Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 63
sóknasetur um smáríki innan vé-
banda hennar árið 2002. Hann var
formaður stjórnar þessara stofnana
2002-2011, stofnaði Sumarskóla
Rannsóknaseturs um smáríki sem
hefur starfað frá árinu 2003, en yfir
500 erlendir nemendur, auk ís-
lenskra stúdenta, hafa sótt skólann.
Hann er rannsóknastjóri Rann-
sóknaseturs um smáríki frá 2013.
Baldur hefur verið gestaprófess-
or við fjölda erlendra háskóla eins
og William College í Massachusetts
og Háskólann í Washington í
Seattle í Bandaríkjunum, Queen
Mary Háskólann í London, Science
Po í París, og í Tallinn, Vilnius og
Bergen.
Baldur hefur setið í stjórn Fé-
lagsstofnunar stúdenta frá 2008, var
formaður stjórnar Mannréttinda-
skrifstofu Íslands 2002-2004, for-
maður jafnréttisnefndar HÍ 2001-
2004, formaður stjórnar Nýsköp-
unarsjóðs námsmanna 1996-2002,
ritstjóri héraðsblaðsins Suðurlands
1990 og Háskólans/stúdentafrétta
1991-92, varaformaður Vöku - félags
lýðræðissinnaðra stúdenta 1991-92,
ritstjóri Vökublaðsins 1990-91, vara-
þingmaður Samfylkingar 2009-2013,
einn af stofnendum Félags samkyn-
hneigðra stúdenta við HÍ árið 1999
og hefur tekið virkan þátt í mann-
réttindabaráttu samkynhneigðra.
Helstu áhugamál Baldurs eru
framandi menningarheimar, ferða-
lög, crossfit, stjórnmál, sagnfræði,
spil og borðspil: „Við Felix erum
nýkomnir úr ferðalagi til Víetnam,
Laos og Taílands, sem er þriðja ferð
okkar til Indókína á jafnmörgum
árum. Þetta er heillandi heimshluti
og við stefnum á fleiri ferðir þang-
að, t.d. til Malasíu og Myanmar.“
Fjölskylda
Maður Baldurs: Felix Bergsson,
f. 1.1. 1967, leikari. Foreldrar hans
eru Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, f.
8.2. 1942, hjúkrunarfræðingur, og
Bergur Felixson, f. 14.10. 1937.,
framkvæmdastjóri, búsett í Reykja-
vík.
Börn Baldurs og Felix eru 1)
Álfrún Perla Baldursdóttir, f.
30.1.1992, stjórnmálafræðingur í
Reykjavík en maður hennar er Árni
Freyr Magnússon sagnfræðinemi,
og 2) Guðmundur Felixson, f. 6.4.
1990, sviðslistamaður í Reykjavík
en kona hans er Þuríður Blær Jó-
hannsdóttir leikari.
Systkini Baldurs eru Ólöf Þór-
hallsdóttir, f. 23.5. 1975, lyfjafræð-
ingur í Reykjavík, og Bjarki Þór-
hallsson, f. 3.2. 1977, búsettur í
Hafnarfirði.
Foreldrar Baldurs: Hjónin Þor-
björg Hansdóttir, f. 8.2. 1939, d.
15.10. 2013, kaupmaður á Ægissíðu í
Rangárvallasýslu og Þórhallur Æg-
ir Þorgilsson, f. 13.9. 1939, raf-
virkjameistari á Ægissíðu
Baldur
Þórhallsson
Ólöf Árnadóttir
húsfr. á Þverlæk
Guðmundur Jónsson
b. á Þverlæk í Holtum, af Víkingslækjarætt
Ólöf Guðmundsdóttir
húsfr. á Selfossi (2)
Hans Jörgen Ólafsson
bifreiðarstj. og verkam. á Selfossi (3)
Þorbjörg Hansdóttir
kaupm. á Ægissíðu
Þorbjörg Sigurðardóttir
húsfr. á Eyrarbakka og Selfossi
Ólafur Sigurðsson
söðlasm. á Eyrarbakka og Selfossi
Sævar Jónsson húsasmið-
ur á Snjallsteinshöfða
Jón Þorgilsson oddviti og
síðar sveitarstjóri á Hellu
Ingvar Helgason
forstj. í Rvík
Guðrún P. Helga-
dóttir skólastj.
