Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Barátta upp á líf og dauða, klúð-
ursleg brúðkaupsveisla í franskri
höll og ballettverk í mótun eru með-
al þess sem er í boði á Franskri kvik-
myndahátíð að þessu sinni en hátíðin
hefst á morgun, 26. janúar og stend-
ur yfir í tíu daga. Sýndar verða tíu
kvikmyndir og þar af ein kanadísk á
þessari fyrstu kvikmyndahátíð árs-
ins. Hátíðin í ár
er sú 18. í röðinni
og stendur yfir til
4. febrúar í
Reykjavík og á
Akureyri verða
valdar myndir
sýndar 28. janúar
til 3. febrúar.
Opnunarmynd
hátíðarinnar
nefnist Le Sens
de la fête, eða
Svona er lífið, og er eftir sömu hand-
ritshöfunda og leikstjóra og gerðu
hina feikivinsælu Intouchables sem
sýnd var á hátíðinni árið 2012.
Julie Coadou, menningarfulltrúi
hjá franska sendiráðinu á Íslandi, er
ein þeirra sem komu að skipulagn-
ingu hátíðarinnar í ár. Hún segir að
markmið hátíðarinnar sé sem fyrr
fjölbreytni, að bjóða upp á ólíkar
kvikmyndir og í það minnsta eina
fyrir börn en í ár er það teiknimynd-
in Tout en haut du monde, eða Hátt
á heimi. Coadou segir gaman frá því
að segja að um íslenska þýðingu á
myndinni sáu frönskunemar við Há-
skóla Íslands. „Það er skemmtileg
samvinna í gangi þar, milli hátíðar-
innar og háskólans,“ segir hún.
Íd á ballettsýningu
Tvær mynda hátíðarinnar fjalla
um ballett, annars vegar heimild-
armyndin Reléve og hins vegar kvik-
myndin Polina. Þær verða sýndar
saman á sérstöku ballettkvöldi 31.
janúar og segir Coadou að báðar
myndirnar hafi hlotið mikið lof.
Erna Ómarsdóttir, listrænn stjórn-
andi Íslenska dansflokksins og dans-
arar úr flokknum munu milli sýn-
inga leiða gesti inn í heillandi heim
ballettsins.
Blaðamaður ákveður að slá aðeins
um sig með því litla sem hann kann í
frönsku og spyr hvort myndirnar á
hátíðinni séu „la créme de la créme“
franskrar kvikmyndagerðar á síð-
ustu misserum. „Já, já, já, já, við
vorum að prófa að velja svolítið góða
blöndu ólíkra kvikmynda til að hafa
eitthvað fyrir alla,“ svarar Coadou á
prýðilegri íslensku og bendir á nýj-
ustu kvikmynd hins margverðlaun-
aða leikstjóra Michael Haneke,
Happy End. „Hún er mjög sérstök,
fjallar um franska fjölskyldu góð-
borgara og er mjög áhugavert port-
rett,“ segir Coadou kímin og greini-
legt að ekki má segja meira um þá
ágætu kvikmynd svo áhorfendur
verði ekki sviptir ánægjunni af því
að láta koma sér á óvart.
„Meistaraverk“
Coadou bendir einnig á að á
mánudaginn, 29. janúar, eftir frum-
sýningu á kvikmyndinni Réparer les
vivants, eða Lífs eða liðinn eins og
hún heitir á íslensku, verði pallborð.
Þar munu skiptast á skoðunum
Kjartan Birgisson hjartaþegi, Run-
ólfur Pálsson læknir, Silja Dögg
Gunnarsdóttir þingmaður, Steinunn
Rósa Einarsdóttir, móðir líffæra-
gjafa og Vilhjálmur Árnason heim-
spekingur. Munu þau einnig taka við
spurningum úr sal og allur ágóði af
miðasölu á sýninguna rennur til
Annars lífs – áhugafélags um líf-
færagjafir.
Coadou segir Lífs eða liðinn
meistaraverk og að upphaf mynd-
arinnar sé einstaklega áhrifaríkt.
„Það má enginn missa af því að sjá
það á breiðtjaldi,“ segir hún en í
myndinni segir af ungum manni sem
er heiladauður eftir bílslys. For-
eldrar hans taka þá erfiðu ákvörðn
að gefa úr honum hjartað til að
bjarga lífi dauðvona konu.
Frekari upplýsingar um hátíðina
má finna á smarabio.is/fff.
Góðborgarar Úr Happy End, nýjustu kvikmynd hins virta og margverðlaunaða leikstjóra Michael Haneke.
Dansað, hlegið og grátið
Julie
Coadou
Frönsk kvikmyndahátíð haldin í átjánda sinn Ballett-
kvöld og pallborðsumræður um líffæragjafir meðal viðburða Reléve/Endurfæðingin
Heimildarmynd eftir Thierry
Demaizière og Alban Teurlai sem
fjallar um Benjamin Millepied
sem var skipaður dansstjórnandi
Þjóðaróperunnar í París árið
2014 og umbylti öllum formerkj-
um í klassískum dansi, bæði með
verkefnavali og vinnuaðferðum
balletthóps óperunnar, eins og
því er lýst á vef hátíðarinnar. Í
myndinni er fjallað um sköp-
unarferli nýs balletts Millepieds,
Clear, Loud, Bright, Forward.
