Morgunblaðið - 17.02.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Marga er farið að lengja eftir vorinu eftir veður-
ósköpin undanfarnar vikur. Dagarnir verða
stöðugt bjartari og lengri, eins og sást vel í
höfuðborginni meirihluta dagsins í gær.
Ferfætlingarnir sem ljósmyndari Morgun-
blaðsins festi á mynd í borginni í gær virtust þó
ekkert yfir sig ánægðir með snjóinn sem þakti
mestalla borgina og bíða eflaust spenntir eftir
vorboðanum ljúfa. Þótt vorboðinn ljúfi í kvæði
Jónasar Hallgrímssonar hafi verið þröstur líta
margir á lóuna sem vorboðann en lóan hefur
yfirleitt gert vart við sig hérlendis í lok mars.
Rúmur mánuður í fyrstu lóurnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Menn og dýr hlakka til
vorsins eftir rysjótta tíð
Fleiri og meiri tjón urðu á ökutækjum fyrstu vikur
þessa árs en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýs-
ingum frá tryggingafélögum. Líklega á veðrið og erfið
færð sinn þátt í því.
Hjá Verði tryggingum var tjónatíðni ökutækja tæp-
lega 10% meiri í janúar 2018 en hún var í janúar 2017.
Einnig varð aukning í tjónum í nær öllum flokkum
trygginga og jókst tíðni allra tjóna um 12% á milli ára.
Tíðnin segir þó ekki alla söguna því fjárhæðir tjónanna
hækkuðu einnig á milli ára. Þannig var hvert tjón að
meðaltali tæpum 20% dýrara í janúar 2018 en í sama
mánuði 2017. Þegar ökutækjatjón voru skoðuð sérstak-
lega þá voru þau tæpum 22% meiri í krónum talið nú en
í fyrra.
Síðustu vikur hafa verið þungar í tjónum, samkvæmt
upplýsingum frá VÍS. Í meðalmánuði greiðir VÍS um
það bil einn milljarð króna í tjónabætur til viðskiptavina.
Hjá TM fengust þær upplýsingar að þar fyndu menn
fyrir greinilegum mun á milli ára og hafa orðið fleiri
ökutækjatjón nú en á sama tímabili í fyrra. gudni@mbl.is
Fleiri og dýrari ökutækja-
tjón hafa orðið nú en í fyrra
Slæm tíð og vond færð
á líklega sinn þátt
Ljósmynd/Atli Sturluson
Árekstur Tjónum fjölgar í umferðinni. Átta bílar lentu í
sama árekstrinum í Kópavogi fyrr í þessum mánuði.
Héraðsdómur Reykjaness hefur úr-
skurðað fyrrverandi starfsmann
Barnaverndar Reykjavíkur í fjög-
urra vikna gæsluvarðhald á grund-
velli almannahagsmuna í tengslum
við rannsókn á ætluðum kynferðis-
brotum viðkomandi.
Maðurinn var færður fyrir dóm-
ara í gær en hann hefur setið í
gæsluvarðhaldi frá 19. janúar.
Kæra var lögð fram á hendur
manninum í ágúst á síðasta ári
vegna kynferðisbrota sem hann á
að hafa framið gegn dreng þegar
hann var á aldrinum 8 til 14 ára.
Maðurinn var stuðningsfulltrúi
drengsins.
Fyrrverandi starfs-
maður barnaverndar
áfram í varðhaldi
Ríkisstarfsmenn sem eru í aðildar-
félögum ASÍ fá greidda svokallaða
launaskriðstryggingu, sem gefur að
meðaltali 1,8% hækkun á laun aftur-
virkt frá 1. janúar 2017, um næstu
mánaðamót. Tekur hækkunin til fé-
lagsmanna Rafís, Samiðnar, Félags
vélstjóra og málmiðnaðarmanna,
Starfsgreinasambandsins og félaga í
Flóabandalaginu. Leiðréttingin
kemur til útborgunar á flestum stöð-
um 1. mars. Þetta er gert til að
tryggja að launaskrið á almenna
vinnumarkaðnum nýtist líka starfs-
fólki hjá hinu opinbera.
1,8% launahækkun
ríkisstarfsmanna
„Auðvitað verður að fylgja þeim
reglum sem settar eru. Nú er fyrir
dómstólum mál þar sem tekist er á
um hvort farið sé að þessum reglum.
Ég tel ekki rétt að tjá mig um það
efni fyrr en niðurstaða liggur fyrir
og hvaða skref tekin yrðu í kjöl-
farið,“ sagði Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir, ráðherra neyt-
endamála, þegar Morgunblaðið
leitaði álits hennar á fréttum um að
smálánafyrirtæki virði ekki settar
reglur og stundi ágenga viðskipta-
hætti. Fram kom í blaðinu í gær að
Neytendasamtökin gera kröfu um
að atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið endurskoði starfshætti smá-
lánafyrirtækja og tryggi að þau
starfi lögum samkvæmt. Samtökin
telja að þau úrræði sem stjórnvöld
hafi til að koma í veg fyrir ólöglega
lánastarfsemi dugi skammt.
