Morgunblaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 76
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 25. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Nafn mannsins sem lést á …
2. Tómas Tómasson er látinn
3. Lömuð eftir fall í Malaga
4. Réðust á 18 ára fanga á Litla-Hrauni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrstu hádegistónleikar ársins, í
tónleikaröðinni Á ljúfum nótum,
verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykja-
vík í dag kl. 12. Á þeim koma fram
hinar ægifögru nornir sem fylgja árs-
tíðunum, eins og segir á vef kirkj-
unnar. Hafa þær nú brugðið sér í
þorranornagervi og flytja af miklum
krafti fjölbreytta dagskrá byggða að
miklu leyti á íslensku þjóðlögunum
og öðru þorragóðgæti. Nornirnar eru
Arnhildur Valgarðsdóttir, Berta Dröfn
Ómarsdóttir, Elsa Waage, Íris Sveins-
dóttir og Svava Kristín Ingólfsdóttir.
Nornir í Fríkirkjunni
Tónskáldin og
tónlistarkonurnar
Björk Níelsdóttir
og Kaja Draskler
halda tónleika í
Hannesarholti í
kvöld kl. 20. Þær
munu leiða áheyr-
endur í tónlist-
arlegt ferðalag
þar sem landamæri klassískrar tón-
listar, djass og spuna verða könnuð í
frumflutningi á nýjum tónverkum eft-
ir þær sjálfar.
Landamæri könnuð
með frumflutningi
Leikarinn Kári Viðarsson flytur
tónleikauppistand sitt Frjáls fram-
lög í kvöld og annað kvöld kl.
20.30 í Tjarnarbíói og lýsir því sem
sprenghlægilegri, grátbroslegri og
afkáralegri gleðistund. Markmið
sýningarinnar sé að miðla tvö-
földum regnboga til-
finninga þar sem sviti
hins sveltandi lista-
manns endurspegli
allt litrófið sem
finna megi á hinu
vafa- og vara-
sama vegasalti
veruleikans.
Á vafasömu vegasalti
Á föstudag Suðaustan og austan 8-15 m/s og dálítil snjókoma um
landið sunnan- og vestanvert í fyrstu, en síðan slydda eða rigning.
Skýjað og þurrt norðan- og norðaustantil. Frost 0 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s, en
norðan 8-13 austast fram eftir degi. Stöku él um landið norðaust-
anvert, annars víða léttskýjað. Kólnandi veður.
VEÐUR
Ísland mætir tveimur af
átta bestu liðum heims,
Belgíu og Sviss, í A-deild
Þjóðadeildar UEFA í knatt-
spyrnu karla í haust. Vinni
Ísland sinn riðil kemst lið-
ið í fjögurra liða loka-
keppni Þjóðadeildarinnar
en lendi liðið í neðsta sæti
fellur það niður í B-deild.
Ítarlega er fjallað um
Þjóðadeildina og þýðingu
hennar í íþróttablaðinu í
dag. »4
Tvö af átta bestu
liðum heims
Sigríður Lára Garðarsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, hefur greinst
með liðagigt. Þessi 23 ára gamla
Eyjakona er byrjuð í lyfjameðferð
sem ætlunin er að taki 3 vikur, og er
vongóð um að eftir
það muni þessi
sjúkdómur ekki
hafa áhrif á
knattspyrnufer-
ilinn en hún þarf
væntanlega að vera í
reglulegri lyfjagjöf
vegna hans um aldur
og ævi. »1
Landsliðskona í lyfja-
meðferð fyrir lífstíð
Haukar og ÍBV skildu jöfn, 27:27, í Ol-
ísdeild kvenna í handknattleik í Vest-
mannaeyjum í gær. Þar með hefur
Valur tveggja stiga forskot í efsta
sæti deildarinnar en Haukar eru í
öðru sæti. ÍBV er í fjórða sæti með 18
stig. Haukar voru með sex marka for-
skot snemma í síðari hálfleik en töp-
uðu því niður eftir að leikstjórnandi
liðsins fékk rautt spjald. »3
Haukar misstu niður
gott forskot í Eyjum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Senn styttist í að sérstakur, öflugur
fjallabíll verði tekinn í notkun hér-
lendis, en eigendurnir, Friðrik Stef-
án Halldórsson og Guðni Ingimars-
son, hafa unnið við að setja hann
saman frá grunni frá 2012 og þó eink-
um nýliðin fjögur ár. „Við tveir höf-
um unnið í yfir 5.000 tíma við bílinn
og auk þess fengið ómælda aðstoð,“
segir Guðni.
„Þetta er í raun verkfræðilegt und-
ur,“ segir Friðrik og hrósar félaga
sínum og vélaverkfræðingnum fram-
sýnina. „Guðni var með ákveðna hug-
mynd í kollinum og setti niður fyrir
sér verkið í smæstu atriðum, sem síð-
an tók á sig mynd og birtist nú í full-
sköpuðum bíl.“
Síðasti búturinn í innréttinguna
var settur í bílinn fyrir helgi, en fé-
lagarnir hafa farið í reynsluakstur á
fjöllum og eru tilbúnir í slaginn.
„Fæðingin hefur tekið lengri tíma en
við áttum von á en við erum ánægðir
með árangurinn,“ segir Friðrik.
Grind úr gömlum bíl
Félagarnir höfðu keypt sér Uni-
mog-hásingar úr þýskum Dingó-
hertrukk og í kjölfarið ákváðu þeir að
búa til bíl. Þeir keyptu MAN-
mjólkurbíl í Flóanum, árgerð 1991,
og grindin í honum varð grunnurinn
að fjallabílnum. „Við byrjuðum með
tvo grindarbúta, smíðuðum undir
grindina, keyptum okkur Chevrolet
Kodiak C4500, árgerð 2006, ekinn
25.000 mílur, í Bandaríkjunum og
settum ofan í hana, bættum við hluta
úr Chevrolet-sendibíl fyrir aftan og
festum þá saman með þriðja bílnum,“
segir Friðrik.
Friðrik áréttar að ómældar stund-
ir hafi farið í verkið. Þeir hafi haft
góða aðstöðu til að sinna þessu
áhugamáli og átt flest nauðsynleg tól
og tæki. Þegar þeir hafi verið komnir
það langt að ekki hafi verið hægt að
hætta við hafi þeir tvíeflst og spýtt í
lófana. „Við fengum líka góða hjálp
frá vinum, til dæmis vegna verka sem
voru fullstór og of mikil fyrir okkur.“
Í þessu sambandi bendir Guðni á
að þeir hafi víða leitað fanga. Þeir
hafi til dæmis keypt bíl og stóla í
Bandaríkjunum, felgur í Hollandi,
aukarafkerfi í Ástralíu, ljós frá Bret-
landi og hásingar frá Þýskalandi.
Undir bílnum eru átta 54 tomma
dekk, 1,60 m á hæð. Hann tekur 10
farþega auk bílstjóra og er búinn
miklum þægindum. Fjallabíll með
öllu. Ætlunin er að nota hann til þess
að fara með ferðamenn á hálendið.
„Bíllinn er kjörinn til þess,“ segir
Friðrik.
Eini bíllinn sinnar tegundar
Smíðuðu sér-
stakan og öflugan
torfærutrukk
Tilbúinn Friðrik Halldórsson og Guðni Ingimarsson við fjallabílinn, sem er sá eini sinnar tegundar.
Þægindi Bíllinn er rúmgóður og sætin af bestu gerð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
MYfir 5.000 vinnustundir »28