Kvennaskólans
Sigurður Óli Ólafs-
son kaupm. oddviti
og alþm. á Selfossi
Svanhildur Sig-
urðardóttir húsfr. á
Eyrarbakka og í Rvík
Júlía Jóns-
dóttir húsfr. á
Skeggjastöðum
Jón Guðmunds-
son b. á Hlíðar-
enda í Ölfusi
Eiður Guðnason alþm.,
ráðherra og sendiherra
Þorgils Torfi Jónsson
oddviti í Rangárþingi ytra
Helgi Ingvars-
son yfirlæknir
á Vífilsstöðum
Helgi Jónsson læknir
Hrefna Þorbjörg
Hákonardóttir
Evrópumeistari
í fimleikum
Pétur
Sigurgeirsson
biskup Íslands
Ólafur Oddsson ís-
lenskukennari við MR
Margrét Jónsdóttir
húsfr. í Efra-Seli
við Stokkseyri
Dr. Pétur
Pétursson pró-
fessor við HÍ
Valgerður Jónsdóttir
húsfr. á Rauðsgili í
Hálsasveit í Borgarfirði
Jón Helgason skáld og pró-
fessor við Hafnarháskóla
Júlíus Vífill Ingv-
arsson fyrrv. forstj.
og borgarráðsm.
Þorbjörg Sigurðardóttir, hjá Höfn á Selfossi
Sigríður Ragna Sigurðar-
dóttir kennari og fyrrv.
dagskrárfullr. barnaefnis
RÚV – Sjónvarps
Sigurgeir
Sigurðsson
biskup Íslands
Sigríður
Þórðardóttir
húsfr. í Rvík
Þórður
Einarsson
sendiherra
Guðni Guðmunds-
son, verkam. í Rvík
Sveinsína Ásdís Sveinsdóttir
húsfr. í Vestur-Hún.
Filippus Vigfússon
verkam. í Rangárv.s.
og Vestur-Hún.
Kristín Filippusdóttir
b. og húsfr. á Ægissíðu
Þorgils Jónsson b. og
kennari á Ægissíðu
Guðrún Pálsdóttir,
húsfr. á Ægissíðu
Jón Guðmundsson
b. og fræðim. á Ægissíðu, frá
Keldum af Víkingslækjarætt
Úr frændgarði Baldurs Þórhallssonar
Þórhallur Ægir Þorgilsson
rafvirkjam. á Ægissíðu á Rangárvöllum (1)
ÍSLENDINGAR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
100 ára
Ásta J. Guðmundsdóttir
95 ára
Margrethe Kristinsson
90 ára
Ragna G. Pálsdóttir
85 ára
Ásta E. Kolbeins
Sigríður Guðjónsdóttir
80 ára
Lára Angantýsdóttir
Sesselja M. Kjærnested
Þorgerður Guðmundsdóttir
75 ára
Garðar Svavarsson
Gunnvör Valdimarsdóttir
Pálína I. Tómasdóttir
Sigríður O. Erlendsdóttir
Sigurður L. Kristinsson
70 ára
Allan Rettedal
Danuta Jozefik
Guðrún S. Brynjólfsdóttir
Hermann Hermannsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhann Brynjar Júlíusson
Sigríður Kristín Einarsdóttir
Sveinn S. Pétursson
60 ára
Auður E. Guðmundsdóttir
Björn Ragnarsson
Einar Ingvi Magnússon
Guðrún H. Hjálmarsdóttir
Guðrún I. Halldórsdóttir
Heimir Lárus Hjartarson
Hugrún Elfa Bjarnadóttir
Ingibjörg A. Magnúsdóttir
Jón Halldór Oddsson
Jón Heiðar Guðmundsson
Jónína Sólveig Jónsdóttir
Pálmar Breiðfjörð
Sigurbjörg Eðvarðsdóttir
Sigurður Sigurðarson
Sverrir Salberg Magnússon
Wieslawa Gainska
Þórunn Rafnar
50 ára
Anna Guðmundsdóttir
Ásgerður Hrönn Karlsdóttir
Baldur Þórhallsson
Bergsveinn Bergsveinsson
Bryndís Snæbjörnsdóttir
Dagbjört Jónsdóttir
Helga Ólafsdóttir
Ingvi Þór Björnsson
Jacek Zurawski
Júlíus Guðmundsson
Kolbrún S. Briem Ólafsd.
Nelia Bearneza Baldelovar
Ragnar Halldórsson
Ragnheiður S. Eyjólfsdóttir
Sigurður A. Þórarinsson
Stefán Ingi Guðjónsson
Stefán Stefánsson
Thorben Jósef Lund
Winai Puttharat
40 ára
Fjóla Einarsdóttir
Fríða Björk Sandholt
Hafliði Hörður Hafliðason
Heimir Hafliðason
Helga Sigríður Davíðsdóttir
Ian Richard Payne
Ingimar Valur Einarsson
Jóhann Pálsson
Kristbjörg Ólafsdóttir
Snæbjörn Ragnarsson
Svandís Þorvaldsdóttir
30 ára
Aivis Auzins
Anna Hafþórsdóttir
Davíð Örn Valdimarsson
Hildur Sigurðardóttir
Samúel Sigurðsson
Til hamingju með daginn
30 ára Stella ólst upp í
Hafnarfirði, býr í Kópa-
vogi, lauk prófi í hár-
greiðslu og starfar á
Marmik í Breiðholti.
Maki: Sindri Þór Krist-
jánsson, f. 1989, trygg-
ingasölumaður.
Sonur: Alexander Þór, f.
2008.
Móðir: Sjöfn Jónsdóttir, f.
1959, klifur- og fimleika-
þjálfari og höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðhöndlari
í Hafnarfirði.
Stella Rut
Jensdóttir
30 ára Gestur ólst upp í
Ohio og Kópavogi, býr
þar, lauk Mag.jur.-prófi í
lögfræði frá HÍ og LLM-
prófi frá Suður-
Kaliforníuháskóla og er
lögmaður hjá Draupni -
Lögmannsþjónustu.
Systkini: Þórir, f. 1985;
Ingunn, f. 1990, og Jón, f.
2001.
Foreldrar: Gunnar Jóns-
son, f. 1960, lögmaður, og
Kristín Þórisdóttir, f. 1961,
húðlæknir.
Gestur
Gunnarsson
30 ára Dóra Sif ólst upp í
Reykjavík, býr í Kópavogi,
lauk B.Ed.-prófi frá HÍ og
rekur barnafataverslunina
Bíum bíum í Síðumúla.
Maki: Bjarni Þór Við-
arsson, f. 1988, knatt-
spyrnumaður í FH.
Dætur: Sonja Sif, f. 2012,
og Sara Sif, f. 2017.
Móðir: Drífa Hilmars-
dóttir, f. 1957, kaupkona í
Kópavogi sem starfrækir
barnafataverslunina með
Dóru Sif.
Dóra Sif
Ingadóttir
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
ÚTSALA
30-60% afsl.
af öllum
útsöluvörum
Sergei Vlasov hefur lokiðdoktorsritgerð sinni í efnafræðivið Háskóla Íslands og ITMO-
háskólann í Sankti Pétursborg í Rúss-
landi. Ritgerðin nefnist Skammta-
fræðilegt smug milli segulástanda.
Andmælendur voru dr. Dmitrii E.
Makarov, prófessor við Texas-háskóla í
Austin, Bandaríkjunum, og dr. Oleg A.
Tretiakov, aðstoðarprófessor við To-
hoku-háskólann, Japan.
Leiðbeinendur voru Hannes Jóns-
son, prófessor við Raunvísindadeild
Háskóla Íslands, og Valery M. Uzdin,
prófessor í eðlisfræði við ITMO-
háskóla í St. Pétursborg. Viðar Guð-
mundsson, prófessor við Raunvís-
indadeild Háskóla Íslands, var einnig í
doktorsnefndinni.
Segulástönd eru notuð til að skrá
og geyma upplýsingar. Eftir því sem
stærð seguleininganna er minnkuð til
að auka geymslu-
getuna, verður
mikilvægara að
gæta að líftíma
segulástandanna.
Í ritgerðinni er
greint frá kenni-
legum rann-
sóknum á þeim
möguleika að um-
breyting úr einu segulástandi í annað
gerist með skammtafræðilegu smugi
og almenn líking er leidd út til að meta
við hvaða hitastig smug verður ráð-
andi hvarfgangur. Aðferð til að finna
líklegustu smugferla, þ.e. svokallaðar
snareindir, er þróuð og notuð til að
meta virkjunarorku fyrir varmafræði-
lega eflt smug sem fall af hitastigi. Að-
ferðunum er beitt á ýmis segulkerfi,
svo sem sameindasegla og skyrmeind-
ir í þunnum segulhúðum.
Sergei Vlasov
Sergei Vlasov fæddist árið 1990 í St. Pétursborg í Rússlandi. Hann lauk MS-
prófi í hagnýtri stærðfræði við ITMO-háskólann í Sankti-Pétursborg árið 2013.
Hann hóf haustið 2014 sameiginlegt doktorsnám við Háskóla Íslands og við
ITMO-háskólann. Áhugamál hans eru skammtafræði, heimspeki og klettaklifur.
Doktor
Atvinna