Morgunblaðið - 17.02.2018, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Kaka ársins 2018
Höfundur kökunnar er Sigurður Már konditormeistari í Bernhöftsbakarí
Kakan samanstendur af browniesbotn, súkkulaðikremi með
niðurskornum Þristi, sacherbotn og súkkulaðiganache.
Kakan fæst hjá okkur
Að vinna tvö gull í keppnifimm aldursflokka áNorðurlandamóti ein-staklinga 20 ára og yngri
er alltaf góð niðurstaða. Í Vieru-
maki í Finnlandi um síðustu helgi
tókst Oliver Aron Jóhannessyni og
Hilmi Frey Heimissyni að ná sigri í
sínum aldursflokkum og Jón Krist-
inn Þorgeirsson nældi sér í brons-
verðlaun.
Þessi frammistaða er einkar
ánægjuleg og má geta þess að Al-
exander Oliver Mai var einnig í
færum að vinna miðflokkinn en
lenti þar í 5. sæti. Hann vanmat
möguleika sína í næstsíðustu um-
ferð mótsins er hann samdi jafn-
tefli með hartnær unnið tafl.
Oliver Aron, sem er rólyndis-
maður, tefldi af mikilli keppnis-
hörku og skákir Hilmis Freys
Heimissonar voru afar viðburða-
ríkar. Hann missti af tækifæri á
bráðsnjöllum biskupsleik til c7 í
skák sinni við Einar Hjalta Jens-
son á Skákþingi Reykjavíkur og
birtist hér í blaðinu á dögunum en
tækifærið kom aftur til hans í
Finnlandi! Þar var hið vinsæla
Lundúna-afbrigði tekið til með-
ferðar:
NM 2018; 2. umferð:
Hilmir Freyr Heimisson – Mil-
ton Pantzar
Drottningarpeðsbyrjun
1. d4 Rf6 2. Bf4 d5 3. e3 c5 4.
dxc5 Da5+ 5. Rc3 e6 6. a3 Dxc5 7.
Rb5 Ra6 8. Rf3 Bd7 9. a4 Be7 10.
Be2 0-0 11. 0-0 Hfc8 12. c3 Db6 13.
Rfd4 Rc5?
Hann hefði betur valdað c7-
reitinn með 13. … Re8.
14. Bc7!
Fangar drottninguna, 14. …
Hxc7 er svarað með 15. a5 o.s.frv.
14. … Da6 15. a5!
Hann gat unnið drottninguna
fyrir tvo létta með 15. Rd6 en þetta
er enn betra.
15. … b6 16. axb6 Db7 17. Hxa7
Hxa7 18. bxa7 Re8 19. Bb8 Ra6 20.
Da1 Hd8 21. Da5 Hxb8
22. axb8=D?
Mun sterkara var 22. Dxa6! sem
vinnur strax.
22. … Rxb8 23. f4 f6 24. Ha1 Bc5
25. b4 Bb6 26. Da8 Dc8 27. Ha3
Kh8 28. f5 e5 29. Dxd5 exd4 30.
Bc4? Rc7 31. Rxc7 Bxc7
Í tímahrakinu sást báðum kepp-
endum yfir snjallan millileik, 31. …
dxe3! sem heldur jafnvægi.
32. cxd4 Bxf5 33. b5 Bg6 34. Ha7
Bb6 35. Hb7 Ba5 36. Dd6!
– og svartur gafst upp.
Óopinber keppni milli Norður-
landaríkjanna fer einnig fram en
þar er samanlagður vinningafjöldi
keppenda frá hverju landi lagður til
grundvallar. Skákbylgjan í Noregi
talar þar sínu máli:
1. Noregur 38½ v. 2. Ísland 33½
v. 3.-4. Svíþjóð og Finnland 32½ v.
Finnland 5. Danmörk 27 v. 6. Fær-
eyjar 16 v.
Jóhann og Helgi Áss efstir í A-
flokki skákhátíðar MótX
Jóhann Hjartarson og Helgi Áss
Grétarsson voru efstir í A-flokki
skákhátíðar MótX fyrir lokaumferð-
ina sem er á dagskrá næstkomandi
þriðjudag. Þeir höfðu báðir hlotið
4½ vinning af sex mögulegum og
ákváðu raunar að flýta viðureign
sinni vegna utanferðar Jóhanns á
skákmót í Austurríki sem hefst í
dag. Úrslitaviðureignin fór fram sl.
miðvikudag en úrslitunum er haldið
leyndum fram á þriðjudag. Fyrir
lokaumferðina eru Jón L. Árnason,
Hannes Hlífar Stefánsson, Björgvin
Jónsson, Þröstur Þórhallsson og
Jón Viktor Gunnarson í 3.-7. sæti
með 4 vinninga.
Í b-flokki er Siguringi Sigurjóns-
son efstur með 5 vinninga af sex
mögulegum. Í 2.-3. Sæti eru Gauti
Páll Jónsson og Hilmir Freyr
Heimsson með 4½ v. Meðal „hvítra
hrafna“ dró til tíðinda í 4. umferð
þegar forsprakki þessa móts, Jón
Þorvaldsson, lagði Braga Hall-
dórsson að velli og komst í efsta
sætið ásamt Braga og Júlíusi Frið-
jónssyni. Þeir eru allir með 2½ vinn-
ing af fjórum mögulegum.
Tvenn gullverðlaun
Íslendinga á Norð-
urlandamótinu
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Björn Ívar
Verðlaunahafar Íslands á NM Jón Kristinn Þorgeirsson, Hilmir Freyr
Heimisson og Oliver Aron Jóhannesson.
Ég hef aldrei hitt
nokkurn mann sem þarf
ekki að glíma við sjálf-
an, eðli sitt, trú og sjálf-
an dauðann. Einhverja
óáran í lífi sínu, sjúk-
dóma, brot, syndir eða
sorg, mannlegan
breyskleika, vandræði í
samskiptum, óásætt-
anlega hegðun, ein-
hvers konar vanlíðan,
áhyggjur og vonbrigði.
Öll gerum við mistök
Ég veit heldur ekki um neinn sem
ekki hefur á einhverjum tímapunkti
hugsað illa til náungans og jafnvel
hugsað honum allt að því þegjandi
þörfina. Öll hlaupum við á okkur og
gerum einhvers konar mistök. Með
því að beita valdi og jafnvel ofsa þar
sem mögulega meintum fýsnum eða
girndum, græðgi og yfirgangi er sval-
að á einhvern hátt, sem við virðumst
greinilega ekki alltaf hafa fullkomna
stjórn á og virðumst jafnvel ráða bara
eitthvað svo ferlega illa við.
Og hver hefur ekki borið einhvers
konar ljúgvitni gegn náunganum og
bara sjálfum sér eða stolið með ein-
hverjum hætti, kannski bara pínu
smá af því að það sá það enginn? Er-
um við ekki öll þarna með einhverju
móti, einhvern tíma, á einhverjum
tímapunkti, meira eða minna.
Hversu oft gerum við
ekki það sem við í raun-
inni viljum ekki og
sjáum eftir? Og hversu
oft látum við ekki ógert
að gera það góða sem
við vildum hafa gert?
Ekkert afsakar samt
gerðir okkar eða ranga
hegðun eða breytni og
við getum ekki skýlt
okkur á bak við eðli
okkar, hugsanlega mis-
beitingu í fortíð eða af
því að okkur finnst við
eiga eitthvað skilið eða
eiga eitthvað inni.
Upp til hópa erum við samt ekki
hættulegir glæpamenn sem þarf að
taka úr umferð eða uppræta. En við
þurfum sannarlega stöðugt að vera
að vinna í okkur sjálfum og hegðun
okkar og vera í stöðugri endur-
menntun í lífsleikni.
Við getum öll bætt okkur
Verum fólk sem hugsar sig tvisvar
um. Verum fólk sem á frumkvæði að
því að biðjast fyrirgefningar og meina
það. Leitumst við að bæta okkur í
samskiptum. Horfum í eigin barm og
spyrjum okkur daglega og hverja
stund: Hvernig get ég bætt líðan
fólksins míns, samstarfsfólks og sam-
ferðarfólks yfirleitt? Hvað get ég lagt
af mörkum til að fólkinu í kringum
mig líði sem best? Og þá ekki út frá
mínum hagsmunum og þörfum held-
ur þeirra sem við umgöngumst.
Leitumst við að lifa í friði og sátt
við alla menn með flæðandi en agaðan
kærleika að leiðarljósi þar sem raun-
veruleg umhyggja og velvild nærir
okkur í orða- og samskiptum í allri
framkomu og daglegum erli.
Látum ágreining, misklíð og óvild
aldrei verða kærleikanum yfirsterk-
ari. Vöndum okkur í samskiptum og
fyrir alla muni hættum ekki að segja
eitthvað fallegt við hvert annað, upp-
örva og hvetja, sjá fólk með hjartanu,
sýna hlýju og bara hreinlega að faðm-
ast og reynast fólki öxl, faðmur og
skjól, þegar á þarf að halda.
Okkar eini tilgangur í þessu bless-
aða jarðlífi er nefnilega að vera far-
vegur kærleikans, sáttargjörðar,
fyrirgefningar og friðar. Lítum í eigin
barm og leggjum okkar af mörkum.
Vöndum okkur. Við þurfum að bæta
okkur og við getum það hæglega ef
vilji er fyrir hendi. Stöndum saman.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Ævinleg glíma við sjálfan sig
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
» Vöndum okkur í
samskiptum og fyrir
alla muni hættum ekki
að segja eitthvað fallegt
við hvert annað, upp-
örva og hvetja, sýna
hlýju og bara faðmast.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.