Polina
Dramatísk kvikmynd í leik-
stjórn Valérie Müller og Angelin
Preljocaj. Polina er efnileg ball-
ettdansmær sem hefur alla tíð
lotið ströngum aga og kröfu-
hörku danskennarans síns. Henni
er að opnast aðgangur að Bols-
hoj-ballettinum heimsfræga en
sér þá sýningu á nútímadansi og
ákveður að leggja allt annað á
hilluna til að starfa með Liriu
Elsaj, snjöllum danshöfundi, og
reyna að finna sína eigin rödd.
Réparer les vivants/
Lífs eða liðinn
Dramatísk kvikmynd eftir leik-
stjórann Katell Quillévéré. Hand-
rit myndarinnar er skrifað eftir
bók Maylis de Kerangal en í
henni er fjallað um mikilvægi
líffæragjafa.
Tout en haut du monde/
Hæst á heimi
Teiknimynd í leikstjórn Rémi
Chayé. Hún fjallar um Sacha,
stúlku af rússneskum aðalsætt-
um sem hefur lengi verið hug-
fangin af lífi afa síns, ævintýra-
mannsins Oloukines sem var
frægur landkönnuður. Hann
smíðaði sér stórkostlegt skip,
Davaï, en sneri aldrei aftur úr
síðasta leiðangri sínum til norð-
urskautsins. Sacha heldur á
slóðir afa síns í leit að hinu
fræga skipi.
Iqaluit
Kanadísk dramamynd í leik-
stjórn Benoit Pilon. Í myndinni
segir af Carmen sem er gift Gil-
les, verkstjóra sem starfar á
norðurhjara. Gilles slasast alvar-
lega og heldur Carmen til bæj-
arins Iqaluit til að komast að því
hvað hafi gerst. Þar kynnist hún
vini Gilles, inúítanum Nóa, og
þau sigla saman út á Frob-
isherflóa. Þar leitar Carmen
svara en Nói reynir að bjarga lífi
sonar síns.
Les chevaliers blancs/
Hvítu riddararnir
Jacques Arnault, forseti sam-
takanna „Move for kids“, telur
franskar fjölskyldur, sem vilja
ættleiða börn, á að kosta aðgerð
til að lauma til landsins mun-
aðarlausum börnum frá stríðs-
hrjáðu Afríkulandi. Honum til að-
stoðar er hópur sjálfboðaliða
sem trúa á verkefnið og hafa
þeir einn mánuð til að finna 300
börn og flytja til Frakklands.
Dramatísk kvikmynd eftir leik-
stjórann Joachim Lafosse.
Happy End
Nýjasta kvikmynd Michael Ha-
neke. „Veröldin er allt í kring og
við í miðjunni, og sjáum ekkert.
Skyndimynd af fjölskyldu evr-
ópskra góðborgara, nokkrum
kynslóðum með ýmiss konar per-
sónuleikaraskanir en umhverfis
hana iðar samfélagið í Calais og
ekki síst erlendu flóttamennirnir
og vandamálin tengd auknu
streymi þeirra til Evrópu,“ segir
um myndina á vef hátíðarinnar.
Le sens de la fête/
Svona er lífið
Gamanmynd í leikstjórn Eric
Toledano, Judith Chemla og Oli-
vier Nakache. Myndin segir af
Max Angély sem býr að langri
reynslu í skipulagningu á hvers
kyns veislum. Hann tekur að sér
skipulag brúðkaupsveislu á 17.
aldar óðalssetri og skal ekkert til
sparað. Fljótlega fer allt úr bönd-
unum, eins og við mátti búast.
Victoria
Gamanmynd eftir leikstjórann
Justine Triet um Viktoríu sem er
lögræðingur og fráskilin tveggja
barna móðir. Henni er boðið í
brúðkaup þar sem hún hittir vin
sinn Vincent og Sam sem er
fyrrverandi dópsali og skjólstæð-
ingur hennar. Degi síðar sakar
kærasta Vincent Viktoríu um
morðtilræði og eina vitnið reyn-
ist vera hundurinn hennar.
Dans la forêt/Myrkviði
Spennumynd eftir leikstjórann
Gilles Marchand. Bræðurnir Tom
og Benjamín halda til Svíþjóðar
að hitta föður sinn sem þeir hafa
átt lítil samskipti við frá því
hann skildi við móður þeirra.
Faðirinn er sannfærður um að
Tom sé skyggn og leggur til að
þeir haldi norður og gisti í kofa
úti í skógi. Svo líða dagarnir en
faðirinn er ekki á því að snúa
aftur heim.
Níu franskar, ein kanadísk
KVIKMYNDIRNAR Á FRANSKRI KVIKMYNDAHÁTÍÐ 2018
Opnunarmyndin Úr Le sens de la fête eða Svona er ĺífið.
Dans Úr Endurfæðingunni.
Sorg Úr Lífs eða liðinn.
Ævintýri Úr Hæst á heimi.