Ströng sérlög í gildi
„Við erum nú þegar með ströng
sérlög um þessi lán,“ sagði Þórdís
Kolbrún. „Við höfum sett stífari
reglur um hámark á vöxtum og
kostnaði en krafist er af Evrópu-
sambandinu. Þær reglur voru bein-
línis settar vegna starfsemi smá-
lánafyrirtækja. Ef markmið laganna
nær hins vegar ekki fram að ganga
um tilgang og viðurlögin hafa ekki
tilætluð áhrif er rétt að endurskoða
það.“ »28
Endurskoða lögin
nái þau ekki tilgangi
Stífari reglur um smálán en hjá ESB
Andri Steinn Hilmarsson
Höskuldur Daði Magnússon
Sif Konráðsdóttir hefur verið látin
hætta sem aðstoðarmaður umhverfis-
og auðlindaráðherra. Frá þessu
greindi Guðmundur Ingi Guðbrands-
son, umhverfis- og auðlindaráðherra,
í stuttri tilkynningu til fjölmiðla í gær
en þar þakkaði hann henni jafnframt
fyrir samstarfið.
Ástæða uppsagnarinnar var ekki
tilgreind í tilkynningunni en Sif hefur
að undanförnu sætt harðri gagnrýni
fyrir seinagang við greiðslur bóta til
fyrrverandi umbjóðenda sinna þegar
hún starfaði sem réttargæslumaður.
Einn fyrrverandi skjólstæðinga
Sifjar sagði í samtali við Stöð 2 fyrr í
vikunni að hún hefði þurft lögfræði-
aðstoð við að innheimta bætur frá Sif
sem var réttargæslumaður hennar í
kynferðisbrotamáli. Greint var frá
fleiri sambærilegum málum en Sif var
kærð til Lögmannafélagsins árið 2008
fyrir að greiða ekki barnungum
brotaþola kynferðisofbeldis bætur
sem höfðu verið dæmdar í Hæsta-
rétti. Fram hefur komið að ráð-
herrann vissi um þessar ásakanir
þegar hann réð hana sem aðstoðar-
mann sinn.
Biður skjólstæðinga afsökunar
Hvorki náðist í Sif né Guðmund við
vinnslu fréttarinnar en í yfirlýsingu
sem Sif sendi fjölmiðlum vegna
starfsloka sinna bað hún fyrrverandi
skjólstæðinga sína afsökunar á því að
hafa valdið þeim óþarfa áhyggjum
með töfum á uppgjöri.
„Ég lét af lögmannsstörfum haust-
ið 2007 og flutti til útlanda af persónu-
legum ástæðum. Í kjölfarið hóf ég
störf hjá alþjóðastofnun og lagði tíma-
bundið inn lögmannsréttindi mín, svo
sem mér bar að gera. Allmörgum
málum var ólokið þegar ég fór utan,
þar á meðal uppgjöri við þrjá skjól-
stæðinga mína sem höfðu verið brota-
þolar í tveimur kynferðisbrotamálum.
Uppgjör við þá dróst úr hömlu af
ástæðum sem ég ber ábyrgð á,“ segir
Sif í yfirlýsingunni.
„Mér þykir afar leitt að hafa valdið
þessum skjólstæðingum mínum
óþarfa óþægindum og hugarangri
umfram það sem þeir höfðu mátt þola
og bið þá innilega afsökunar á því.
Rétt er að fram komi að fjármunir
voru alla tíð til staðar hér á landi og
allir fengu greitt að fullu, þótt það hafi
dregist óhæfilega, eða þar til í janúar
2008,“ segir í yfirlýsingunni.
Telur ráðherra vanhæfan
Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um
að Sif og eiginmaður hennar hefðu
farið fram á friðlýsingu jarðarinnar
Hóla í Öxnadal, sem er í eigu þeirra,
m.a. til að torvelda lagningu Blöndu-
línu 3 sem á að fara yfir jörðina. Dr.
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræð-
ingur segir Guðmund Inga mögulega
vanhæfan til að staðfesta friðun jarð-
arinnar þar sem hann kann að hafa
sýnt andstöðu sína við lagningu
Blöndulínu á fyrri stigum málsins
sem framkvæmdastjóri Land-
verndar. „Yfirmaður er alltaf hæfur
til að dæma um mál undirmanns
síns,“ segir Haukur og segir það því
engu skipta hvort Sif sé núverandi
eða fyrrverandi aðstoðarmaður Guð-
mundar varðandi hæfi hans í málinu
enda sé hann vanhæfur af öðrum
ástæðum. Tillaga um friðun jarðar-
innar hefur verið send frá Umhverfis-
stofnun til umhverfisráðherra til stað-
festingar. „Landvernd hefur gefið út
gagnrýnið álit vegna loftlínunnar sem
er undirritað af Guðmundi Inga og
draga má í efa hlutleysi hans, hvort
sem hann hefur fjallað beint um málið
í fjölmiðlum eða aðeins í greinargerð-
um Landverndar,“ segir Haukur.
„Fyrri aðkoma Guðmundar Inga að
málinu og þekkt afstaða hans til deil-
unnar um loftlínu frá Blöndu til Akur-
eyrar gerir hann að mínu mati líklega
vanhæfan og ætti hann að víkja og fá
annan ráðherra sem staðgengil til
þess.“
Ráðherra rak aðstoðarmanninn
Umhverfis- og auðlindaráðherra tilkynnir brottrekstur Sifjar Konráðsdóttur, aðstoðarmanns síns
Seinagangur við uppgjör bóta við þolendur kynferðisofbeldis í fyrra starfi sem réttargæslumaður
Sif
Konráðsdóttir
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson