leið um aka um gamlan
malarveg, m.a. yfir Hjallaháls og
Ódrjúgsháls sem er hættulegur allri
umferð og sérstaklega að vetrarlagi.
Ótalmörg dæmi eru um að stórvirkar
vinnuvélar hafi þurft til að drösla
flutningabílum yfir helstu farartálma
á þessari leið.
Í þessu samhengi er vert að minn-
ast á háa ferðatíðni flutningabíla sem
flytja afurðir Arnarlax af svæðinu, en
grundvallaratriði fyrir fyrirtæki sem
flytja út ferska vöru er að geta treyst
á greiðar samgöngur, hvort sem er á
landi, með flugi eða á sjó.
Endanlegur kostnaður vegna
nauðsynlegra vegabóta í Gufudals-
sveit er ekki ljós, en þegar ég síðast
spurði var verðmiðinn á
ódýrasta kostinum um
7 milljarðar króna. Þá
var ekki verið að tala
um jarðgöng í gegnum
fjöll eins og einhverjir
krefjast, enda myndu
slíkar framkvæmdir
hleypa kostnaði upp um
milljarða króna, ásamt
því að tefja verkið enn
frekar – og eru nú taf-
irnar orðnar ærnar
samt. Milljarður til eða
frá skiptir okkur gríð-
arlega miklu máli. Milljarður er t.a.m.
þumalfingursreglan við kostnað á
byggingu einna mislægra gatnamóta,
svo að dæmi sé nefnt.
Dýrafjarðargöng,
Dynjandisheiði
Það er vel að hafnar eru fram-
kvæmdir við Dýrafjarðargöng. Ljóst
er að þessi jarðgöng munu skipta
sköpum fyrir Vestfirði, en það er
einnig jafn ljóst að ef ekki fylgir nýr
vegur um Dynjandisheiði, þá er til lít-
ils unnið. Fram hefur komið að kostn-
aður við Dýrafjarðargöng er áætl-
aður um 13 milljarðar króna, en þá er
Dynjandisheiðin eftir sem er óhjá-
kvæmileg framkvæmd ef Dýrafjarð-
argöng eiga að nýtast sem skyldi.
Áætlaður kostnaður við Dynjand-
isheiði er 4,5 milljarðar króna. Kostn-
aður við nauðsynlegar vegabætur á
sunnanverðum Vestfjörðum, þ.e.
Dýrafjarðargöng, Dynjandisheiði og
Gufudalssveit, slagar þannig upp í 30
milljarða.
Á norðanverðum Vestfjörðum er
líka verk að vinna. Þar bíða fram-
kvæmdir við Djúpveg og veginn á
Ströndum um Veiðileysuháls, en
áætlaður kostnaður við þær fram-
kvæmdir er talinn munu nema vel á
annan milljarð króna.
Það blasir við að enginn einn lands-
hluti er í jafn brýnni þörf fyrir bráða-
aðgerðir í vegamálum og Vestfirðir.
Það er að vonum að íbúar þessa
landshluta séu orðnir óþreyjufullir og
kalli eftir aðgerðum.
Vesturland
En það er víðar en á sunnanverðum
Vestfjörðum sem skórinn kreppir.
Handan Breiðafjarðar blasir Skógar-
ströndin við og lengi hefur verið beðið
eftir endurbótum á Skógarstrandar-
vegi. Um er að ræða um 70 km langan
vegarkafla frá Dölum í Stykkishólm,
en þarna er boðið upp á þröngan og
stundum illfæran malarveg og á þess-
ari leið eru fjölmargar hættulegar
beygjur og einbreiðar brýr.
Litlum fjármunum hefur verið var-
ið til endurbóta á þessum vegarkafla,
þótt ærin ástæða sé til. Verkefnið sem
við blasir er enda mikið og mun
kostnaður við endurgerð vegarins
með bundnu slitlagi vera áætlaður um
6 milljarðar króna, en fullnaðar-
hönnun vegarins er ekki lokið.
Annar vegarkafli á Snæfellsnesi
hefur beðið allt of lengi, en fyrir ligg-
ur margítrekað loforð stjórnvalda um
lúkningu vegarins yfir Fróðárheiði,
en kostnaður vegna hans er talinn
vera um 400 milljónir króna. Líkur
eru þó á að þetta verk verði klárað á
þessu ári.
Borgfirðingar hafa lengi kallað eft-
ir vegabótum, enda eru langir kaflar
malarvega í héraðinu. Vegurinn um
Uxahryggi hefur fengið nokkra fjár-
veitingu sem mjög hefur verið kallað
eftir, m.a. af ferðaþjónustunni, en bet-
ur má ef duga skal. Þannig gerir laus-
leg áætlun um að tengja saman Suð-
urland og Vesturland með
ferðamannavegi frá Borgarfjarð-
arbraut um Uxahryggjaveg og
Kaldadalsveg að Þingvallavegi við
þjónustumiðstöð á Þingvöllum ráð
fyrir því að kostnaður við fram-
kvæmdina nemi 2,2 milljörðum króna
umfram það sem þegar hefur verið
ákveðið að verja til verkefnisins. Þá
er ótalinn kostnaður við lagningu
bundins slitlags á langa vegarkafla í
Borgarfirði, auk breikkunar á helstu
leiðum.
