Morgunblaðið - 17.02.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2018
Franskar Alpaperlur
sp
ör
e
hf
.
Sumar 3
Fegurð landsins fjalla leikur um okkur í bænum Annecy
sem er sannkölluð perla frönsku Alpanna. Við förum m.a.
til Chamonix og tökum þaðan kláf upp í 3.842 m hæð
fjallsins Aiguille du Midi og heimsækjum Genf, Montreux
og Lausanne við Genfarvatn. Í ferðinni gefst góður tími til
að slaka á og njóta ómældrar náttúrufegurðar.
19. - 26. maí
Fararstjóri: Þóra Björk Valsteinsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, formað-
ur Dómarafélags Íslands, segir að
allt sem verði til þess að auka
gagnsæi í sam-
bandi við launa-
ákvarðanir, bæði
dómara og ann-
arra, sé af hinu
góða. Þetta voru
hennar fyrstu
viðbrögð við til-
lögum starfshóps
um málefni
kjararáðs.
„Ég er rétt
byrjuð að kynna
mér þessa skýrslu starfshópsins og
væntanlega munum við í stjórn
Dómarafélagsins funda um þessar
tillögur starfshópsins alveg á næst-
unni,“ sagði Ingibjörg í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Ingibjörg kveðst telja að til-
lögur starfshópsins séu bæði
áhugaverðar og róttækar. „Ef
markmiðið sem sett er fram næst,
að gera launaákvarðanir gagnsærri
og reglubundnar, þá tel ég það af
hinu góða og þess virði að reyna að
ná því markmiði,“ sagði Ingibjörg.
Ingibjörg bendir á að skýrsla
starfshópsins sé engan veginn full-
unnin og krefjist nánari útfærslu.
Hún segir að í skýrslunni komi
fram ákveðinn skilningur á því að
ákvörðun um laun dómara sé
vandasamt verk. Erfitt sé að setja
kjör þeirra í þann farveg að um sé
samið, eins og gerist á launamark-
aðnum almennt.
„Það mikilvægasta er að sæmi-
leg sátt ríki um aðferðina sem beitt
er um launaákvarðanir dómara og
að upplýsingar um þær ákvarðanir
séu gagnsæjar. Þetta er það sem
mér þykir hvað jákvæðast í skýrslu
starfshópsins. Eitt sem hefur
reynst afskaplega illa og erfitt
undanfarin ár, er þessi leynd sem
ríkt hefur á milli launaákvarðana
og höfundar skýrslunnar taka sér-
staklega á því, sem mér finnst
einnig af hinu góða,“ sagði Ingi-
björg.
Ingibjörg kveðst gera ráð fyrir
því að stjórn Dómarafélags Íslands
komi saman í næstu viku og ræði
skýrslu starfshópsins um kjararáð
og í kjölfar þess verði mótuð sam-
eiginleg afstaða félagsins til skýrsl-
unnar og tillagnanna í henni.
Segir gagnsæi
vera af hinu góða
Jákvæð í garð skýrslu um kjararáð
Ingibjörg
Þorsteinsdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hefur verið ánægjuleg vit-
undarvakning um nauðsyn þess að
börn og ungmenni lesi. Sú söluaukn-
ing sem við sjáum í verslunum okkar
á barna- og unglingabókum og ís-
lenskum bókum
yfir höfuð rímar
við þessa vakn-
ingu,“ segir Ingi-
mar Jónsson, for-
stjóri Pennans.
Morgunblaðið
greindi í vikunni
frá óánægju fyrr-
verandi formanns
Félags íslenskra
bókaútgefenda,
Egils Arnar Jóhannssonar, með
stöðu bókabúða. Staðhæfði hann að
úrval íslenskra bóka færi minnkandi
en aukin áhersla væri lögð á vörur
fyrir ferðamenn.
Ingimar vísaði þessum fullyrð-
ingum Egils á bug og tók í kjölfarið
saman tölur um sölu fyrir Morgun-
blaðið.
„Niðurstaðan er sú að á síðustu
tveimur árum hefur sala á íslenskum
bókum og íslenskum barnabókum
aukist um 10% í fjölda eintaka. Þessi
árangur hefur náðst með markviss-
um aðgerðum í samstarfi við bóka-
útgefendur,“ segir Ingimar. Morg-
unblaðið hefur sagt af miklum
samdrætti í bóksölu síðustu misseri
og því koma þessar fréttir af sölu-
aukningu nokkuð á óvart. „Já,
heildarmarkaðurinn hefur minnkað
en salan hefur dregist saman annars
staðar en í „kaupfélagsbúðunum“.
Vandinn liggur annars staðar,“ segir
Ingimar í léttum tón.
Spurður um ástæður þessarar
söluaukningar segir Ingimar að fer-
metrum undir íslenskar bækur hafi
verið fjölgað í verslunum Pennans-
Eymundssonar að undanförnu. Árið
2014 var opnuð ný verslun á Lauga-
vegi 77 og 2016 tók Penninn yfir
verslun á Húsavík. Þá hefur versl-
unin í Smáralind verið flutt til innan
hússins og verður stækkuð um 120
fermetra í lok apríl.
Varðandi fullyrðingar Egils um
minna úrval af íslenskum bókum
segir Ingimar að erfitt sé að halda
úti bókabúð sem selur einungis bæk-
ur. Því hafi verið farin sú leið að
blanda saman bókum, ritföngum,
gjafavöru, túristavöru og tímaritum.
Á móti séu allar bækur fáanlegar á
vefnum. Þar séu nú til sölu tæplega
5.500 bækur og 2.268 barnabækur.
„Við erum með eina verslun þar
sem aðeins eru seldar bækur, í
Suður-Kringlu. Það er tap af rekstri
hennar í ellefu mánuði ársins en sal-
an í desember heldur uppi árinu.
Það er ekkert sjálfgefið að hægt sé
að halda úti svona starfsemi á tímum
þegar miklar breytingar eiga sér
stað í smásöluverslun og kostnaður
er að aukast.“
Sala á íslenskum
bókum hefur
aukist um 10%
Forstjóri Pennans segir að vandi
bókaútgefenda liggi annars staðar
Ingimar Jónsson
Morgunblaðið/Hari
Bókabúð Mun meira selst af barna-
bókum og íslenskum bókum.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Íslenska lögreglan mun taka yfir
rannsókn á máli Sunnu Elviru Þor-
kelsdóttur, en samningar þess efnis
voru undirritaðir í gær. Í kjölfarið
mun farbanni Sunnu verða aflétt og
ráðgert er að hún verði flutt heim til
Íslands snemma í næstu viku. Það er
þó með fyrirvara um að búið verði að
ljúka við öll helstu formsatriði. Þetta
hefur Morgunblaðið eftir áreiðanleg-
um heimildum.
Morgunblaðið hefur greint frá
stöðu Sunnu Elviru sem legið hefur
lömuð á háskólasjúkrahúsi í Malaga
á Spáni undanfarin mánuð. Sunna
hefur lýst aðstæðum sínum á spít-
alanum í Malaga en að hennar sögn
er læknisþjónusta á spítalanum af
skornum skammti. Sunna er þrí-
hryggbrotin, með þrjú brotin rifbein
auk annarra áverka. Í kjölfar hand-
töku eiginmanns Sunnu, Sigurðar
Kristinssonar, var Sunna sett í far-
bann og hefur því verið föst á spít-
alanum en Sigurður er grunaður um
aðild að fíkniefnamáli.
Talin geta veitt upplýsingar
Skv. heimildum Morgunblaðsins
er Sunna talin geta veitt upplýsingar
um mál Sigurðar og hefur af þeim
sökum verið haldið í gíslingu á spít-
alanum í Malaga. Það sé gert til að
setja pressu á hana um að veita upp-
lýsingar um málið, en spænsk stjórn-
völd hafa hingað til ekki viljað hleypa
henni úr landi. Þá hefur gengið illa
að koma henni fyrir á öðrum spítala
innan Spánar, en líkt og mbl.is
greindi frá í fyrradag var umsókn
um flutning á bæklunarspítala í Se-
villa aldrei send frá Malaga.
Nú þegar samningar hafa verið
undirritaðir um flutning Sunnu
munu lögregluyfirvöld landanna
vinna í sameiningu að áframhaldandi
rannsókn málsins.
Sunna verður við komuna til Ís-
lands flutt á taugadeild Landspítal-
ans þar sem hún mun hljóta nauð-
synlega meðferð við meiðslum
sínum. Þá bindur Sunna vonir við að
geta hafið endurhæfingu sem allra
fyrst.
Á sjúkrabeði Samningar hafa náðst um flutning Sunnu til Íslands en ráðgert er að hún komi snemma í næstu viku.
Sunna kemur heim
á allra næstu dögum
Farbanni Sunnu aflétt í kjölfar undirritunar samninga í gær
Hrein raunávöxtun Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna á árinu 2017 var
5,7%. Eignir jukust um samtals 62
milljarða króna, þar af voru fjárfest-
ingatekjur 47 milljarðar, og námu
eignirnar samtals 665 milljörðum í
lok ársins samanborið við 602 millj-
arða árið áður. Þetta kom fram á vef
sjóðsins í gær, en aðalfundur hans er
á miðvikudaginn.
Eignasafni sjóðsins er vel áhættu-
dreift. Erlend verðbréf voru um
þriðjungur heildareigna í árslok,
samanborið við 27% árið áður. 17%
eignanna eru í innlendum hluta-
bréfum. 23% eigna eru í innlendum
ríkistryggðum skuldabréfum. Sjóð-
félagalán námu 82,3 milljörðum, eða
um 12% af heildareignum, saman-
borið við 62 milljarða og rúm 10% af
eignum árið áður. Á árinu 2017 fengu
að meðaltali 15.820 sjóðfélagar líf-
eyrisgreiðslur úr samtryggingar-
deild sjóðsins, að fjárhæð 12.819
milljónir króna. Árið áður námu líf-
eyrisgreiðslur 11.570 milljónum og
hækkuðu því um 11%. Lífeyris-
greiðslur úr séreignardeild námu
568 milljónum. Virkir sjóðfélagar
voru 36.400 á árinu.
Lífeyris-
sjóður í
blóma
Eignirnar jukust
um 62 milljarða