Vesturlandsvegur
Umferð um Vesturlandsveg hefur
stóraukist undanfarin misseri og á
vaxandi fjöldi ferðamanna þar stóran
þátt, en einnig og ekki síður má rekja
vaxandi umferð til þess að fólk búsett
á Akranesi og í Borgarnesi sækir
vinnu á höfuðborgarsvæðið. Umferð
um Hvalfjarðargöngin nálgast einnig
þolmörk út frá öryggissjónarmiðum.
Brýnt er að ráðast án tafar í end-
urbætur á Vesturlandsvegi. Áætlað
er að kostnaður við tvöföldun veg-
arins á Kjalarnesi að Hvalfjarðar-
göngum ásamt tvöföldun einbreiðs
vegarkafla í Mosfellsbæ sé nálægt 4
milljörðum króna. Það er öllum ljóst
að umferðaröryggi Vesturlandsvegar
er stórlega ábótavant enda bera um-
ferðarslys að undanförnu þess óræk-
an vott.
Upptalningin í þessari grein er alls
ekki tæmandi en eins og sjá má er
verkefnið risavaxið. Lauslega áætlað
þarf að ráðast í verkefni á þessu
svæði sem kosta munu háar fjárhæðir
og er stærðargráðan í námunda við
fimmtíu milljarða króna. Það er engin
þolinmæði hjá almenningi, hvorki á
þessu svæði né annars staðar, til að
bíða í áratugi eftir þessum fram-
kvæmdum. Lélegar samgöngur hafa
enda mjög hamlandi áhrif á alla upp-
byggingu atvinnulífs á svæðinu.
Eftir Jón
Gunnarsson »Það er engin þol-
inmæði hjá almenn-
ingi, hvorki á þessu
svæði né annars staðar,
til að bíða í áratugi eftir
þessum framkvæmdum.
Jón Gunnarsson
Höfundur er alþingismaður og
fyrrverandi samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra.
Ákall um aðgerðir –
Vesturland og Vestfirðir
Ósköp á gamall maður erfitt með
að skilja þá ákvörðun borgar-
stjórnar Reykjavíkur að hafna
beiðni Hjálpræðishersins um til-
hliðran í lóðarúthlutun á sömu for-
sendum og áður hefur gilt um við-
líka stofnanir. Einhvern veginn
finnst mér að Hjálpræðisherinn
eigi annað og betra skilið. Fram
skal tekið að hér koma trúarskoð-
anir ekkert við sögu. En fórnfýsi
og gjafmildi Hjálpræðishersins við
þá sem minna mega sín allt frá
fyrstu tíð og fram á þennan dag
hefur verið slík að nokkur umbun
hefði verið sjálfsögð fyrir þau
mörgu kærleiksverk. Um þetta
gildir máske gamla orðtakið að
mönnum eru mislagðar hendur,
Helgi Seljan.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Eru mönnum
mislagðar hendur?
Í vor er lag að losa
Reykjavík við öfgafulla
vinstri meirihlutann
sem setið hefur allt of
lengi. Mikil óstjórn er í
málefnum borgar-
innar. Húsnæðis-
skortur og hátt verðlag
á húsnæði er afleiðing
öfgafullrar stefnu um
þéttingu byggðar sem
leitt hefur til mestu
dreifingar byggðar til
nágranna-sveitarfélaganna sem um
getur. Fjármál borgarinnar eru í
óreiðu með mikilli skuldasöfnun og
það í góðærinu. Samgöngur í borg-
inni eru í miklum ólestri vegna einka-
bílahatursins. Neyðarbraut flugvall-
arins hefur verið lokað af
meirihlutanum sem sífellt þrengir að
starfsemi flugvallarins. Börn eru
send heim úr leikskólum vegna
óstjórnar.
Á meðan allt brennur, fær meiri-
hlutinn útrás fyrir gyðingahatur sitt,
með banni á innflutningi á vörum
framleiddum í Ísrael.
Nú breytum við um stefnu í vor.
Til þess þurfum við for-
ystumann sem við getum
treyst.
Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi, er ótví-
ræður forystumaður
sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Hann þekkir
borgina betur en nokkur
annar, hann sér í gegn-
um lygavef vinstrimanna
og hann hefur aldrei
klikkað í neinu máli.
Hann styður flugvöllinn í
Vatnsmýrinni, vill fella
niður lóðagjöld til Hjálpræðishersins
og er á móti borgarlínunni, sem hann
kallar villuljós Dags og félaga. Hann
er gegnheill og heiðarlegur maður.
Við styðjum hann til forystu í borg-
inni í prófkjörinu 27.1.18.
Kjartan í forystu
Eftir Auðun Svavar
Sigurðsson
Auðun Svavar
Sigurðsson
»Kjartan Magnússon
þekkir borgina betur
en nokkur annar, sér í
gegnum lygavefi og hefur
aldrei klikkað í neinu máli.
Höfundur er skurðlæknir.